Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Galdramaðurinn“ Bibi berst fyrir pólitísku lífi sínu

Hart er sótt að Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, að segja af sér eftir að lög­reglu­yf­ir­völd í land­inu mælt­ust til þess að hann yrði ákærður fyrir mútu­þægni og spill­ingu. Samhliða þessum ásök­unum reynir Net­anyahu að halda lífi í rík­is­stjórn sinni sem þykir mjög völt eftir að varn­ar­mála­ráð­herra lands­ins sagði af sér á dög­unum.

„Galdramaðurinn“ Bibi berst fyrir pólitísku lífi sínu
|||

Þetta er í þriðja skipti á þessu ári sem lög­regla mælist til þess að Net­anyahu verði ákærður en end­an­leg ákvörðun liggur hjá sak­sókn­ara. Er Net­anyahu gefið að sök að hafa sér­sniðið reglur á mark­aði til að hygla fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Bezeq sem er í eigu náins fjöl­skyldu­vinar. Í stað­inn var Net­anyahu lofað að vin­sæll net­mið­ill í eigu Bezeq myndi fjalla um hann og Söru eig­in­konu hans á jákvæðum nótum.

Sjálfur harð­neitar Net­anyahu ásök­unum á hendur sér og segir til­mæli lög­reglu ekki hafa neitt gildi.

Sjálfur harð­neitar Net­anyahu ásök­unum á hendur sér og segir til­mæli lög­reglu ekki hafa neitt gildi. Þetta mál og önnur séu runnin undan rifjum póli­tískra and­stæð­inga sinna sem geti ekki sigrað hann í kosn­ingum. Atburðir vik­unnar auka þó lík­urnar á því að boðað verði til kosn­inga fljót­lega. Fimm flokka sam­steypu­stjórn Net­anya­hus var að falli komin um miðjan nóv­em­ber eftir að varn­ar­mála­ráð­herr­ann Avigdor Lieberman sagði af sér og skildi rík­is­stjórn­ina eftir með aðeins eins þing­manns meiri­hluta á þingi. Harð­línu­flokk­ur­inn Jewish Home krafð­ist þess í kjöl­farið að fá varn­ar­málin í sínar hendur, að öðrum kosti myndi hann ganga úr rík­is­stjórn. Net­anyahu náði að halda stjórn­inni saman, á blá­þræði þó. Í umfjöllun Jerusalem Post um málið segir að þetta sé alvar­leg­asta atlagan að Net­anyahu til þessa og að ákvörðun sak­sókn­ara, hvort sem hann ákveði að ákæra eða ekki, geti haft var­an­leg áhrif á ísra­elsk stjórn­mál.

Spill­ing­ar­málin hrann­ast upp
Benjamin Net­anyahu, eða „Bibi“ eins og hann er oft kall­aður, fékk við­ur­nefnið „galdra­mað­ur­inn“ snemma á stjórn­mála­ferli sínum vegna hæfi­leika sinna til að koma sér út úr erf­iðum málum þótt heldur hafi gengið á inn­eign­ina í seinni tíð. Í þau skipti sem ásak­anir um spill­ingu bein­ast ekki að honum hafa þær beinst að eig­in­konu hans, Söru. Lúx­uslífs­stíll hennar hefur alloft valdi hneykslan, sam­an­ber þegar hún lét skrif­stofu for­sæt­is­ráð­herr­ans borga sem nemur 12 millj­ónum króna í mat fyrir sig og fjöl­skyldu sína. Matinn pant­aði hún frá fræg­ustu kokkum Ísraels þrátt fyrir að hafa einka­kokk til umráða. Nafn Söru kemur oftar en ekki fyrir í rann­sóknum lög­reglu.

Í fyrra mál­inu þáðu for­sæt­is­ráð­herra­hjónin gjafir fyrir þús­undir doll­ara frá Hollywood-fram­leið­and­anum Arnon Milchan og aust­ur­ríska millj­arða­mær­ingnum James Packer.

Vindlar, skart­gripir og kampa­vín
Í febr­úar mælt­ist lög­reglan til að Net­anyahu yrði ákærður í tveimur aðskildum spill­ing­ar­málum.

Hjónin þáðu meðal ann­ars vindla, skart­gripi og kampa­vín í boði þeirra Milchan og Packer. Í stað­inn lagði Net­anyahu til að fram­lengja skattaí­viln­anir til handa brott­fluttum Ísraelum sem Milchan hefði hagn­ast per­sónu­lega á. Fjár­mála­ráðu­neytið stöðv­aði fyr­ir­ætl­anir Net­anya­hus og sagði ekk­ert vit í þeim. Í síð­ara mál­inu voru birtar upp­tökur þar sem Net­anyahu ræddi við útgef­anda dag­blaðs sem vildi að for­sæt­is­ráð­herr­ann beitti sér fyrir því að hann tak­mark­aði útbreiðslu helsta sam­keppn­is­að­il­ans. Í stað­inn áttu Net­anyahu og eig­in­kona hans að fá jákvæða umfjöllun.

Heltekin af jákvæðri fjöl­miðlaum­fjöllun
Í þriðja og nýjasta spill­ing­ar­mál­inu er Net­anyahu sak­aður um að hafa á árunum 2014 til 2017, á þeim tíma sem hann gegndi emb­ætti fjar­skipta­ráð­herra sam­hliða for­sæt­is­ráð­herra, aðstoðað vin sinn og eig­anda Bezeq við að yfir­taka sam­keppn­is­að­il­ann Yes. Bezeq greiddi marg­falt yfir­verð fyrir Yes en gerði jafn­framt eig­anda Bezeq kleift að stinga tugum millj­óna doll­ara í vas­ann, meðal ann­ars fyrir til­stilli ákvarð­ana sem teknar voru af Net­anyahu. Fyrir vikið fjall­aði net­mið­ill­inn Walla ítrekað um Net­anyahu og eig­in­konu hans í jákvæðu ljósi. Hafa bæði núver­andi og fyrr­ver­andi blaða­menn mið­ils­ins upp­lýst hvernig fréttum sem þóttu ekki nægi­lega jákvæðar var breytt eða þær hrein­lega fjar­lægðar.

Í þau skipti sem ásak­anir um spill­ingu bein­ast ekki að Net­anyahu hafa þær beinst að eig­in­konu hans, Söru.

Málin sem ekki var ákært fyrir
Þau eru fleiri spill­ing­ar­málin sem for­sæt­is­ráð­herr­ann hefur verið bendl­aður við en end­uðu ekki með ákæru. Einn ráð­gjafa hans var grun­aður um að hafa mútað dóm­ara til að fá rann­sókn á Söru Net­anyahu fellda niður. Málið var fellt niður í októ­ber vegna skorts á sönn­un­ar­gögnum. Í öðru máli var per­sónu­legur lög­maður Net­anya­hus og frændi, ásamt þremur öðrum úr innsta hring hans, ákærðir fyrir mútu­þægni í tengslum við millj­arða kaup á bátum og kaf­bátum frá Þýska­landi. Net­anyahu slapp við ákæru en var yfir­heyrður í tengslum við málið.

Fleyg ummæli

„Net­anyahu og félagar hans skiptu sér ítrekað og aug­ljós­lega af því efni sem birt­ist á vef­síðu Walla News og leit­uð­ust við að hafa áhrif á ráðn­ingar æðstu starfs­manna (rit­stjóra og blaða­manna).“
Úr yfir­lýs­ingu lög­regl­unnar í tengslum við þriðja spill­ing­ar­málið.

„Það verður ekk­ert því það er ekk­ert.“
Benjamin Net­anyahu býst ekki við neinum ákærum þótt lög­regla hafi mælt með því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco