Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dreymir um að eignast jörð með lítilli lax- og silungaveiðiá

Ólafur Br. Finn­boga­son og er lög­giltur fast­eigna­sali á Miklu­borg fast­eigna­sölu. Hann er giftur Dögg Hjalta­lín, bóka­út­gef­anda og eig­anda Sölku bóka­út­gáfu, og eiga þau þrjár dætur, Agnesi 19 ára, Freyju 8 ára og Rán 2 ára. Þau búa í tví­lyftu timb­ur­húsi á Bráð­ræð­is­holt­inu í Reykja­vík ásamt læð­unni Regínu og fjórum hænum.

Dreymir um að eignast jörð með lítilli lax- og silungaveiðiá

Hvað heillar þig mest við starfið?
„Það sem skemmti­leg­ast er við starfið er að vera þátt­tak­andi í einni stærstu fjár­hags­legu ákvörðun fjöl­skyldna á lífs­leið­inni sem fylgir oft­ast mikil gleði og spenn­ingur hjá fólki. Einnig finnst mér gaman að tala og umgang­ast annað fólk og er það stór hluti af starf­inu. Fjöl­breytni er einnig mikil og situr maður bless­un­ar­lega ekki nema hluta úr deg­inum við tölv­una.“

Geturðu lýst hefð­bundnum vinnu­degi hjá þér?
„Ég mæti oft­ast um klukkan 8.30 á morgn­ana og erum við á Miklu­borg með verð­mats­fundi tvo morgna á viku. Síðan hefst dag­ur­inn á að fylgja eftir fyr­ir­spurnum dags­ins á undan og bæði skoða nýjar eignir sem og sýna. Upp úr klukkan 16.00 fer ég af skrif­stof­unni og er með sýn­ingar og skoð­anir fram að kvöld­mat. Eftir kvöld­mat tekur tölvu­póstur og gerð sölu­yf­ir­lita og lýs­inga á eignum. Dagurinn er oft langur og er lítið frí um helgar en starfið skemmti­legt í alla staði.“

Hvað er það sem þér finnst gera hús að heim­ili?
„Heimili mitt væri ekki spenn­andi ef ég væri ekki giftur svona glað­lyndri og fal­legri konu og ætti ekki svona lífs­glöð og fjörug börn. Einnig erum við heppin að vera vina­rík svo að heim­ili mitt ef oft fullt af gestum sem gefa líf­inu gleði og til­gang. Svo að heim­ili mitt er þar sem vinir og mínir nán­ustu eru í kringum mig.“

Geturðu líst þínum stíl?
„Minn stíll er nú ekki flók­inn, geng oft­ast í því sem Dögg kaupir á mig.“

Áttu þinn upp­á­halds­arki­tekt?
„Er ekki mikið að spá í arki­tektúr en auð­vitað eru margir í gegnum vinn­una sem maður hefur kynnst á verkum þeirra og finnst mér til að mynda Valdimar Harð­ar­son hjá Ask arki­tektum vera sér­lega „praktístur“ og þau fjöl­býl­is­hús sem ég hef selt fyrir hann hafa alltaf hitt í mark hjá þeim not­endum sem þau eiga við hvort sem það er fyrir ungt fólk sem er að hefja búskap eða heldra fólk sem vill minnka við sig. Einnig hönn­unin hans stíl­hrein og tíma­laus.“

Áttu þinn upp­á­halds­hönnuð?
„Ólafur Ágúst Jensson, inn­an­húss­arki­tekt og ljósa­hönn­uður, ber af enda einn af mínum betri vinum og hefur lýst upp allt umhverfi sitt þegar hann er á svæð­inu.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eign­ast en ekki eign­ast hingað til?
„Jörð með lít­illi lax- og sil­unga­veiðiá ásamt góðum rjúpna- og gæsa­lendum.“

Upp­á­halds­lit­ur­inn þinn?
„Enginn.“

Hvar líður þér best?
„Mér líður alltaf best heima með fjöl­skyld­unni og vinum og ekki skemmir ef það er á veiði­lendum hvort sem það er skot- eða stanga­veiði.“

Hvað heillar þig mest við haustið? Er eitt­hvað sem þú vilt bæta við í garð­inn eða inn á heim­ilið þegar haustið gengur í garð?
„Þá hefst skot­veiði­tíma­bilið og ég legg veiði­stöng­inni. Og ég vil helst bæta hang­andi villi­bráð á pall­inn og rjúpum í fryst­inn.“
Svalasti veit­inga­stað­ur­inn á Íslandi í dag?

„Eld­hús­borðið heima með góðum vinum og ekki skemmir ef Viktor Örn Andr­és­son eða Hinrik Lárusson ofur­kokkar séu búnir að elda ofan í okkur og vini okkar.“

Er ein­hver bygg­ing­ar­stíll sem heillar þig meira en annar?
„Ég er hrif­inn af gömlum húsum, hvort sem þau eru úr timbri eins og heim­ili mitt sem er gam­all leik­skóli sem var við Rauðhóla eða gam­alt stein­hús í sveit­inni.“
„Að lifa líf­inu lif­andi er … að vera með vinum sínum og fjöl­skyldu og gera það sem mann dreymir um áður en maður missir heilsu eða getu til þess. Maður veit ekki hvað ger­ist á morgun.“

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur