Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Spennandi að blanda saman ólíku hráefni

Ragnar Egilsson, fram­kvæmda­stjóri Hlemms, er mik­ill mat­gæð­ingur.

Spennandi að blanda saman ólíku hráefni
Ragnar Egilsson, fram­kvæmda­stjóri Hlemms, er mik­ill mat­gæð­ingur.

Ragnar töfrar fram fjöl­breytta en ein­falda rétti sem les­endur ættu allir auð­veld­lega að geta leikið eftir.

Hvað starfarðu og hvaða verk­efni fæstu við um þessar mundir? „Ég er fram­kvæmda­stjóri Hlemms og er mest að ein­beita mér að upp­bygg­ingu Mat­hall­ar­innar þessa dag­ana með því að styðja við þá frá­bæru rekstr­ar­að­ila sem hafa komið sér fyrir í hús­inu og und­ir­búa ýmiss konar spenn­andi við­burði.“

Hvað var það fyrsta sem þú lærðir að elda? „Það fyrsta sem ég man eftir var að gera eggja­köku fyrir pabba. Mér hefur alltaf fund­ist eitt­hvað spenn­andi við að taka alls konar mis­mun­andi hrá­efni og blanda því saman og sjá hvað ger­ist. Ég hef líka gaman af því að gera þetta með fólk í partíum. Lengi vel var ég ekki mað­ur­inn sem þú tal­aðir við ef þú vildir heyra hvernig ætti að hafa hlut­ina ein­falda og leyfa hrá­efn­inu að skína því mexíkóskar kássur með ótal inni­halds­efnum hafa alltaf höfðað meira til mín. En ég er að verða ein­fald­ari með árunum, í öllum skiln­ingi orðs­ins.“

Ertu jafn­vígur á bakstur og matseld? „Mér fannst skemmti­legra að baka þegar ég fór fyrst að búa einn, trú­lega því þar er allt mælt svo nákvæm­lega. Eftir því sem maður varð örugg­ari með sig í eld­hús­inu sá ég að matseldin átti meira við mig. Góður bakstur er heldur ekk­ert djók.“

Höfðar ein­hver mat­reiðslu­hefð sér­stak­lega til þín? „Erfið spurn­ing. Áður­nefnd mexíkósk matseld, víetnömsk, japönsk og írönsk. Eig­in­lega höfðar öll matseld til mín en fram­andi hrá­efni, „fönkí“ bragð og sítrus koma oft við sögu.“

„Eig­in­lega höfðar öll matseld til mín en fram­andi hrá­efni, „fönkí“ bragð og sítrus koma oft við sögu.“

Verstu mis­tök sem þú hefur gert í eld­hús­inu? „Ég hef gert svo mörg mis­tök í eld­hús­inu að ég myndi ekki vita hvar ég ætti að byrja. Ætli þau nýj­ustu séu ekki að halda að ég gæti eldað eitt­hvað æti­legt þegar ég var ramm­stíflaður af haust­kvefi og með ekk­ert lykt­ar­skyn. Endaði með að nota svona þremur mat­skeiðum of mikið af salti í núðlu­rétt um dag­inn.“

Hefur þú upp­götvað ein­hverja snilld í matseld nýlega? „Bæta mat­ar­sóda í vatn með spag­hettí til að fá svip­aða áferð og á ramen-núðlum.

Svo var ég að fá send­ingu af þurrk­uðum rauðum berjum sem heita zereshk og eru mik­il­vægt hrá­efni í íranskri matseld, ég er enn að læra almenni­lega á þau.“

Hefur þú ræktað krydd- eða mat­jurtir? „Skessu­jurt, myntu, kórí­ander og gras­lauk. Er grút­lé­legur í garð­yrkju en mig dreymir um að bæta mig.“

Hver er stærsta áskorun sem þú hefur mætt í elda­mennsku? „Tahdig. Þetta er íranskur réttur. Hrís­grjón sem er leyft að brúnast og inni­heldur í grunn­inn bara vatn og hrís­grjón. Það er asna­legt hvað það er erfitt að ná þessu réttu.“

________________________________________________________________

UPPSKRIFTIR
Fyrstu tvær upp­skrift­irnar að spjótum eru frá Böðvari Lemack frá Kröst á Hlemmi – Mathöll.

Grillað lamba­spjót með kart­öflu­sal­ati.

Grillað lamba­spjót með kart­öflu­sal­ati
8 pinnar

Kart­öflu­salat
1 kg smælki
2 hvít­lauks­geirar
30 g greinar af fersku tímí­ani
klípa af salti
1 eld­pipar
1 dós sýrður rjómi
30 g saxað ferskt dill
1 msk. dijon-sinnep

Fyrstu fjögur inni­halds­efnin eru soðin saman þar til kart­öfl­urnar eru soðnar. Næstu þremur er blandað saman og kart­öfl­unum blandað við sós­una. Salt og pipar eftir smekk.

Lamba­spjót
800 g lamba-fil­let skorið í bita
1 bolli sojasósa
1 bolli dijon-sinnep
1 bolli púð­ur­sykur
1 bolli bals­amedik

Blandið saman sojasósu, sinn­epi, púð­ur­sykri og ediki og mar­inerið lambið í blönd­unni að lág­marki yfir nótt, helst yfir sól­ar­hring. Þræðið upp á spjót og grillið þar til til­búið.

Best er að bera pinn­ana fram með fersku, söx­uðu grænkáli og rabar­bara­sultu.

________________________________________________________________

Grillað risarækjuspjót með salsa

Grillað risa­rækju­spjót með salsa.

800 g risa­rækjur
2 stk. rauður eld­pipar, saxaður
3 saxaðir hvít­lauks­geirar
safi úr 4 límónum
3 msk. mat­ar­olía
salt og pipar eftir smekk

Öllu blandað saman og mar­inerað í 20-30 mín­útur. Þrætt upp á spjót og grillað.

Salsasósa
1 söxuð rauð parika
1 saxaður laukur
safi úr 4 límónum
2 stk. eld­pipar, fín­tsaxaður
30 g saxaður ferskur kórí­ander
30 g saxað ferskt dill
salt og pipar eftir smekk

Öllu blandað saman.

Eld­pip­ar­ma­jónes
1 msk. chili-mauk
200 g majónes

Blandið saman.

________________________________________________________________

Kirsuberja-clafoutis

Upp­skriftin að þessum klass­íska franska eft­ir­rétti kemur frá köku­gerð­ar­meist­ar­anum og mat­ar­blogg­ar­anum David Lebovitz. Með til­komu Costco er orðið sér­stak­lega auð­velt að finna góð kirsu­ber á sann­gjörnu verði. Bakstur ger­ist varla ein­fald­ari.

Kirsu­berja-clafoutis.

500 g kirsu­ber
3 stór egg
70 g hveiti
1 tsk. vanillu­dropar
⅛ tsk. möndlu­dropar
100 g strá­sykur og 50 g til við­bótar
330 ml nýmjólk
smjör­klípa til að smyrja bök­un­ar­disk

Hitið ofn­inn í 190ºC og smyrjið mótið. Fjar­lægið steina úr kirsu­berjum og dreifið jafnt yfir botn­inn á mót­inu. Blandið saman eggjum, hveiti, vanillu- og möndlu­dropum, 100 g af sykri og mjólk í hræri­vél. Deigið verður mjög þunnt. Hellið deig­inu yfir kirsu­berin og stráið 50 g af sykri yfir.
Bakið í 45 mín­útur.

________________________________________________________________

Granóla með norðurafrísku ívafi

Granóla með norð­ur­a­frísku ívafi.

180 g trölla­hafrar
180 g venju­legir hafrar
250 g gróf­saxaðar möndlur
50 ml mat­ar­olía, eða kókos­olía
130 ml hun­ang
1 tsk. flögu­salt
1 msk. heil kórí­and­er­fræ
börkur af hálfri sítrónu, í heilum renn­ingum
2 tsk. app­el­sínu­blóma­vatn
1 létt­þeytt eggja­hvíta
250 g fín­tsaxaðar þurrk­aðar apríkósur

Hitið ofn­inn að 160ºC og leggið bök­un­ar­pappír í ofn­skúffu. Blandið fyrstu þremur inni­halds­efn­unum saman í skál. Hitið olíu, hun­ang, salt, kórí­and­er­fræ og sítrónu­börk í litlum potti yfir lágum hita í 5-10 mín­útur. Takið hun­angs­blönd­una af hita, sigtið burt fræ og börk og hrærið app­el­sínu­blóma­vatni út í. Blandið hun­angs­blönd­unni vand­lega saman við hafra­blönd­una og bætið laus­þeyttri eggja­hvítu var­lega saman við.
Dreifið vel úr blönd­unni á bök­un­ar­pappír. Bakið í 30-40 mín. og hrærið af og til þar til granólað hefur tekið á sig lit. Leyfið granól­anu að kólna og blandið þurrk­uðum apríkósum vand­lega saman við.

Berið fram með góðri grískri jógúrt og örlitlu hun­angi.

App­el­sínu­blóma­vatn fæst til dæmis í tyrk­nesku sér­vöru­versl­un­inni Istanbul Market í Ármúla en þar fæst líka prýði­leg jógúrt af ýmsu tagi.

Umsjón / Íris Hauks­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una