Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Mikilvægasta í þessu öllu að umvefja þær ótæmandi elsku“

Á Íslandi finn­ast fjöl­skyldur af öllum stærðum og gerðum.

„Mikilvægasta í þessu öllu að umvefja þær ótæmandi elsku“

Anna Þór­hildur I. Sæmunds­dóttir, Sigríður Eir Zophoníasardóttir og dætur þeirra tvær eru ein gerð hinsegin fjöl­skyldu. Þær voru báðar stað­ráðnar í því að eign­ast börn þegar þær kynnt­ust og voru ekki lengi að láta verða af því. Við ræddum við þær um ólík móð­ur­hlut­verk, vegg­ina sem þær hafa rek­ist á innan kerf­is­ins, pabba­leysið og fleira.

Sigríður Eir og Anna Þór­hildur, eða Sigga og Tótla eins og þær eru alla­jafna kall­aðar, segj­ast ekki hafa lent í miklu mót­læti varð­andi fjöl­skyldu­form þeirra.

Á und­an­förnum árum hefur orðið mikil fram­þróun í mál­efnum og rétt­indum hinsegin ein­stak­linga – ekki síst hvað varðar fjöl­skyldu­myndun, það er hjóna­bönd og barn­eignir. Það er þó tölu­vert í land og enn ber eitt­hvað á for­dómum og fáfræði í sam­fé­lag­inu.

Sigríður Eir og Anna Þór­hildur, eða Sigga og Tótla eins og þær eru alla­jafna kall­aðar, segj­ast ekki hafa lent í miklu mót­læti varð­andi fjöl­skyldu­form þeirra. Þær hafa þó rek­ist á nokkra veggi innan skrifræð­is­ins. „Það er svona eitt og annað í kerf­inu sem þarf að laga og ég held að allir séu sam­mála um hvaða atriði það séu, en það þarf bara að láta verða að því. Við þurfum til dæmis að skipt­ast á að vera pabb­inn á hinum ýmsum eyðu­blöðum. Eins þurftum við að ,,feðra“ börnin okkar í þjóð­skrá. Við erum ekki skráðar sjálf­virkt sem for­eldrar, eins og hjá gagn­kyn­hneigðum hjónum, heldur þurfum við í raun­inni að sækja um að verða það eftir að barnið fæð­ist og svo fram­vegis,“ segir Tótla.

„Okkar nærum­hverfi er kannski frekar verndað, flestir í kringum okkur eru upp­lýst og þenkj­andi fólk sem gerir ekki grein­ar­mun á okkur og öðrum fjöl­skyldum. Helst er það yfir­þyrm­andi áhugi Íslend­inga á erfða­málum og genateng­ingum og þá kannski klaufa­legar spurn­ingar í því sam­hengi,“ bætir Sigga við.

Eiga ekki pabba

Það voru einmitt þessar klaufa­legu spurn­ingar sem urðu til þess að Sigga birti pistil á Facebook þar sem hún tók það skýrt fram að dætur þeirra ættu ekki pabba. „Nú er Úa komin á þann aldur að hún heyrir og skilur nán­ast allt sem fram fer í kringum hana. Þannig er ringlandi fyrir hana að heyra spurn­ingar um pabba hennar og Eyrúnar þegar stað­reyndin er sú að þær eiga ekki pabba. Sumir virð­ast ekki skilja eða eru bara ekki búnir að átta sig á að sæð­is­gjaf­inn þeirra er ekki pabbi þeirra. Það að vera pabbi er félags­legt hlut­verk og pabbar hafa sömu skyldum að gegna og mæður, nema kannski rétt fyrstu vikur og mán­uði í lífi barns. Það er að engu leyti minna mik­il­vægt hlut­verk heldur en það að vera móðir. Við berum ein­fald­lega of mikla virð­ingu og of miklar vænt­ingar til föð­ur­hlut­verk­ins en svo að geta kallað sæð­is­gjafa föður,“ segir hún.

Þær skrif­uðu pistil­inn í sam­ein­ingu og ætl­uðu hann fyrir fólkið í kringum þær, sem þær umgang­ast dags­dag­lega, sem er með þeim í liði, fólk­inu sem þær langar að umgang­ast. Pistill­inn rataði síðan í fjöl­miðla og hristi aðeins upp í sam­fé­lags­um­ræð­unni. „Þetta var skrifað fyrir fólkið sem er með okkur í liði, við vorum ekki að reyna að sann­færa eða breyta skoðun neins. Okkur lang­aði að benda því á það hvernig orða­notkun, sem í flestum til­fellum er bara van­hugsuð sökum þekk­ing­ar­leysis, getur haft slæm áhrif á börnin okkar. Hjá þessu

„Við þurfum að skipt­ast á að vera pabb­inn á hinum ýmsum eyðu­blöðum. Við erum ekki skráðar sjálf­virkt sem for­eldrar, eins og hjá gagn­kyn­hneigðum hjónum, heldur þurfum við í raun­inni að sækja um að verða það eftir að barnið fæð­ist.“

fólki höfum við fengið frá­bærar við­tökur. Það eru ótal margir búnir að skrifa okkur eða koma að máli við okkur og þakka okkur fyrir að benda sér á þetta. Nú viti það eitt­hvað sem það vissi ekki fyrir og að þetta hafi verið mik­il­væg og góð áminnig. Auðvitað eru alltaf þessir fáu sem finna sig knúna til að segja eitt­hvað ljótt og vera dóna­legir en þeirra orð og skrif dæma sig sjálf og við ákváðum að eyða ekki einu penna­striki eða orku­dropa í svo­leiðis glóru­leysi,“ segir Tótla.

Ólík móðurhlutverk

Nú hafa Sigga og Tótla báðar gengið með barn, sem og verið for­eldrið sem styður við bakið á þeirri sem gengur með. Þó að bæði séu vissu­lega móð­ur­hlut­verk eru þau afar ólík á með­göngu, í fæð­ingu og fyrstu vik­urnar á eftir. Að því loknu bland­ast hlut­verkin meira saman og nú sinna þær báðar sömu hlut­verkum gagn­vart dætrum sínum.

„Það hent­aði mér betur að vera sú sem gengur með heldur en að vera stuðn­ings­að­il­inn, mér fannst það að mörgu leyti mjög erfitt hlut­verk. Þó svo að Tótla hafi verið miklu betri í því þá upp­götv­uðum við báðar að þetta hlut­verk að vera ,,hinn“ er mjög van­þakk­látt og lítið rætt. Oft er svo mik­ill fókus á með­göngu­móð­ur­ina að hinn gleym­ist og ég get ímyndað mér að hinn gleym­ist jafn­vel enn frekar ef hann er karl­maður. Við lentum til dæmis báðar í því að vera ekki óskað til ham­ingju með kom­andi barn af því það var ekki inni í okkar bumbu,“ segir Sigga.

Tótla er sam­mála og segir að sér hafi einmitt liðið betur sem stuðn­ings­að­il­inn. „Með­gangan mín var frekar erfið. Mér leið ekki vel og tókst á við hina ýmsu fylgi­kvilla. Mér þykir yfir­leitt betra að vera mann­eskjan í bak­grunn­inum, finnst athygli sem bein­ist of mikið að mér óþægi­leg. Mér fannst samt stór­kost­legt að fá að prófa þetta. Það eru algjör for­rétt­indi að geta búið til mann­eskju inni í sér og alls ekki sjálf­sagt. Það er magnað að finna hana vaxa og hreyfast innra með sér.“

Hvað varðar for­eldra­hlut­verkið þykir Siggu og Tótlu mik­il­vægt að þær séu lið, að þær standi saman og séu sam­kvæmar sjálfum sér.

Fæðingin sjálf reynir ekki síst á stuðn­ings­að­il­ann, en bæði Sigga og Tótla fæddu á heim­ili þeirra. „Líkami hins for­eldr­is­ins gerir ekk­ert til að hjálpa þeim í gegnum fæð­ing­una. Maður finnur fyrir hræðsl­unni og þreyt­unni marg­falt á við þann sem er að fæða. Þannig var alla­vega mín reynsla. Fæðingin mín tók rúma tvo sól­ar­hringa en Siggu einn og hálfan klukku­tíma. Ég var alveg að bug­ast undan bið­inni hjá mér en varð hrædd hvað þetta tók stuttan tíma hjá henni. Ljós­mæð­urnar rétt náðu til okkar áður en Sigga átti. Það var komin kollur niður, eng­inn kom­inn til okkar og ég held að ég hafi aldrei verið jafn­hrædd á ævinni. Þegar ég var að fæða var ég hins vegar bara í því hlut­verki og náði ein­hvern veg­inn að fara inn á við og loka á allt annað,“ segir Tótla.

„Já, ég var miklu þreytt­ari eftir fæð­ing­una hennar Tótlu en þegar ég var sjálf að fæða,“ bætir Sigga við. „Þegar Eyrún var komin í heim­inn fékk ég svo mikið spennu­fall og það hellt­ist yfir mig svo mikil þreyta að það leið næstum því yfir mig. Mig vant­aði allt end­or­fínið og adrena­línið til að hjálpa mér.“

Smellpössuðu saman

Þær kynnt­ust fyrir fjórum árum úti á líf­inu, eins og svo mörg pör. „Ég sá Tótlu á bar með vinum sínum snemma á laug­ar­dags­kvöldi og fannst hún sæt. Ég þorði samt ekki að nálg­ast hana þar og von­aði að ég myndi hitta á hana seinna um kvöldið, á eina hinsegin bar borg­ar­innar. Svo var hún auð­vitað þar að dansa með vinum sínum og ég safn­aði kjarki til að fara og dansa við hana,“ segir Sigga bros­andi.

Sigga er upp­alin á Hall­orms­stað og bjó fyrir austan þar til hún fór í Mennta­skól­ann í Hamra­hlíð. Þaðan lá leið hennar í Lista­há­skól­ann og útskrif­að­ist af sviðs­höf­unda­braut með milli­lend­ingu í trúða­skóla í Kaup­manna­höfn. „Í Lista­há­skól­anum kynnt­ist ég Völu Hösk­ulds­dóttur og stofn­aði með henni Hljóm­sveit­ina Evu sem hefur svo verið mitt aðal­starf síðan, sam­hliða útvarps­vinnu á Rík­is­út­varp­inu og fleira.“

Siggu og Tótlu finnst fólk hér á landi full­upp­tekið af erfðum og skyld­leika. Eitthvað hefur borið á því að fólk segi að Úlf­hildur og Eyrún séu hálf­systur.

Tótla ólst hins vegar upp í Vest­ur­bænum og fór í Kvenna­skól­ann. Hún hélt svo út til Flórens á Ítalíu þar sem hún lærði graf­íska hönnun. Þegar hún kom heim úr nám­inu fékk hún fljót­lega vinnu sem graf­ískur hönn­uður á frétta­stofu Stöðvar 2 og hefur unnið þar síðan.

„Ég myndi ekki segja að þetta hafi verið ást við fyrstu sýn. Við vorum báðar harð­á­kveðnar að við værum ekk­ert að leita okkur að sam­bandi en gátum ekki haldið okkur hvor frá annarri,“ segir Sigga.

Tótla kinkar kolli og tekur í sama streng. „Sigga er sú allra skemmti­leg­asta kona sem ég hef kynnst. Ég átt­aði mig fljót­lega á því að ég hafði aldrei kynnst neinum sem ég átti svona auð­velt með að umgang­ast mikið. Ég er gjörn á að fá óþol fyrir fólki eftir mikil sam­skipti en hef aldrei átt í erf­ið­leikum með að verja ótæpi­legu magni af tíma með Siggu – helst finnst mér vanda­mál að fá of lít­inn tíma með henni.“

Þótt þær hafi ekki beint verið að leita sér að sam­bandi voru barn­eignir þeim samt ofar­lega í huga. „Ég held það hafi verið í annað eða þriðja skiptið sem við hitt­umst þegar ég gekk úr skugga um að Tótlu lang­aði til að eign­ast börn í náinni fram­tíð. Við vorum báðar á þeim stað að okkur lang­aði ekki að eyða tíma í sam­band sem myndi ekki leiða til þess á end­anum að eign­ast börn,“ segir Sigga.

Þær komust líka fljótt að því að þær hefðu líkar hug­myndir um upp­eldi barna og hvernig fjöl­skyldu þær vildu eiga. „Þó að við hefðum verið mjög stutt saman þegar við ákváðum að búa til barn vorum við ákveðnar í því að þótt við myndum kannski ekki end­ast sem par værum við til­búnar að ala fal­lega upp barn saman,“ segir Tótla.

Allt eins og það átti að vera

Eftir að ákvörð­unin um að búa til barn hafði verið tekin fóru Sigga og Tótla að ræða mögu­leik­ana. „Ég sá það alltaf þannig fyrir mér þannig að fram­tíð­ar­konan mín myndi ganga með börnin. Ég var dálítið stressuð fyrir þessu og var mjög glöð með að Sigga skyldi vilja byrja. Þegar ég fylgd­ist svo með Siggu upp­lifa þetta varð ég mjög spennt, fannst allt svo magnað sem hún var að ganga í gegnum og var mjög heilluð af ferl­inu. Ég var með fjögur öpp í gangi þar sem ég fylgd­ist með þroska fóst­urs­ins og las fyrir hana úr bókum á kvöldin,“ segir Tótla. Sigga var mjög ánægð með þessa afstöðu Tótlu því að hún var búin að hlakka mikið til að ganga með barn. „Ég elskaði að vera ólétt og væri sko alveg til í að gera það aftur.“

„Ég myndi ekki segja að þetta hafi verið ást við fyrstu sýn. Við vorum báðar harð­á­kveðnar að við værum ekk­ert að leita okkur að sam­bandi en gátum ekki haldið okkur hvor frá annarri.“

Þær höfðu heyrt að það gæti verið þónokkur bið eftir því að kom­ast á Art Medica svo þær ákváðu að hringja strax og athuga með tíma í fram­tíð­inni. Þá bauð konan í sím­anum þeim að koma dag­inn eftir sem þær þáðu. „Tíða­hring­ur­inn minn var á mjög heppi­legum stað svo lækn­ir­inn sagði að okkur væri ekk­ert að van­bún­aði, við gætum komið aftur eftir um það bil tíu daga í upp­setn­ingu. Við bjugg­umst ekki við að þetta myndi ger­ast svona hratt og höfðum í raun­inni bara ætlað að kíkja til hennar til að fá upp­lýs­ingar. Við sögð­umst því þurfa að sofa á þessu en þegar við vökn­uðum dag­inn eftir fundum við að við áttum að kýla á þetta,“ segir Sigga.

Það reynd­ist rétt því Sigga varð ólétt í fyrstu til­raun og úr varð eldri dóttir þeirra, Úlf­hildur Katrín. „Við verðum sann­færð­ari um það á hverjum degi að við áttum að eign­ast akkúrat hana. Það þurfti svo aðeins fleiri til­raunir til að búa til Eyrúnu. Það var mjög erfitt, mikil von­brigði og ákveðið áfall í hverjum mán­uði þegar það gekk ekki, en svo gekk þetta að lokum og við erum jafn­sann­færðar um að við áttum að fá akkúrat hana,“ bætir Tótla við.

Systrakærleikur

Úlf­hildur verður þriggja ára í lok des­em­ber og mæður hennar lýsa henni sem ljúf­lyndum vargi. „Hún er ótrú­lega skap­andi og skemmti­leg. Hún þarf mikið að hreyfa sig og ókyrrist fljótt ef hún fær það ekki,“ segir Tótla. „Hún hefur svo ríkt ímynd­un­ar­afl að hún trúir oft sög­unum sem hún er að búa til fyrir okkur. Hún hefur farið að gráta undan ósýni­legu ljóni sem stökk út úr sögu sem hún var sjálf að segja. Einnig hefur komið fyrir að það var hákarl á milli her­bergj­anna okkar svo hún komst ekki yfir til okkar hjálp­ar­laust. Hún er einnig nýfarin að semja vísur sem lofa mjög góðu.“

„Hún er ótrú­lega blíð við litlu systur sína, leggst alltaf beint hjá henni þegar hún kemur úr leik­skól­anum og segir henni frá deg­inum sínum eða syngur fyrir hana. Þegar henni finnst sam­skiptin full ein­hliða talar hún líka fyrir systur sína með fynd­inni skrækróma rödd og lætur eins og þær séu að tala saman,“ segir Sigga.

Eyrún er aðeins þriggja mán­aða og sam­kvæmt Tótlu vita þær því ekki margt um hana enn þá. „Þó sjáum við strax að hún er mjög ákveðin og góð í að láta okkur vita hvað hún þarf. Hún er heldur ekk­ert að splæsa brosi eða spjalli á alla. Það er yfir­leitt fyrir nokkra útvalda og aðal­lega heim­il­is­fólkið. Hún er algjör snill­ingur í sam­skiptum og krefst þess að fá ríkan skerf af ein­beittri athygli. Hún er kannski stundum eitt­hvað pirruð en er ekki svöng, blaut eða þreytt. Þá vill hún að við sitjum með hana á hnjánum og horf­umst djúpt í augu, brosum hvor til ann­arrar og spjöllum saman.“

Þótt það sé ekki á dag­skrá alveg á næst­unni sjá Sigga og Tótla alveg fyrir sér að bæta við fjöl­skyld­una.

Eins og áður segir þykir þeim Siggu og Tótlu fólk hér á landi full­upp­tekið af erfðum og skyld­leika. Eitthvað hefur borið á því að fólk segi að Úlf­hildur og Eyrún séu hálf­systur. „Þær eru systur. Fæddar inn í sömu fjöl­skyldu og hafa alist upp hjá sömu mæðr­unum frá upp­hafi. Við sjáum ekki hvar hinn helm­ing­ur­inn ætti að koma ef þetta er að vera hálf. Það er eins og að segja að við séum báðar stjúp­mæður barn­anna okkar,“ segir Sigga.

„Það stingur líka svo­lítið þegar við erum spurðar hvort þær séu skyldar. Við vitum alveg hvað átt er við en þetta orð er líka félags­lega hlaðið og heppi­legra væri að spyrja um blóð­tengsl ef fólki finnst mik­il­vægt að vita hvernig blóð streymir um æðar þeirra. Ég held að Úlf­hildur gæti ekki fundið neina mann­eskju í heim­inum sem hún er jafn­skyld og systur sinni og þau tengsl sem mynd­ast hafa á milli þeirra nú þegar eru tengsl og skyld­leiki sem engin heims­ins gen eða blóð gæti styrkt enn frekar.“

Svipaðar mæður

Hvað varðar for­eldra­hlut­verkið þykir Siggu og Tótlu mik­il­vægt að þær séu lið, að þær standi saman og séu sam­kvæmar sjálfum sér. „Við ræddum þetta mikið þegar Úa var á leið­inni og höfum það að leið­ar­ljósi. Svo er auð­vitað ótal, ótal margt sem okkur langar að gera og inn­ræta börn­unum okkar – svo margt að oft virkar það yfir­þyrm­andi hversu mikil ábyrgð það er að ala upp barn, að móta ein­stak­ling og reyna að búa honum sem best nesti. Þá er gott að minna sig á að trú­lega er það mik­il­væg­asta í þessu öllu að umvefja dæt­urnar ótæm­andi elsku og minna þær á að þær eru nóg, alveg eins og þær eru í öllum aðstæðum, alltaf.“

Aðspurð hvernig mæður þær séu seg­ist Sigga vona að hún sé hlý, skiln­ings­rík og skemmti­leg, jafn­vel upp­á­tækja­söm, og að hún segi oftar já en nei. „Ég vona líka að ég sé þol­in­móð þó að það sé kannski helst það sem ég þarf að æfa mig í. Tótla er ótrú­lega hlý og góð mamma. Hún er bæði leik­fé­lagi og mjög góð í blíðum aga. Við erum að mörgu leyti frekar svip­aðar mæður því við erum svo sam­mála um hvað okkur finnst mik­il­vægt í upp­eld­inu.“

„Þó að við hefðum verið mjög stutt saman þegar við ákváðum að búa til barn vorum við ákveðnar í því að þótt við myndum kannski ekki end­ast sem par værum við til­búnar að ala fal­lega upp barn saman.“

„Ég held ég sé best í rólegum leik,“ segir Tótla. „Ég elska að lesa fyrir Úu, búa til og hlusta með henni á sögur. Ég reyni að hlusta á stelp­urnar mínar og mæta þeim þar sem þær eru staddar hverju sinni. Ég held að ég sé ást­rík en ákveðin og legg mikið upp úr því að hafa ramma þar sem er pláss fyrir mis­tök. Sigga er mjög dríf­andi og skemmti­legur upp­alandi. Hún er alltaf að búa til ný ævin­týri og er dug­leg að koma með tón­list inn í líf okkar, syngur mikið með og fyrir Úu. Hún er líka dug­leg að drífa okkur út í leið­angra þegar ég og Úa erum haugar og viljum helst liggja og glápa á teikni­myndir. Hún kennir okkur öllum að opna okkur og tala um til­finn­ing­arnar okkar. Mér finnst mik­il­vægt að stelp­urnar mínar séu sjálf­stæðar, kurt­eisar og ríkar af sam­kennd og ég vona að ég geti kennt þeim það. Ég vil að þær viti að þær geti gert hvað sem þeim dettur í hug og vona að þær fái ástríðu fyrir ein­hverju í líf­inu.“

Þótt það sé ekki á dag­skrá alveg á næst­unni sjá Sigga og Tótla alveg fyrir sér að bæta við fjöl­skyld­una. „Það er svona á seinna plani að eign­ast eitt barn til við­bótar eftir nokkur ár. Hvort sem það verður barn sem við göngum með, tökum í fóstur eða ætt­leiðum,“ segir Tótla að lokum.

Höfundur / Hildur Frið­riks­dóttir
Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir
Förðun / Hrafn­hildur Björk Run­ólfs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur