Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Náttúruauðlindir við Mývatn – himneskt að njóta

Jarð­böðin við Mývatn eru ein­stök nátt­úru­auð­lind sem laða að og útsýnið er stór­feng­legt. Jarð­böðin eru stað­sett í Jarð­baðs­hólum, um fjóra kíló­metra frá Reykja­hlíð. Þar hafa verið stunduð heit jarð­böð til heilsu­bótar allt frá land­náms­öld og æ fleiri sækja í þessa nátt­úrupara­dís. Við hjá Mannlífi fórum og heim­sóttum Jarð­böðin og hittum Heiðu Hall­dórs­dóttur mark­aðstjóra og svöl­uðum for­vitni okkar um það sem í boði er.

Náttúruauðlindir við Mývatn – himneskt að njóta
Heiða Hall­dórs­dóttir.

Getur þú sagt okkur aðeins frá upp­hafi Jarð­bað­anna og hvert mark­mið ykkar er með þeim? „Jarð­böðin voru form­lega opnuð 30. júní 2004 og eru opin allt árið. Útsýnið úr böð­unum er ein­stakt og við leggjum mikla áherslu á að gestir okkar upp­lifi slökun og vellíðan þegar þeir koma til okkar í Jarð­böðin. Við leggjum einnig mikla áherslu á gufu­böðin okkar en þau eru byggð ofan á sprungu þar sem nátt­úru­leg gufa stígur upp úr jörð­inni. Hvergi ann­ars staðar á Íslandi stígur hrein vatns­gufa, laus við brenni­stein og aðra mengun, upp úr jörð­inni. Við stjórnum því ekki hit­anum í gufu­bað­inu, nátt­úran sér alfarið um það.“

Hefur rekst­ur­inn tekið miklum breyt­ingum á síð­ustu árum? „Jarð­böðin hafa tekið miklum breyt­ingum. Við höfum verið að stækka við okkur hægt og rólega þar sem gestum hefur fjölgað tals­vert á síð­ustu árum. Við höfum einnig bætt veit­inga­að­stöðu okkar og stækkað sal­inn í takt við aukn­ingu gesta.“

Aðstaðan hjá ykkur er hin glæsi­leg­asta og margt í boði. Geturðu sagt okkur aðeins frá aðstöð­unni og því sem í boði er? „Gestir okkar hafa aðgang að öllu baðsvæð­inu en það sam­anstendur af heitu lóni, heitum potti og gufu­böðum. Vatnið í lón­inu og pott­inum er jarð­varma­vatn sem inni­heldur mikið magn jarð­efna, er basískt og hentar því vel til böð­unar. Gufu­böðin eru tvö og þar geta fjöru­tíu gestir verið í einu. Gestum er frjálst að dvelja eins lengi og þeir vilja hjá okkur og margir nýta sér það að fá sér léttar veit­ingar í Kaffi Kviku á milli þess sem það fer í bað eða gufu.“

Eru Íslend­ingar, jafnt og erlendir ferða­menn, dug­legir að koma? „Við fáum bæði til okkar Íslend­inga og erlenda ferða­menn en þeir erlendu eru í miklum meiri­hluta. Við fáum einnig margt heima­fólk sem er okkur mjög mik­il­vægt og til dæmis eiga margir hér í sveit­inni og nágrenni árskort í Jarð­böðin.“

Lónið er ein­stak­lega fag­urt og dásam­legt að njóta þar. Er boðið upp á veit­ingar þar? „Við erum með lítið kaffi­hús hjá okkur sem heitir Kaffi Kvika. Þar er hægt að njóta léttra veit­inga í fal­legu umhverfi. Við bjóðum upp á súpu og salat, sam­lokur, boost og fleira. Við seljum einnig létt­vín og bjór og er vin­sælt að taka með sér drykk ofan í böðin.“

Bjóðið þið hópum, stórum sem smáum, að koma og njóta bæði í dekur og veit­ingar? „Það eru allir vel­komnir til okkar og hafa hópar verið dug­legir að koma jafnt sumar sem vetur. Næg gist­ing er í boði á svæð­inu og það er vin­sælt hjá starfs­manna­hópum að koma í sveit­ina og njóta Jarð­bað­anna og alls þess sem þetta fal­lega svæði hefur upp á að bjóða.“

Einnig er boðið upp á vin­sæla við­burði í Jarð­böð­unum.  „Við höfum verið dug­leg að bjóða upp á við­burði sem gestir geta notið á meðan þeir baða sig, en Emmsjé Gauti hefur komið tvisvar sinnum og spilað hjá okkur. Daði Freyr kom í sumar og fleiri lista­menn hafa haldið tón­leika hér í Jarð­böð­unum. Næsti við­burður er Jóla­sveina­baðið sem verður þann 8. des­em­ber en þá koma jóla­svein­arnir úr Dimmu­borgum í heim­sókn og fara í sitt árlega bað. Við hvetjum alla til að koma og sjá þá bræður fara á kostum í jóla­bað­inu,“ segir Heiða og brosir.

„Við höfum verið dug­leg að bjóða upp á við­burði sem gestir geta notið á meðan þeir baða sig.“

Besti tím­inn til að fara í Jarð­böðin? „Á sumrin er magnað að upp­lifa mið­næt­ur­sól­ina í böð­unum en minn upp­á­halds­tími er á vet­urna. Það er ein­stakt að vera hér yfir hávetur þegar það er mikið frost, snjór allt um kring og sjá norð­ur­ljósin og stjörn­u­rnar dans­andi á himn­inum.“

Í sam­starfi við Jarð­böðin við Mývatn
Myndir / Úr safni Jarð­bað­anna við Mývatn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur