Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Átta merki um að hjónabandið endist ekki

Átta merki um að hjónabandið endist ekki
||

Ljós­mynd­arar eyða gíf­ur­legum tíma með brúð­hjónum, bæði fyrir og eftir athöfn­ina, og mynda hjónin á sínum ein­læg­ustu og fal­leg­ustu stundum.

Vefsíðan Huffington Post fékk nokkra ljós­mynd­ara til að ausa úr visku­brunni sínum og segja frá hvernig þeir sjá að hjóna­bönd eiga ekki eftir að end­ast að þeirra mati.

1. Annar aðilinn hefur engan áhuga á myndatökum

„Það hafa ekki allir áhuga á mynda­tökum. Í raun hitti ég oft kúnna þar sem mað­ur­inn hefur áhuga á öllu nema að vera ljós­mynd­aður á brúð­kaups­dag­inn. Sem betur fer vita þessir menn að ljós­myndun er mik­il­væg fyrir maka þeirra þannig að þeir taka þátt af fúsum og frjálsum vilja. En það er ekki alltaf svo­leiðis. Snemma á ferli mínum réð brúð­gumi mig í gegnum síma. Þegar ég kom í brúð­kaupið og kynnti mig fyrir brúð­inni benti hún á mynda­vél­ina mína og sagði: Ekki benda þessu hel­víti að mér í dag! Það gerði þetta að frekar erf­iðum degi. Þau skildu þremur mán­uðum síðar. Ég held að vilj­inn til að taka þarfir maka þíns til greina með gleði í hjarta sé lyk­ill­inn að löngu sam­bandi. Og það felur meðal ann­ars í sér að taka fagn­andi á móti ljós­myndun þó það sé ekki í upp­á­haldi hjá þér.“

– Rob Greer, brúð­kaups­ljós­mynd­ari í Los Angeles.

2. Meiri en 20% gesta afboða sig í brúðkaupið

Það er slæmt ef að aðilar nánir brúð­hjón­unum ríf­ast allan tím­ann.

„Það er vana­legt að 10-15% af gest­unum geti ekki mætt í brúð­kaupið en þegar það hlut­fall fer yfir 20-25% ætt­irðu að líta þér nær. Það er merki um að vinir þínir og fjöl­skylda viti að þetta á aldrei eftir að ganga! Það er sorg­legt, en svo satt. Ég mynd­aði einu sinni brúð­kaup þar sem parið bauð 250 gestum, borg­aði fyrir að minnsta kosti 200 í mat og aðeins 60 manns mættu. Þetta sama par spurði mig hvort mig lang­aði til að bjóða eig­in­konu minni og börnum í veisl­una því þau hefðu borgað fyrir allan þennan mat og eng­inn kom! Ég fékk að vita það nýlega að þau væru skilin.“

– Brian Delia, eig­andi Brian Delia Pho­tography í Clifton.

3. Sambandið er þvingað

„Það er slæmur fyr­ir­boði þegar ég er að mynda par og annað þeirra þarf að bæta upp áhuga­leysi hins aðil­ans. Kannski hafa þau skoðað hund­ruði mynda á net­inu og vilja að brúð­kaups­mynd­irnar líti alveg eins út og mynd­irnar á Pinter­est. Því miður spáðu þau ekki í hvernig sam­bandið þeirra væri í þess­ari sýn sinni. Stundum vantar bara nátt­úru­lega nánd og til­finn­inga­leg tengsl. Of oft er ein­blínt á að fá góða mynd til að deila á sam­fé­lags­miðlum. Pörin hafa minni áhyggjur af því að leyfa ljós­mynd­ar­anum að mynda ást­ina í sínu hrein­asta formi. Það er erfitt að horfa uppá par sem er svona aug­ljós­lega ekki í tengslum við hvort annað.“

– Gretchen Wakeman, brúð­kaups­ljós­mynd­ari í Scottsdale.

4. Vinirnir hnakkrífast

„Það er slæmt merki þegar það eru stans­laust rifr­ildi og drama í brúð­ar­hópnum. Hér er dæmi: Á leið í eitt brúð­kaup, þegar voru tíu mín­útur þar til ég kæmi á stað­inn, fékk teymið mitt sím­tal. Það var brúð­urin að segja okkur að búið væri að aflýsa brúð­kaup­inu. Hún var bitur og sagði okkur að fólki kæmi ekki saman og aðilar innan brúð­ar­hóps­ins og æsku­vinir væru að ríf­ast. Hún minnt­ist á að svara­mað­ur­inn hefði sofið hjá aðal­brúð­ar­meyj­unni, sem var gift. Það voru stymp­ingar á milli strák­anna og þetta var algjör ringul­reið. Við vitum ekki hvort þau eru enn saman, en ég ímynda mér að svo sé ekki.“

– Matt Adcock, með­stofn­andi Del Sol Pho­tography í Playa del Carmen.

5. Parið er ekki á sömu blaðsíðu er varðar fjármál

„Ég ætla að kalla þetta par T og M þannig að við nefnum þau ekki á nafn. Þegar ég gekk inn í stúd­íóið mitt til að kynna fyrir þeim af hverju þau ættu að velja mig sem ljós­mynd­ara, spurði T hvort hún gæti farið á sal­ernið. Er hún gekk í burtu sagði M við mig: Þetta brúð­kaup er að fara með mig á haus­inn. Við erum að eyða helm­ingi meiru en við ætl­uðum í byrjun. Peningar er mik­il­vægur þáttur í öllum hjóna­böndum og er oft orsökin fyrir því að þau end­ast ekki. Það var svo sann­ar­lega málið með þetta par. Þau skildu sex mán­uðum eftir að þau héldu æðis­legt brúð­kaup með rúm­lega 150 gestum.“

– Carlos G. Osorio, eig­andi Miami Photo í Miami.

6. Parið skýtur á hvort annað í myndatökunni

„Ég hef myndað rúm­lega þús­und brúð­kaup á ferli mínum og ég veit að þegar ég sé par að ríf­ast eða kít­ast yfir dag­inn að það muni bara versna og leiði lík­lega til skiln­aðar. Sum pör segj­ast bara vera að grín­ast í hvort öðru en það er yfir­leitt sann­leikur á bak við hvert skot eða grín. Það versta sem ég hef séð var brúður sem sagði við starfs­lið sitt: Ég er búin að fá nóg af því að kyssa hann. Mjög lúmsk, en afar djúpt og skipu­lagt. Brúð­gum­inn sagði ekki orð og ég hugs­aði: Vá, þetta er upp­hafið að enda­lok­unum.“

– Rob Greer.

7. Sambandið virðist aðeins vera byggt á líkamlegu aðdráttarafli

„Við höfum séð pör sem eru mjög ást­úð­leg og utan í hvort öðru allt kvöldið – og nú eru þau skilin. Ég man eftir einu brúð­kaupi þar sem ég var með mjög ungu og hraustu pari. Samband þeirra var mjög lík­am­legt og það var gaman að horfa á lík­ams­tján­ingu þeirra og hvernig þau höfðu sam­skipti við hvort annað. Í lok brúð­kaups­ins buðu þau mér að mynda þau í einka­her­bergi til að ná inni­legum og kyn­þokka­fullum myndum. Ég var í vafa hvort þau vildu að ég mynd­aði þau eða tæki þátt í leiknum. Það var skrýtin til­finn­ing og ég neit­aði kurt­eis­is­lega, kláraði vinn­una mína og fór heim. Þau skildu einu ári eftir brúð­kaupið.“

– Sol Tamargo, með­stofn­andi Del Sol Pho­tography í Playa del Carmen.

Það er vondur fyr­ir­boði ef brúð­hjónin eyða ekki tíma saman í veisl­unni.

8. Parið eyðir nánast engum tíma saman í veislunni

„Flest pör eru spennt fyrir veisl­unni eftir athöfn­ina. Stressið á brúð­kaups­dag­inn er farið og það er komið að því að hafa gaman og slappa af. Pörin eyða vana­lega kvöld­inu í að heilsa gestum, dansa og fagna gift­ing­unni. Þegar par fer hvort í sína átt­ina til að tala við gesti og skilur maka eftir á dans­gólf­inu svo klukku­tímum skiptir þá veldur það áhyggjum. Ég hef myndað alla veisl­una og aðeins náð nokkrum myndum af par­inu saman – og það er mjög slæmur fyr­ir­boði.“

– Gretchen Wakeman.

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco