Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Seiðandi, litríka og fjöruga Kúba heillar

Úrval Útsýn býður ein­staka ferð til hinnar lit­ríku eyju Kúbu sem ávallt heillar gesti upp úr skónum! Við spjöll­uðum við Kristínu Gunn­ars­dóttur hjá Úrval Útsýn og fengum nán­ari upp­lýs­ingar um ferð­ina sem fram undan er.

Seiðandi, litríka og fjöruga Kúba heillar

„Í ferð­inni fáum við að kynn­ast báðum hliðum Kúbu, förum um helstu ferða­manna­slóðir en kíkjum líka á það sem liggur baka til. Flestir kjósa að kynn­ast hinni sígildu og seið­andi Havana og strand­arparadís­inni Varadero þar sem mun­aður er í hávegum hafður. Far­ar­stjór­inn okkar, Kristín Tryggva­dóttir, þekkir vel til Kúbu og við njótum þekk­ingar hennar og inn­sýnar í þess­ari ein­stöku ferð sem verður 10.-17. nóv­em­ber.“

Nú bjóðið þið þessa mögn­uðu sér­ferð til Kúbu sem er meðal ann­ars fræg fyrir að hafa haldið í menn­ing­ar­arf­leifð sína og nátt­úru­feg­urð, hvítar og tærar strendur og lif­andi tón­list sem ómar um strætin. Getur þú sagt okkur nánar frá þess­ari mögn­uðu ferð? „Já, við erum með dásam­lega íslenska far­ar­stjóra á staðnum sem þekkja vel til stað­hátta og hafa áður verið far­ar­stjórar í ferðum okkar á Kúbu. Sem áður segir verður okkar ást­sæla Kristín Tryggva­dóttir, far­ar­stjóri Úrval Útsýn til margra ára á Kanarí­eyjum og Costa Blanca, með far­þegum okkar í Kúbu­ferð­inni. Einnig verður Gréta Guð­jóns­dóttir, ljós­mynd­ari og far­ar­stjóri, með mjög áhuga­verða sér­ferð um eyj­una þar sem meðal ann­ars UNESCO-borgin Trinidad verður heim­sótt og far­þegar fá tæki­færi til gista á heim­ilum heima­fólks.“

Er mik­ill munur á menn­ing­unni og lífs­háttum íbú­ana í Havana og Varadero?
„Já, það er mik­ill munur. Havana er gömul suð­ræn borg og alveg sér á báti á heims­vísu. Þar ægir saman gömlum til­komu­miklum bygg­ingum, amer­ískum köggum frá 6. ára­tugnum, sjar­mer­andi djass­búllum og spilandi og dans­andi fólki á götum úti, er þá fátt eitt nefnt. Varadero er ein­fald­lega flottur sól­ar­staður með mjög góð hótel og fyrsta flokks aðstöðu fyrir sól­þyrsta gesti. Báðir staðir njóta sama stöðuga lofts­lags­ins, 28 gráðu hita allt árið.“

Helsta aðdrátt­ar­afl Havana er …
„Það er eins og að ferð­ast aftur í tím­ann … gömlu lit­ríku bygg­ing­arnar, bíl­arnir og bylt­ingin í bak­grunni. Salsa-tón­list og dans, djass, vindlar og romm. Sjálf­sagt er að upp­lifa hina nýju Havana þar sem yngri kyn­slóðin er nýjasta kryddið í mann­líf­inu og að ýmsu leyti á annarri línu en þeir sem eldri eru.“

Helsta aðdrátt­ar­afl Varadero er …
„Hvíti sand­ur­inn, langa strand­lengjan og djúp­blár tær sjór­inn. Í Varadero er hægt að slappa af við strönd­ina eða sund­laug­ar­bakk­ann, fara í golf, skútu­sigl­ingu, jeppa­safarí eða jafn­vel synda með höfr­ungum.“

Bjóðið þið upp á fjöl­breytta mögu­leika á gist­ingu í ferð­inni?
„Við bjóðum upp á mikið úrval af gist­ingu, allt frá fimm stjörnu hót­elgist­ingu, yfir í gist­ingu hjá heima­mönnum. Mögulegt er að dvelja ein­göngu í Havana eða allan tím­ann í Varadero – eða skipta ferð­inni upp og gista á báðum stöðum. Í Varadero bjóðum við til dæmis upp á dvöl í fjöl­skyldu­her­bergi fyrir þriggja eða fjög­urra manna fjöl­skyldu á fínu fimm stjörnu hót­eli með öllu inni­földu á 243.900 kr. á mann.“

Ferða­til­högun til Kúbu í stórum dráttum er morg­un­flug í beinu flugi með Icelandair þann 10. nóv­em­ber og einnig morg­un­flug heim, þann 17. nóv­em­ber. Farþegar munu njóta fyrsta flokks þjón­ustu Icelandair með þráð­lausu net­sam­bandi (gegn gjaldi) og flottu afþrey­ing­ar­kerfi. Í báðum flug­ferðum er boðið upp að kaupa betri sæti um borð. Flug­völl­ur­inn er í nágrenni Varadero og akstur til Havana tekur um tvær klukku­stundir. Íslenskir far­ar­stjórar eru far­þegum Úrvals Útsýnar innan handar allan tím­ann.

Áhugaverðir punktar

Havana er stærsta borgin í Karí­ba­haf­inu, með tvær millj­ónir íbúa og 500 ára gamla sögu. Kúba er stærsta eyja Karí­ba­hafs og liggur á mótum þess og Atl­ants­hafs­ins og íbúar er um 11 millj­ónir. Enda þótt landið sé stærra að flat­ar­máli en Ísland (111.000 fer­kíló­metrar) er eyjan öll á lengd­ina en um 1.250 km skilja að austasta og vest­asta odda hennar. Landslag Kúbu ein­kenn­ist af flötum ekrum, hæðum og fellum en eig­in­leg fjöll eru á suð-aust­ur­hlut­anum: Sierra Maestra með hæsta topp lands­ins, Pico Turquino, í önd­vegi (1.974 m yfir sjáv­ar­máli).

Verður að upplifa á Kúbu“ (Must do)

* Dansa salsa úti á götu
* Aka um í gömlum forn­bíl er upp­lifun
* Skoða Hotel National de Cuba
* Heim­sækja Trinidad og fara á Disco-Ayala
* Taka eftir kröbb­unum sem fara yfir göt­urnar
* Fara í snorkl og/eða köfun
* Læra að rúlla vindil
* Synda í Vegas Grande-foss­unum
* Fara á Playa Jibacoa-strönd­ina milli Havana og Varadero

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Úrval Útsýn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur