Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Á vappi um Víknaslóðir

Göngu­ferðir á Víkna­slóðum hafa auk­ist mikið á und­an­förnum árum enda um að ræða eitt best skipu­lagða göngu­svæði á Íslandi.

Á vappi um Víknaslóðir

Ef þig langar að ganga um svæðið næsta sumar og gista í skálum á leið­inni þarf að hafa hraðar hendur því gisti­plássin eru fljót að fara.

Hægt er að vera með alls konar útfærslur á göngu­ferðum á Víkna­slóðum og þær geta tekið frá einum degi upp í að vera margra daga ferð. Gott kort er til af leið­unum og búið að stika þær helstu. Þó að alltaf sé skemmti­legt að fá leið­sögu­mann í svona ferðir til að fá allar sög­urnar af svæð­inu beint í æð er það ekki nauð­syn­legt fyrir vana göngugarpa. Með leið­sögu­manni er einnig hægt að taka alls­konar útúr­dúra frá hinum stik­uðu göngu­leiðum og skoða þannig fleiri áhuga­verða staði.

Göngu­ferðir eru holl og góð skemmtun sem nýtur sívax­andi vin­sælda hjá fólki á öllum aldri.

Á svæð­inu eru þrír skálar á vegum Ferða­fé­lags Fljóts­dals­hér­aðs, í Breiðu­vík, Húsavík og Loð­mund­ar­firði. Þeir eru virki­lega vel útbúnir með eld­un­ar­að­stöðu, vatns­kló­settum og sturtum og hit­aðir upp með timb­ur­kamínu. Einnig eru góð tjald­svæði. Yfir sum­arið er skála­vörður í hverjum skála sem sér um að allt sé í röð og reglu. Með því að ger­ast félagi í Ferða­fé­lagi Íslands eða ein­hverju af aðild­ar­fé­lögum þess má fá mun ódýr­ara verð á gist­ingu.

Vinsælt er að ganga Víkna­slóðir á nokkrum dögum með því að byrja á Borg­ar­firði eystra og enda á Seyð­is­firði – eða öfugt. Sé byrjað á Seyð­is­firði er gengið um Hjá­lár­dals­heiði sem á árum áður var aðal­leiðin milli fjarð­anna tveggja. Vaða þarf tvær óbrú­aðar ár en brú er á Fjarðará í Loð­mund­ar­firði við Svæ­ar­enda. Einnig er hægt að fara Árna­staða­skörð en það er tölu­vert bratt­ari leið. Margt fal­legt er að sjá í Loð­mund­ar­firði og eftir að búið er að koma sér fyrir í Ferða­fé­lags­skál­anum er til­valið að skoða Klypps­staða­kirkju og foss­inn innan við hana.

Frá Loð­mund­ar­firði er ann­að­hvort hægt að fara beint til Borg­ar­fjarðar um Kækju­skörð eða halda áfram til Húsa­víkur um Nesháls. Sú göngu­leið er frekar stutt og létt og fyrir lengra komna og hópa með leið­sögu­mann er hægt að fara upp úr firð­inum við Stakka­hlíð­ar­skriður og upp Skúm­hatt­ar­dal og yfir í Húsavík sunnan Skúm­hattar. Húsa­vík­ur­skáli er stað­settur innst í fal­legum dalnum en niðri við sjó­inn er Húsa­vík­ur­kirkja, hana er nauð­syn­legt að heim­sækja.

Frá Húsa­vík­ur­skála er hægt að halda áfram nokkrar leiðir. Ein liggur um Gunn­hild­ar­dal austan Hvít­serks og Leir­fjalls og yfir í Breiðu­vík. Einnig er hægt að fylgja veg­inum yfir Húsa­vík­ur­heiði og fara yfir í Borg­ar­fjörð eða yfir Víkna­heiði, norðan Hvít­serks, og þá leið­ina í Breiðu­vík. Vilji fólk taka skemmti­legan útúr­dúr á þessa leið þá er virki­lega gaman að ganga á Hvítserk sem hefur að geyma stór­kost­legar hraun­mynd­anir.

Þó að alltaf sé skemmti­legt að fá leið­sögu­mann í svona ferðir til að fá allar sög­urnar af svæð­inu beint í æð er það ekki nauð­syn­legt fyrir vana göngugarpa. Með leið­sögu­manni er einnig hægt að taka alls­konar útúr­dúra frá hinum stik­uðu göngu­leiðum og skoða þannig fleiri áhuga­verða staði.

Í Breiðu­vík eru enn kross­götur og um ýmsar leiðir að velja. Hægt er að ganga bíl­veg­inn yfir Gagn­heiði til Borg­ar­fjarðar eða halda áfram til Brúna­víkur. Á leið­inni er farið fram hjá Kjólsvík og Hvalvík en á milli þeirra er hið víð­fræga fjall Glett­ingur og Glett­inga­nes. Það er eitt­hvað óvið­jafn­an­lega töff við að ganga á Gletting eða fara út að vit­anum á Glett­inga­nesi. Mæli með öðru hvoru, eða hvoru tveggja. Að lokum er hægt að fara til Borg­ar­fjarðar yfir Brúna­vík­ur­skarð eða Hof­strand­ar­skarð.

Frá mörgum stöðum í göng­unni blasa Dyr­fjöllin við í allri sinni dýrð. Að auki má sann­ar­lega mæla með göngu á þau sem og í Stórurð, Stapavík og Njarðvík.

Grein­ar­góðar upp­lýs­ingar um allar göngu­leið­irnar, skála, leið­sögn, útbúnað, öryggi, trúss og fleira eru á heima­síð­unni borg­ar­fjordur­eystri.is.

Höfundur / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Mynd / Helgi M. Arn­gríms­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur