Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jólamyndir úr ýmsum áttum

Á mörgum heim­ilum er hefð fyrir því að skella jóla­mynd í tækið að minnsta kosti einu sinni á aðvent­unni. Misjafnt er hverslags myndir verða fyrir val­inu, sígildar myndir, gam­an­myndir, drama, ævin­týri nú eða eða bara hasar­mynd. Hér eru dæmi um nokkrar góðar.

Jólamyndir úr ýmsum áttum
Bing Crosby og Fred Astaire ásamt Marjorie Reynolds í Holiday Inn.

Sígildar og svart­hvítar
Ekkert jafn­ast á við svart­hvítu Hollywood-mynd­irnar til að ná allri fjöl­skyld­unni saman. Kyn­slóð­irnar saman í jólafíl­ing fyrir framan sjón­varpið: amma og afi, mamma og pabbi og börnin.

Ein klass­ísk er Holiday Inn sem skartar hvorki meira né minna en tveimur stór­stjörnum þessa tíma, Bing Crosby og Fred Astaire, og í henni heyrð­ist vin­sæla jóla­lagið White Christmas fyrst.

Aðrar sígildar jóla­myndir eru: It’s a Wonderful Life, White Christmas og Miracle on 34th Street.

Hlegið og grátið
Sumir vilja horfa á gott fjöl­skyldu­drama um jólin. Aðrir grín. Family Stone er hæfi­leg blanda af hvoru­tveggja en þar fylgj­umst við með hrak­fara­jólum Stone-fjöl­skyld­unnar. Elsti son­ur­inn, Everett, hefur boðið kær­ustu sinni, Meredith, heim um jólin með það fyrir augum að biðja hennar yfir hátíð­arnar með glæsi­legum hring. Hún passar þó engan veg­inn inn í fjöl­skyld­una svo eftir því sem líður á hátíð­ina renna tvær grímur á Everett og hann er ekki viss hvort hann vilji enn þá gift­ast Meredith. Af öðrum­hrak­fara-jóla­myndum má nefna Home for the Holidays og National Lampoons Christmas Vacation.

Hasar yfir hátíð­arnar
Jóóóóla hvað? Það koma tímar í des­em­ber þar sem maður fær alveg nóg af öllu jóla­stúss­inu og þá er gott ráð að skella góðri hasar­mynd í tækið. Merki­legt nokk eru til þó nokkrar spennu­myndir sem ger­ast á jól­unum og hetj­urnar þurfa oftar en ekki að bjarga öllu áður en jóla­bjöll­urnar hringja inn hátíð­ina. Ein þekktasta hasar­hetja seinni ára er lík­lega John McClane úr Die Hard-mynd­unum og í fyrstu mynd­inni þarf hann að bjarga jól­unum úr klóm fégráð­ ugra hryðju­verka­manna.

Aðrar góðar spennu­myndir sem ger­ast um jólin eru: Lethal Weapon, Kiss Kiss Bang Bang og Batman Returns.

Höfundur: Hildur Frið­riks­dóttir

Aðalmynd: Bing Crosby og Fred Astaire ásamt Marjorie Reynolds í Holiday Inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur