Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mikilvægt að auka hlut kvenna í atvinnulífinu

Félag kvenna í atvinnu­líf­inu ásamt sam­starfs­að­ilum standa að ráð­stefnu þann 31. októ­ber næst­kom­andi sem ber heitið Rétt upp hönd og er ráð­stefna Jafn­vægis­vog­ar­innar. Mannlíf heim­sótti Björk Bald­vins­dóttur, svið­stjóra sölu- og við­skipta­þró­unar hjá fyr­ir­tæk­inu Dagar, í til­efni þess og spurði hana spjör­unum úr um hennar áherslur og fyr­ir­tæk­is­ins. En fyr­ir­tækið Dagar hefur svo sann­ar­lega lagt lóð á vog­ar­skál­arnar þegar kemur að jafn­launa­vottun.

Mikilvægt að auka hlut kvenna í atvinnulífinu
Björk Bald­vins­dóttir hefur starfað hjá Dögum síðan árið 2000, lengst af sem sölu- og mark­aðs­stjóri en síð­ast­liðin fimm ár sem sviðs­stjóri sölu- og við­skipta­þró­unar. Hún er í stjórn og fram­kvæmda­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins.

Segðu okkur aðeins frá fyr­ir­tæk­inu Dagar og helstu mark­miðum fyr­ir­tæk­is­ins? „Markmið Daga er að vera fremsta þjón­ustu­fyr­ir­tæki á land­inum en fyr­ir­tækið er leið­andi í fast­eigna­um­sjón og býður upp á fjöl­breytta þjón­ustu til fyr­ir­tækja, sam­an­ber ræst­ingar, veit­inga­þjón­ustu og fast­eigna­um­sjón,“ segir Björk og er stolt af sínu fyr­ir­tæki. „Okkar mark­mið er að velja ávallt hæf­asta fólkið í öll störf en að hafa að leið­ar­ljósi að árangur fyr­ir­tæk­is­ins bygg­ist á fjöl­breyti­leika í stjórnun.“

Eitt þriggja fyrstu fyrirtækjanna til að hljóta jafnlaunavottun VR

Þið eruð þegar komin með jafn­launa­vottun VR, er það ekki rétt? „Við vorum eitt þriggja fyrstu fyr­ir­tækja á Íslandi til að hljóta jafn­launa­vottun VR og er fyr­ir­tækið með jafn­launa­stað­al­inn IST 85:2012,“ segir Björk. Hjá Dögum starfa 800 manns og eru 75% konur. Hlutfall kvenna í fram­kvæmda­stjórn er 33%,  í fram­kvæmda­ráði  37% en sem milli­stjórn­endur eru konur í meiri­hluta, eða 88%.

Erlendu millistjórnendurnir góðar fyrirmyndir

Hafa stjórn­endur hjá ykkur viljað taka raun­veru­leg skref til að auka jafn­rétti í atvinnu­líf­inu? „Já, stjórn­endur Daga hafa ávallt lagt áherslu á að gefa starfs­fólki tæki­færi á að þró­ast innan fyr­ir­tæk­is­ins og að taka að sér ábyrgð­ar­meiri störf. Stór hluti af okkar stjórn­endum er starfs­fólk sem hefur þró­ast innan fyr­ir­tæk­is­ins og eru til dæmis milli­stjórn­endur að langstærstum hluta konur, margar þeirra, bæði íslenskar og erlendar, hafa unnið sig upp. Þær erlendu hafa náð góðum tökum á íslensk­unni og  standa sig virki­lega vel í starfi. Erlendu milli­stjórn­end­urnir eru góðar fyr­ir­myndir fyrir sína sam­landa. Við erum ákaf­lega stolt af okkar starfs­fólki, sama hvaðan það kemur.“

Aðeins 11% kvenna eru forstjórar

Finnst þér þörf á því að auka hlut kvenna í fram­kvæmda­stjórn fyr­ir­tækja á Íslandi? „Já, mik­il­vægt er að auka hlut kvenna í fram­kvæmda­stjórnum fyr­ir­tækja. Það þarf fjöl­breytta liðs­heild til að stýra fyr­ir­tækjum. Það er áhyggju­efni þegar horft er til þess að 67% útskrif­aðra háskóla­nema séu konur að aðeins 11% kvenna séu for­stjórar. Þrátt fyrir að árangur hafi náðst í þess­ari veg­ferð er mikið verk fram undan. Mark­miðið er ávallt að efla íslenskt atvinnu­líf og er Jafn­vægis­vogin átak í því.“

Af hverju þarf fjöl­breytta liðs­heild til að stýra fyr­ir­tækjum, er munur á því að vera með karl- og kven­stjórn­endur? „Það fer alltaf eftir ein­stak­lingnum en mik­il­vægt er að gildi og við­horf beggja kynja komi fram í stjórnun fyr­ir­tækja.  Ásamt því skiptir líka miklu máli sam­setn­ing hvað varðar aldur, þekk­ingu og hæfni.“

Gullna brosið

Hjá ykkur eru í boði fjöl­breytt störf og mik­il­vægi þeirra ekki oft á allra vörum. Hvernig er hægt að breyta því og koma skila­boðum til sam­fé­lags­ins um mik­il­vægið og laða fólk að í þessi mik­il­vægu störf? „Í umræð­unni fer oft lítið fyrir hvað þessi störf eru mik­il­væg, sam­an­ber ræst­ing. Þessi störf ættu að vera meira metin en almennt er. Til að mynda má benda á að ef stofn­anir, eins og heil­brigð­is­stofn­anir, leik­skólar og skólar eru ekki ræst í ein­hverja daga þá er þeim lokað með öllum þeim óþæg­indum fyrir sam­fé­lagið sem því fylgir. Ræst­ing­ar­starfið er mik­il­vægt og við reynum að benda okkar starfs­fólki á að það beri mikla ábyrgð og það sé mik­il­vægur hlekkur í keðj­unni.

Í hverjum mán­uði veitum við við­ur­kenn­ingu fyrir vel unnin störf, Gullna brosið, sem er þakk­læti til starfs­manns fyrir fram­úr­skar­andi störf. Við gerum þetta í sam­starfi við við­skipta­vini okkar og fáum þannig skemmti­legt tæki­færi til að koma hrósi til þeirra starfs­manna. Við­skipta­vinir okkar benda á góð verk og til­nefna starfs­menn. Við vitum að jákvæð end­ur­gjöf eykur traust og sjálf­stæði í starfi sem leiðir aftur til auk­innar starfs­gleði og góðra sam­skipta.“

Í sam­starfi við Daga
Myndir/ Úr safni Daga

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur