Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Bakaði þúsund bollakökur

Thelma Þor­bergs­dóttir starfar sem félags­ráð­gjafi en matur spilar samt stórt hlut­verk í lífi hennar þar sem hún heldur úti mat­ar­bloggi og bloggar auk þess reglu­lega á vef­svæð­inu gottimat­inn.is sem er starf­rækt af Mjólk­ur­sam­söl­unni.

Bakaði þúsund bollakökur
VI1703026652, Thelma Þor­bergs­dóttir, Gott í mat­inn, blogg, batur, blogg­ari, Aldís Páls­dóttir, mat­reiðslu­bók, kökur, sætt, Hildur Frið­riks­dóttir
Thelma Þor­bergs­dóttir félags­ráð­gjafi heldur úti vin­sælu mat­ar­bloggi.

Að þessu sinni deildi hún með okkur nokkrum góm­sætum en þægi­legum upp­skrifum að eft­ir­réttum.

 Hvað starfarðu og hvaða verk­efni fæstu við um þessar mundir?
Ég er félags­ráð­gjafi hjá Fjöl­skyldu­þjón­ustu Hafn­ar­fjarðar. Helstu verk­efnin sem ég fæst við um þessar mundir er að und­ir­búa mig undir komu nýs barns sem á að fæð­ast í byrjun maí.

Hvað var það fyrsta sem þú lærðir að elda?
Sósur, ég er algjör sósu­kona og kon­urnar í minni fjöl­skyldu gera bestu sósur í heimi.

Ertu jafn­víg á bakstur og matseld?
Já, mér finnst jafn­skemmti­legt að baka og elda.

Höfðar ein­hver mat­reiðslu­hefð sér­stak­lega til þín?
Ég er rosa­lega hrifin af asískum mat og get borðað hrís­grjón í öll mál! Svo elska ég íslenskan mat, eins og lamba­kjötið okkar góða og allt sem hægt er að gera úr því.

Verstu mis­tök sem þú hefur gert í eld­hús­inu?
Ég held að ég verði að segja að það hafi verið þegar ég bak­aði svo svaka­lega háa brúð­artertu fyrir sjálfa mig sem stóð svo í heitu eld­hús­inu í salnum yfir nótt­ina. Hún hrundi og lá klesst við vegg­inn í eld­hús­inu dag­inn eftir. Fyrir mér var þessi full­komni dagur ónýtur en hann end­aði svo á að vera besti dagur lífs míns og ég gat hlegið að þessu seinna. Fólk fékk þó köku en hún var ekki fal­leg og í nokkrum pörtum en góð var hún sögðu gest­irnir, þeir hafa ekki þorað öðru!

Þegar ég var að byrja að baka og vinna sem mat­ar­blogg­ari hjá Gott í mat­inn fékk ég það verk­efni fyrir Metro að gera 1000 bolla­kökur fyrir hrekkja­vöku. Það var svona fyrsta og stærsta áskorun mín þegar ég byrj­aði í þessu öllu saman.

Hefur þú ræktað krydd- og/eða mat­jurtir?
Nei, ég er ekki alveg þar en mér var gefin chili-planta sem ég náði að drepa.

Hver er stærsta áskorun sem þú hefur mætt í elda­mennsku?
Þegar ég var að byrja að baka og vinna sem mat­ar­blogg­ari hjá Gott í mat­inn fékk ég það verk­efni fyrir Metro að gera 1000 bolla­kökur fyrir hrekkja­vöku. Það var svona fyrsta og stærsta áskorun mín þegar ég byrj­aði í þessu öllu saman.

Hvað færðu þér á pizzu? Pepp­eróní, rjóma­ost og rauð­lauk.

Upp­á­halds­mat­reiðslu­þættir? Mér finnst mjög gaman að horfa á Lorraine Pascale, það er allt svo fal­legt hjá henni eitt­hvað.

Blogg­síða: freist­ing­arthelmu.blog­spot.com og heima­síða Gott í mat­inn, er mat­ar­blogg­ari þar.

______________________________________________________________

Marens-mess í skál

Marens-mess í skál slær alltaf í gegn.

Kost­irnir við þennan rétt eru þeir að hann slær alltaf í gegn, þú getur sloppið algjör­lega við bakstur og það skiptir ekki máli hvernig þú setur hann saman, hann er alltaf jafn­góður.

1 mar­engs­botn

1 lítri rjómi

300 g jarð­ar­ber

300 g blá­ber

Æði­bita­kassi

Nóa kropp

súkkulað­isíróp

Þeytið rjómann þar til hann verður stífur og stendur, passið ykkur þó að þeyta hann ekki of mikið. Fyrir þennan rétt skiptir í raun­inni ekki máli í hvaða röð þið setjið hrá­efnið saman við rjómann og mar­ens­inn en gaman er að raða þeim í fal­lega skál og skreyta að vild. Gott er að setja rjóma í botn­inn á skál og setja svo mar­ens ofan á. Brytjið jarð­ar­berin niður í sneiðar eða litla bita og blandið saman við ásamt blá­berjum. Skerið Æðibita gróf­lega niður og blandið þeim saman við. Gott er að setja mar­ens­inn í byrjun og svo í lokin. Skreytið með rjóma og súkkulað­isírópi ásamt Nóa kroppi. Geymið í kæli, einnig er gott að setja mar­ens­inn í frysti í 30 mín­útur áður en rétt­ur­inn er bor­inn fram.

______________________________________________________________

Brownie með saltaðri karamellu

Upp­skriftin er frekar stór og auð­velt er að helm­inga hana. Hún er þó ekki lengi á veislu­borð­inu því hún klár­ast yfir­leitt.

Botn

200 g salt­kringlur eða salt­stangir

150 g smjör

2 msk. dökkur púð­ur­sykur

Hitið ofn­inn í 200°C og setjið smjör­pappír í bök­un­ar­form sem er um 20×30 cm að stærð. Mjög mik­il­vægt er að hafa smjör­pappír í botn­inum og aðeins upp fyrir brún­irnar svo hægt sé að ná kök­unni upp úr form­inu sem best.

Setjið salt­kringl­urnar í mat­vinnslu­vél og gróf­hakkið þær. Bræðið smjör og hellið saman við ásamt púð­ur­sykrinum og látið mat­vinnslu­vél­ina vinna vel þar til allt hefur bland­ast vel saman. Setjið salt­kringlu­blönd­una ofan í formið og þrýstið vel niður í botn­inn. Bakið botn­inn í 7 mín., takið formið út og kælið á meðan þið und­ir­búið kök­una.

Brownie

320 g smjör

600 g sykur

Brownie með kara­mellu – ekki reikna með að hún verði lengi á veislu­borð­inu.

170 g kakó

½ tsk. salt

4 egg

2 tsk. vanillu­dropar

120 g hveiti

1 tsk. lyfti­duft

Lækkið hit­ann á ofn­inum niður í 180°C fyrir kök­una. Setjið smjör í pott og bræðið yfir lágum hita. Þegar helm­ing­ur­inn af smjör­inu er bráðn­aður bætið þá kakói, sykri og salti saman við. Hrærið allt vel saman og passið ykkur að láta blönd­una alls ekki sjóða. Blandan má einnig ekki vera of heit þegar eggin eru sett saman við. Bætið eggjum saman við, einu í einu, og hrærið vel á milli. Setjið vanillu­dropa saman við og hrærið. Setjið því næst hveiti saman við og hrærið vel saman þar til blandan verður mjúk og slétt.

Hellið blönd­unni yfir salt­kringlu­botn­inn og bakið í 30 mín. eða þar til tann­stöng­ull kemur næstum því hreinn upp úr miðju kök­unnar. Það er allt í góðu og bara betra ef kakan er aðeins blaut þegar hún er tekin út úr ofn­inum. Takið kök­una út og kælið á meðan þið und­ir­búið kara­mell­una.

Söltuð karamella

400 g sykur

170 g smjör

240 ml rjómi

1 tsk. vanillu­dropar

½-1 tsk. salt (sjáv­ar­salt)

Setjið sykur í pott yfir með­al­háum hita og hrærið stans­laust með við­arsleif. Sykurinn fer í harða köggla en það lag­ast þegar hann hitnar frekar og verður að vökva. Hrærið stans­laust og passið að syk­ur­inn brenni ekki við. Þegar syk­ur­inn hefur bráðnað alveg og er orð­inn gull­in­brúnn að lit, bætið þá smjöri saman við og hrærið vel. Blandið því næst rjóm­anum var­lega saman við í smáum skömmtum og hrærið vel. Takið pott­inn af hell­unni og blandið vanillu­dropum og salti saman við. Leyfið kara­mell­unni að kólna þar til hún hefur náð stofu­hita áður en þið setjið hana yfir kök­una. Hellið kara­mell­unni yfir kök­una, myljið sjáv­ar­salt yfir kara­mell­una og setjið inn í ísskáp. Kælið kök­una í rúm­lega 2 klst. áður en þið berið hana fram. Gott er að nota beittan hníf til þess að skera með­fram köntum forms­ins svo auð­veld­ara verði að ná henni upp úr form­inu, skerið í litla bita.

______________________________________________________________

Skyr með lakkrísbragði og piparmöndlum

Ein­stak­lega ferskur og góður skyreft­ir­réttur sem tekur engan stund að gera.

Ein­stak­lega ferskur og góður skyreft­ir­réttur sem tekur engan stund að gera.

fyrir 4-6

400 g KEA-skyr með lakk­rís­bragði

½ lítri rjómi

2 msk. flór­sykur

súkkulað­isíróp

pip­ar­möndlur

Þeytið rjóma þar til hann er orð­inn stífur og stendur. Blandið helm­ingnum af rjóm­anum saman við skyrið og hrærið vel saman.

Sprautið súkkulað­isírópi með­fram könt­unum á des­ert­glasi eða -skál og látið leka niður. Sprautið skyr­blönduni ofan í glösin.

Sprautið því næst rjóm­anum ofan á ásamt gróf­söx­uðum pip­ar­möndlum. Geymið í kæli þar til borið er fram.

Höfundur / Hildur Frið­riks­dóttir
Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur