Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dreymdi alltaf um að fá Rut Kára til að hanna heimilið sitt

Hannes Stein­dórs­son er lög­giltur fast­eigna­sali hjá Lind fast­eigna­sölu. Hannes er einn af eig­endum fast­eigna­söl­unnar. Hann býr með Lísu Maríu Mark­ús­dóttur við­skipta­fræð­ingi og á þrjú dásam­leg börn, Evu Nadíu, þriggja ára frekju­dós að hans eigin sögn, Steindór Örn, tíu ára fót­bolta- og fim­leika­strák og Söru Nadíu, tólf ára „going on 16“ fót­bolta­stelpu. Hannes er Kópa­vogs­búi og býr í Þrymsölum 16 Kópavogi.

Dreymdi alltaf um að fá Rut Kára til að hanna heimilið sitt

Hvað heillar þig mest við starfið?  „Fjöl­breyti­leik­inn og fólkið, er á tutt­ugu og þriggja manna vinnu­stað og vinn með frá­bæru fólki, hef unnið með sama fólk­inu í tíu ár eða meira, vinn með vinum mínum, hitti nýtt fólk alla daga árs­ins og alltaf ný og ný verk­efni. Fast­eigna­salar hitta eitt til tvö þús­und manns á ári hverju sem teng­ist vinnu þeirra. Svo er alltaf rosa­lega gaman að selja fyrstu kaup­endum, alltaf svo mikil spenna að fá sitt fyrsta heim­ili.“

Getur þú lýst hefð­bundnum vinnu­degi hjá þér? „Vakna kl 07:00, keyri yngstu dóttur mína í leik­skóla og stóru börnin í skóla, mæti í vinnu vana­lega um 08.30. Byrja alla daga á að svara póstum gær­kvölds­ins og fer yfir plan dags­ins, vana­lega er ég á skrif­stof­unni fyrir hádegi og svo sýni ég eignir og skoða eignir ásamt að fara á fundi eftir hádegi. Vinnu­dag­ur­inn er oft­ast til 18:00, þá reyni ég að fara út að hjóla eða í rækt­ina.“

Hannes Stein­dórs­son er lög­giltur fast­eigna­sali

Hvað er það sem þér finnst gera heim­ili að heim­ili? „Það er fjöl­skyldan, fólkið, minn­ing­arnar, sagan, gömul hús­gögn með sögu og svo margt, margt fleira.“

Geturðu líst þínum stíl?  „Minn stíll er frekar ein­faldur, fáir hlutir, lítið dót, stíl­hreint, hlý­legt.“

Áttu þinn upp­á­halds arki­tekt? ,,Í raun ekki er mjög hrif­inn af mörgum, Sigvaldi var rosa­lega flottur og margir góðir á Íslandi, ég er hrif­inn af ein­faldri hönnun og góðu skipu­lagi, mér finnst til dæmis nýjar íbúðir í dag margar hverjar mjög vel nýttar.“

Áttu þinn upp­á­halds­hönnuð? „Í dag er ég mjög hrif­inn af Berg­lindi Berndsen og Hönnu Stínu Ólafs­dóttur, mig dreymdi alltaf líka um að fá Rut Kára til að hanna heim­ilið mitt en það eru svo margir góðir á Íslandi.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eign­ast en ekki eign­ast hingað til? „Mig dreymir um að eiga gufu­bað og heitan pott á heim­ilið, sé fyrir mér að koma heim eftir langan vinnu­dag og fara í gufu.“

Upp­á­halds­lit­ur­inn þinn? „Ég held að upp­á­halds­lit­ur­inn minn sé rauður.“

Að leggj­ast í sófann hjá mömmu er best

 Hvar líður þér best? „Heima hjá mér með fólk­inu mínu (klass­ískt svar). Mér líður alltaf vel hjá mömmu og pabba, að fara í heim­sókn og leggj­ast í sófann hjá mömmu er best. Mér líður líka mjög vel í vinn­unni og á fjalla­hjóli einn í miðjum skógi eða á skíðum.“

Nú er sum­arið komið og margir huga að garð­inum, er eitt­hvað sem þig langar að eign­ast í garð­inn?  „Er mjög lít­ill garð­yrkju­maður, slæ garð­inn það er allt sem ég geri þar, ef ég fengi mér blóm sem þyrfti að hugsa um þá myndu þau visna fljótt.“

Svalasti veit­inga­stað­ur­inn á Íslandi í dag? „Margir svo góðir í dag.

Grill­mark­að­ur­inn er alltaf svalur, Ghandi er einn af mínum upp­á­halds. Besti matur sem ég hef fengið nýlega var á Bastard (gamla Vegamót).“

Er ein­hver bygg­ing­ar­stíll sem heillar þig meira enn annar?  „Stíl­hreint og ein­falt finnst mér alltaf fal­leg­ast.“

Að lifa líf­inu lif­andi er að … „vera alls­konar, gera alls­konar og njóta.“

Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur