Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Reyna að ná sambandi við Michelle Obama með myndbandi

Rúna Magn­ús­dóttir og Nick Haines gripu til nýstár­legra aðgerða við að ná sam­bandi við for­seta­frúna fyrr­ver­andi.

Reyna að ná sambandi við Michelle Obama með myndbandi
|
Rúna og Nick póst­uðu mynd­band­inu á þriðju­dag­inn

„Við þurftum alveg að taka hug­rekkispillu til að þora að gera þetta,“ segir Rúna Magn­ús­dóttir sem ásamt Nick Haines, félaga sínum í sam­tök­unum The Change Makers, hefur póstað mynd­bandi þar sem þau freista þess að ná sam­bandi við Michelle Obama, fyrr­ver­andi for­seta­frú Banda­ríkj­anna, til að fá hana til að skrifa inn­gang að bók sem þau hafa skrifað.

„Okkur leið eins og við værum að afhjúpa okkur með því að gera þetta mynd­band,“ segir Rúna. „En um leið vorum við að stíga út fyrir boxið. Við höfðum ekki hug­mynd um hvernig við ættum að ná sam­bandi við Michelle en svo fórum við að hugsa um kenn­ing­una um að við séum öll tengd, það sem kall­ast á ensku „Six degrees of separation“, og sam­kvæmt henni ætti að vera ein­hver sem þekkir okkur sem þekkir ein­hvern sem þekkir Michelle svo við ákváðum að gefa þessu séns og láta reyna á þessa kenn­ingu.“

Rúna og Nick póst­uðu mynd­band­inu á þriðju­dag­inn, en hafa enn ekki fengið við­brögð frá Michelle. Rúna seg­ist þó ekki vera búin að gefa upp von­ina. „Það má alveg segja að í hvert sinn sem ein­hver deilir mynd­band­inu á sam­fé­lags­miðlum þá opn­ist ný leið til að ná til hennar. Svo við sjáum bara til. Kannski svarar hún, kannski ekki.“

Spurð hvaða félags­skapur The Change Makers sé segir Rúna það vera hóp af fólki víðs­vegar um heim sem hafi sam­ein­ast um það að hvetja fólk til að stíga út fyrir boxin sem sam­fé­lagið setji fólk stöðugt í. Bókin sem hún og Nick voru að skrifa fjalli einmitt um það hvernig þessi box hamli okkur sem mann­eskjum.
„No more Boxes hreyf­ingin sprettur af því að við í The Change Makers vorum beðin um að taka þátt í pall­borðsum­ræðum hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum í mars síð­ast­liðnum. Þar var okkar hlut­verk að ræða hvað hægt væri að gera til að ná þessum 17 heims­mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir 2030. Þessi mark­mið lúta að sjálf­bærni, jafn­rétti kynj­anna og þar fram eftir göt­unum. Nið­ur­staða okkar var sú að það sem fyrst og fremst haml­aði allri þróun væri þessi eilífa árátta okkar mann­fólks­ins að setja okkur sjálf og alla aðra í fyr­ir­framá­kveðin box, hvort sem það snýr að kyni, kyn­þætti, bak­grunni, trú­ar­brögðum eða ein­hverju öðru. Það er alltaf verið að troða fólki í ein­hver box og afleið­ingin er sú að við nýtum ein­ungis brota­brot af þeim hæfi­leikum, mögu­leikum og eig­in­leikum sem hver mann­eskja kemur með á þessa jörð. Það bara gengur ekki lengur. Þannig að við ákváðum að vekja fólk til umhugs­unar um þessar hömlur sem við setjum á okkur og hvert annað og vekja fólk til vit­undar um það hvað það getur gert til þess að sú breyt­ing sem við viljum sjá í heim­inum í dag geti átt sér stað,“ segir Rúna og það er ljóst að þetta mál­efni er henni hjart­ans mál.

Þú getur lagt þitt að mörkum við að hjálpa Rúnu og Nick að ná sam­bandi við for­seta­frúna með því að kíkja á mynd­bandið og ekki sakar að end­ur­pósta því á sam­fé­lags­miðl­unum. Því eins og Rúna segir; það er aldrei að vita nema athygli Michelle vakni ef nógu margir pósta því.

Þeir sem vilja fylgj­ast með því hvernig Rúnu og Nick gengur að ná sam­bandi við frúna, eða bara kynna sér hvað þau eru að gera geta svo kíkt á síð­una þeirra.

https://www.nomoreboxesmovement.com/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco