Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gott rúm er gulli betra

Halldór Þ. Snæland er fæddur 1946 og er lyfja­fræð­ingur en hann útskrif­að­ist frá HÍ, 1973. Hann ólst upp og hefur starfað við svamp­vinnslu og dýnu­fram­reiðslu frá barns­aldri en hann er sonur Péturs V. Snæland og Ágústu Pét­urs­dóttur Snæland, stofn­enda og eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins Péturs Snæland hf., sem stofnað var árið 1949.

Gott rúm er gulli betra
Halldór Þ. Snæland.

,,Árið 1949 gang­settu for­eldra mínir fram­leiðslu á nátt­úru­legum latexsvampi og var þessi verk­smiðja ein af fyrstu latex­verk­smiðjum í Evrópu. Árið 1968 hófu þau fram­leiðslu á polyuretan-svampi og voru sömu­leiðis meðal þeirra fyrstu í Evrópu sem það gerðu.“

Nú hefur þú upp­lifað tím­ana tvenna og fylgt fyr­ir­tæk­inu eftir í áranna rás og fylgst með því vaxa og dafna. Getur sagt okkur aðeins frá þróun og vexti fyr­ir­tæk­is­ins?

„Miklar breyt­ingar á rekstri fyr­ir­tæk­is­ins hafa átt sér stað í áranna rás. Í upp­hafi var salan aðal­lega á hrá­efni til hús­gagna­iðn­að­ar­ins sem var mjög blóm­legur á þeim tíma og sala á til­búnum dýnum til hús­gagna­versl­ana, inn á sjúkra­stofn­anir og í fiski­skip. Minna var selt beint í almennri sölu til við­skipta­vina. Síðar jókst sala til ein­stak­linga til mik­illa muna þar sem margir voru að smíða sín eigin hús­gögn bæði til nota inn á heim­ilum sem og í sum­ar­bú­stöðum.“

Hefur margt breyst á þessum árum?

„Eftir því sem tím­inn leið fór sam­keppnin á mark­að­inum að aukast með meiri inn­flutn­ingi á til­búnum hús­gögnum og með inn­göngu í EFTA átti sér stað mikið hrun í íslenskum hús­gagna­iðn­aði. Á árunum 1980-1995 hættu mörg góð bólst­ur­fyr­ir­tæki  og hús­ganga­versl­anir rekstri. Þessar breyt­ingar á mark­að­inum höfðu auð­vitað mikil áhrif á okkar fyr­ir­tæki þannig að breyt­inga var þörf. Árið 1991 sam­ein­uð­umst við Lystadún sem verið hafði í sams­konar rekstri og Pétur Snæland hf. og úr varð Lystadún–Snæland ehf. með aðsetur í Skútu­vogi. Þar var starf­rækt svamp­fram­leiðsla, skurð­ar­verk­stæði, sauma­stofa og verslun þar sem seldar voru dýnur, rúm og svamp­hús­gögn og fleiri svamp­vörur.“

Kjarninn af fyrirtækjum sem myndar Vogue fyrir heimilið

„Árið 2000 keypti fyr­ir­tækið versl­un­ina Marco sem stað­sett var í Mörkinni 8 og flutti fyr­ir­tækið þangað með allan sinn rekstur. Þarna fékkst loks­ins gott versl­un­ar­hús­næði þar sem betra var að mark­aðs­setja vörur okkar til almenn­ings. Valdimar Grímsson keypti Lystadún–Snæland og Marco árið 2001 og bætti síðan Vogue í safnið árið 2002. Þarna var kom­inn kjarn­inn af fyr­ir­tækj­unum sem mynda Vogue fyrir heim­ilið.“

Svampur er ekki bara svampur

„Ég hefði ekki starfað svona lengi hjá þessum fyr­ir­tækjum ef ég mér þætti það ekki skemmti­legt. Svampur er ekki bara svampur eins og margir halda. Hann er til af ótrú­lega mörgum gerðum og hægt er að nýta hann á ótal vegu enda er hann not­aður í flest hús­gögn, rúm­dýnur, leik­föng og margar hönn­un­ar­vörur.  Í versl­un­ina koma mörg skemmti­leg verk­efni sem gaman er að glíma við. Í raun­inni er mottóið hjá okkur það að ekk­ert sé ómögu­legt fyrr en búið er að sann­reyna að svo sé.“

Klæðskeraframleidd rúm og dýnur

„Þar sem mikil sam­keppni er í sölu á rúmum og rúm­dýnum höfum við kosið að velja okkur stað á mark­aðnum sem hentar okkur og okkar við­skipta­vinum mjög vel. Þar á ég við „klæð­sker­a­fram­leidd“ rúm og dýnur. Við höfum frá stofnun fyr­ir­tæk­is­ins fram­leitt rúm og dýnur þar sem farið er í einu og öllu eftir þörfum við­skipta­vina. Rúm sem við fram­leiðum eru ekki til á lager heldur er stuðst er við þarfir og óskir við­skipta­vina hvaða efn­is­gerð er valin, það er að segja latex, kaldsvampur eða pokagormar og hvað varðar stífleika, stærð og útlit.“ Í dag á þetta enn betur við en áður, þar sem ný og betri efni til dýnu­gerðar eru komin á markað auk þess sem þekk­ing manna á upp­bygg­ingu góðrar dýnu er meiri. „Oft reyn­ist það mönnum erfitt að velja réttan stí­leika og gerð af dýnu í versl­un­inni. Við gerum ráð fyrir þessu í fram­leiðslu okkar á dýn­unum, þannig að það sé auð­velt að breyta þeim eftir á.“

Segðu okkur aðeins frá rúmunum, dýn­unum sem þið eruð að selja, skiptir máli hvernig rúm/dýnu maður velur?

„Þegar maður velur sér nýtt rúm þarf að vanda valið vel. Maður þarf að hugsa vel fram í tím­ann og reyna að ímynda sér hvernig rúmið reyn­ist manni í náinni fram­tíð. Gott er að velja dýnu sem hægt er að breyta eftir að þú er búinn að kaupa hana og prófa í nokkra daga.“

Það sem ber að hafa í huga við val á dýnum:

  • Alltaf velja eins stífa dýnu og lík­am­inn þolir (án verkja).
  • Of stífum dýnum er oft­ast hægt að bjarga með mjúkri yfir­dýnu.
  • Öll rúm mýkj­ast við notkun og því mýkra sem það er í upp­hafi þeim mun fyrr verður það e.t.v. orðið of mjúkt.
  • Svæða­skiptur stífleiki nýt­ist öllum mjög vel.
  • Gott er að dýnu­ver séu með rennilásum, þannig að hægt sé að taka dýnu­ver af og þvo og við­gerðir á dýnum eru auð­veld­ari.
  • Ekki ákveða fyrir fram hvaða dýnu þú ætlar að kaupa.
  • Engin dýna er best fyrr en þú ert búinn að ganga úr skugga um að hún henti ÞÉR.
  • Dýna sem hentar frænda þínum er ekki endi­lega sú besta fyrir þig.
  • Dýrasta dýnan í búð­inni er ekki alltaf sú sem hentar þér best.

„Að lokum segi ég þetta: „gott rúm er gulli betra“.  Þá er ég að tala um heilsu­rúmið þitt, sem þú velur sjálfur og lík­ama þínum líður vel á. Fátt er betra en að vakna úthvíldur að morgni, til­bú­inn til að takast á við nýjan dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur