Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Í hópnum urðum við heilar á ný

Vinkonur sem deila þeirri erf­iðu reynslu að hafa misst maka úr krabba­meini.

Í hópnum urðum við heilar á ný

Í jan­úar 2014 kynnt­ust þrettán konur í stuðn­ings­hópi í húsa­kynnum Krabba­meins­fé­lags­ins í Skóg­ar­hlíð. Allar höfðu misst maka sinn skömmu áður og voru komnar til að fá aðstoð og hand­leiðslu við að vinna úr sorg­inni. Þær stofn­uðu í kjöl­farið eigin hóp sem hitt­ist enn í dag. Við ræddum við fjórar þeirra, syst­urnar Auði Ingu og Guðrúnu Ein­ars­dætur, Ágústu Tóm­as­dóttur og Sigrúnu Gísla­dóttur, um hvernig hópa­starfið hefði hjálpað þeim í gegnum þessa erf­iðu reynslu.

Fundu strax að þær áttu góða sam­leið F.v. Sigrún Gísla­dóttir, Ágústa Tóm­as­dóttir og syst­urnar Auður Inga (sitj­andi) og Guðrún Ein­ars­dætur.

„Eftir fyrsta fund­inn voru flestar að hugsa um að koma ekki aftur, þetta reynd­ist okkur svo erfitt. En við létum okkur hafa það og eftir því sem við opn­uðum okkur meira og töl­uðum um sorg­ina varð þetta smám saman auð­veld­ara,“ segir Auður. Fund­ur­inn sem um ræðir var sam­vinnu­verk­efni sorg­ar­sam­tak­anna Nýrrar dög­unar og Ráð­gjaf­ar­þjón­ustu Krabba­meins­fé­lags­ins þar sem boðið var upp á sex vikna nám­skeið fyrir konur sem höfðu misst maka úr krabba­meini.

Þótt það hjálpi vissu­lega að ræða sín mál fannst kon­unum ekki síður hjálp í því að hlusta á hinar í hópnum. „Við deilum allar þess­ari sam­eig­in­legu reynslu, að missa maka okkar, og að hlusta á frá­sagnir og líðan hinna í hópnum hjálp­aði manni að átta sig á eigin til­finn­ingum. Ég er mjög blátt áfram mann­eskja og ég man á fyrsta eða öðrum fundi vorum við spurðar hvernig okkur liði þann dag­inn og ég svarði ein­fald­lega að ég væri reið en ég vissi ekk­ert af hverju. Í bílnum á leið­inni heim var ég að drep­ast úr móral yfir því að hafa ausið þess­ari nei­kvæðni yfir þær og ákvað að þegja bara á næsta fundi. En viti menn, á næsta fundi tal­aði ein úr hópnum um það að hún deildi mínum til­finn­ingum og væri líka reið,“ segir Sigrún.

Auk þess að ræða erf­iða og oft átak­an­lega hluti var líka farið yfir praktísk atriði sem geta vaf­ist fyrir manni í hvers­dags­líf­inu. Sumar konur innan hóps­ins höfðu til að mynda aldrei dælt bens­íni á bíl í sjálfs­af­greiðslu því mað­ur­inn þeirra sá alltaf um það. „Eitt sem við áttum allar erfitt með var að skipta um á rúm­inu. Setur maður hreint á báðum megin jafn­vel þó að það hafi aðeins verið sofið öðrum megin?“ segir Ágústa og hinar taka undir það hlæj­andi.

„Við ræddum einnig hvenær sé tíma­bært að fara í gegnum og losa sig við föt og annað dót eig­in­manns­ins. Til dæmis vorum við nokkrar með bíl­skúr sem eig­in­mað­ur­inn hafði lagt undir sig og sitt dót, það verk­efni reynd­ist okkur mjög erfitt en komumst í gegnum það með hjálp hver ann­arrar,“ segir Sigrún.

„Við deilum allar þess­ari sam­eig­in­legu reynslu, að missa maka okkar, og að hlusta á frá­sagnir og líðan hinna í hópnum hjálp­aði manni að átta sig á eigin til­finn­ingum.“ Auður Inga

Auður kinkar kolli og bætir við: „Við getum ekki rætt þessa hluti við vini eða ætt­ingja sem hafa ekki gengið í gegnum maka­missi því þótt fólk sé allt af vilja gert þá hefur það ekki skiln­ing­inn. Þess vegna er svona hópa­starf svo mik­il­vægt.“

Konurnar fundu strax að þær áttu góða sam­leið og þegar sex vikna nám­skeið­inu lauk voru þær alls ekki til­búnar að sleppa tak­inu hver á annarri. Þá bauð Sigrún Lillie, for­maður Ráð­gjaf­ar­þjón­ust­unnar, þeim á núvit­und­ar­nám­skeið sem þær þáðu með þökkum og það þjapp­aði hópnum enn frekar saman.

Að því loknu stofn­uðu þær eigin hóp sem fékk nafnið Ekkju­blómin. Þó að nafnið ætti eftir að breyt­ast, meira um það síðar, hitt­ist hóp­ur­inn enn mjög reglu­lega. „Á nám­skeið­unum fengum við verk­færi í hend­urnar og höfum getað notað þau áfram í sorg­ar­úr­vinnsl­unni,“ segir Guðrún.

Hlutirnir gerðust mjög hratt

Auður Inga er starf­andi prestur á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Grund. Hún á þrjú upp­komin börn og ynd­is­legan hund sem kemur með henni í vinn­una alla daga. Guð­mundur, mað­ur­inn hennar, greind­ist með bein­merg­sæxli skömmu fyrir jól 2012. Hún þekkti þetta til­tekna krabba­mein vel því maður Guðrúnar, systur hennar, hafði barist við það í ára­bil.

Guðrún er bóka­safns- og upp­lýs­inga­fræð­ingur að mennt og starf­aði lengi á bóka­safni Áslands­skóla þar til hún hætti störfum vegna ald­urs fyrir ári.

Syst­urnar Auður Inga og Guðrún Ein­ars­dætur segja hópa­starfið hafa hjálpað sér í gegnum erf­iða reynslu.

Eig­in­maður hennar, Jóhann, greind­ist með krabba­mein sum­arið 2008 en hann hafði verið með þrá­láta bak­verki og við rann­sókn kom í ljós að hann var með marg­brotna hryggjar­liði af völdum sjúk­dóms­ins. „Hann fékk í fyrstu hefð­bundna lyfja­með­ferð og síðar háskammta­með­ferð. Framan af naut hann tals­verðra lífs­gæða en sjúk­dóm­ur­inn reynd­ist erf­iður þegar fram í sótti,“ segir hún.

Auður bætir við að þó að þessi teg­und krabba­meins sé ólækn­andi sé hægt að eiga ágæt­is­líf, sér í lagi ef við­kom­andi fer í stofn­frumu­með­ferð.

Báðir menn­irnir fóru í slíka með­ferð en hún krefst þess að við­kom­andi sé í ein­angrun í fjórar vikur. „Við vorum því staddar uppi á spít­ala saman en gátum ekki gert miklu meira en að vinka hvor annarri yfir gang­inn. Menn­irnir okkar töl­uðu mikið saman í síma, það var mjög gott fyrir þá að hafa hvor annan,“ segir Guðrún.

Í mars hrak­aði manni Guðrúnar fremur skyndi­lega og hann lést. „Það var okkur mikið áfall og Guð­mundur tók það mjög nærri sér. Skömmu seinna fékk hann lungna­bólgu og var haldið sof­andi í önd­un­ar­vél í tvær vikur. Þegar hann var vak­inn var hann alveg lamaður og dó í kjöl­farið 18. maí 2013. Þannig að hlut­irnir gerð­ust mjög hratt í hans til­viki, aðra stund­ina gekk allt vel og hann á leið í stofn­frumu­með­ferð og þá næstu var hann dáinn,“ segir Auður.

Hún lagði til að þær syst­urnar mættu á fund hjá Ráð­gjaf­ar­þjón­ust­unni. „Mér fannst Guðrún þurfa á þessu að halda en vegna mennt­unar minnar og starfa hélt ég að ég þarfn­að­ist þess ekki. Sú var þó alls ekki raunin. Ráð­gjaf­ar­þjón­ustan nán­ast bjarg­aði minni and­legu heilsu á þessum tíma, reisti mig upp, ef svo má segja. Jafn­ingja­fræðslan, stuðn­ingur okkar hver af annarri undir öruggri leið­sögn leiddi okkur saman og hjálp­aði okkur ótrú­lega í þeirri veg­ferð sem sorgin er.

Ég er ekki viss um að ég væri jafn­vel á veg komin í sorg­inni ef ég hefði ekki leitað mér hjálpar. Ég myndi því ráð­leggjum öllum sem misst hafa maka eða náinn ást­vin að leita til Ráð­gjaf­ar­þjón­ust­unnar eða Nýrrar dög­unar til þess að koma heill út úr þeirri erf­iðu lífs­reynslu sem sá missir er.“

„Hlut­irnir gerð­ust mjög hratt í hans til­viki, aðra stund­ina gekk allt vel og hann á leið í stofn­frumu­með­ferð og þá næstu var hann dáinn.“ Guðrún

Guðrún tekur í sama streng. „Ég var nán­ast dregin nauðug á fyrsta fund­inn. Ég taldi mig alveg færa um að vinna sjálf úr mínum málum með börnum mínum, tengda­börnum og barna­börnum. En að missa maka eftir langvar­andi alvar­leg og átak­an­leg veik­indi eftir nær fimm­tíu ára sam­búð er mun meira áfall en ég hafði gert mér grein fyrir. Við vorum allar í sárum. Krabba­meins­fé­lagið og Ný dögun búa yfir reynslu, þekk­ingu og skiln­ingi á því umróti sem fylgja sorg­inni. Þar var hlúð að okkur og við hvattar til að ræða um sorg okkar og erf­ið­leika.“

Veikur í fjórtán ár

Sigrún er gagn­fræð­ingur og vann lengst af sem skóla­rit­ari. Hún kynnt­ist Ármanni árið 1992 og hélt þá að hún væri búin að kynn­ast mann­inum sem hún myndi verja ævinni með. „Við vorum bæði á okkar öðru hjóna­bandi og áttum stóra fjöl­skyldu, sex upp­komin börn og barna­börnin byrjuð að koma. Sumarið 1999, þegar við vorum búin að vera gift í þrjú ár, veikt­ist hann og greind­ist í fram­hald­inu með GIST-krabba­meinsæxli í smá­girn­inu sem talið var stað­bundið. Hann fór í aðgerð og æxlið fjar­lægt, engin eft­ir­með­ferð talin nauð­syn­leg, en ári seinna kom í ljós að hann var með bletti í lifr­inni sem reynd­ust vera krabba­meinsæxli af sömu teg­und.

,,Ég kem enn í Ráð­gjaf­ar­þjón­ust­una á fyr­ir­lestra og á nám­skeið og mæli með að fólk komi og nýti sér þessa góðu þjón­ustu,“ segir Sigrún.

Þar með hófst sjúkra­ganga hans sem stóð næstu þrettán árin. Hann var hepp­inn að fá lyf í töflu­formi sem var nýtt á mark­að­inum og und­an­þágu­lyf á þeim tíma. Það hélt mein­inu í skefjum lengi vel en árið 2012 fór að halla undan fæti. Hann fór í stóra aðgerð, lyfið hætti að virka og önnur dugðu ekki til. Hann átti mis­góða tíma það ár og glímdi við alls­konar auka­verk­anir þar til hann lést 3. mars 2013.“
Sigrún hefur að eigin sögn alltaf verið óhrædd við að sækja nám­skeið í því sem hún er að takast á við hverju sinni og segir það hafa hjálpað sér mikið. „Í febr­úar 2013 fór ég á nám­skeið í núvit­und í Skóg­ar­hlíð­inni sem var ætlað krabba­meins­greindum og aðstand­endum þeirra. Í kaffi­stofu Ráð­gjaf­ar­þjón­ust­unnar sá ég aug­lýs­ingu sem vakti áhuga minn þar sem var talið upp það sem væri í boði fyrir aðstand­endur. Í ágúst ákvað ég því að leita aftur til þeirra að kanna hvað væri í boði fyrir mig nú þegar ég væri orðin ekkja. Ég fékk ein­stak­lega hlý­legar mót­tökur, fór í við­tal hjá hjúkr­un­ar­fræð­ingi og í fram­haldi af því fór ég til hennar í nokkur skipti í slökun og hug­leiðslu. Ég fór einnig að sækja hádeg­is­fyr­ir­lestra og skráði mig svo á þetta sex vikna nám­skeið sem við kynnt­umst allar á. Ég kem enn í Ráð­gjaf­ar­þjón­ust­una á fyr­ir­lestra og á nám­skeið og mæli með að fólk komi og nýti sér þessa góðu þjón­ustu sem og láti vita hvað það sæk­ist eftir. Þetta hjálp­aði mér mikið á minni göngu.“

Greindist þrisvar

Ágústa er stúd­ent úr hag­fæð­i­skori Mennta­skól­ans við Sund og hefur alla tíð unnið við­skipta­tengd störf, meðal ann­ars í banka og á ferða­skrif­stofu. Síðustu fimmtán ár hefur hún unnið á Hag­stof­unni í hluta­starfi en var lengi heima­vinn­andi vegna fötl­unar tveggja barna sinna.

Ágústa og Tryggvi, eig­in­maður hennar, eign­uð­ust þrjú börn. „Við áttum mjög gott og sam­hent hjóna­band og fjöl­skyldu­líf okkar var gott. Í mörg ár á meðan börnin voru ung ferð­uð­umst við á hverju ári um landið. Við eign­uð­umst felli­hýsi og vorum í allt að fjórar vikur á flakki,“ segir hún.

„ Ég upp­lifði mik­inn þrýst­ing frá fjöl­skyldu og vinum eftir áfallið að halda áfram og kom­ast yfir sorg­ina. Þú heldur hins vegar ekki áfram nema að vinna þig í gegnum miss­inn,“ segir Ágústa.

Tryggvi fékk þrisvar krabba­mein á lífs­leið­inni. „Fyrst greind­ist hann með Hodgkins-eitlakrabba­mein, árið 1997, og fór þá í stranga og erf­iða með­ferð í eitt ár og lækn­að­ist. Árið 2008 grein­ist hann svo með blöðru­krabba­mein. Und­an­fari þess voru flensu­lík ein­kenni og hann hafði legið heima í tvær vikur. Þvag­blaðran var numin brott en ekki var talin þörf á lyfja­með­ferð. Um haustið 2010 fékk hann svo aftur flensu­ein­kenni og lá heima eins og fyrr. Smám saman gat hann ekki haft hægðir og fór að kasta upp. Þá kom í ljós að þetta sama krabba­mein hafði valdið mein­vörpum í ristli og þau höfðu lokað ristl­inum. Þá var sagt að þetta væri ólækn­an­legt en hægt væri að halda því í skefjum með lyfjum. Haustið 2011 fékk hann svo legu­sár sem olli því að lyfja­með­ferð var hætt og hann dó svo í mars 2012.“

Eftir and­lát Tryggva leit­aði Ágústa til sál­fræð­ings á Land­spít­al­anum og hitti hann í nokkur skipti. Sá benti henni á núvit­und­ar­nám­skeið Ráð­gjaf­ar­þjón­ust­unnar og hún ákvað að fara á það og svo í fram­hald­inu á maka­miss­is­nám­skeiðið. „Það var óskap­lega gott að koma þangað. Sam­skiptin óþvinguð og hrein og bein. Maður finnur fyrir því að geta talað hreint út án þess að vera stopp­aður. Það eru nýjar upp­lif­anir á hverjum degi eftir svona missi og mik­il­vægt að fá stuðn­ing.

Ég upp­lifði mik­inn þrýst­ing frá fjöl­skyldu og vinum eftir áfallið að halda áfram og kom­ast yfir sorg­ina. Þú heldur hins vegar ekki áfram nema að vinna þig í gegnum miss­inn. Þá koma þessir aðilar hjá Ráð­gjaf­ar­þjón­ust­unni eða Nýrri dögun sterkir inn og hjálpa manni að ná áttum en hver og einn þarf að finna sinn vitj­un­ar­tíma.“

Hinum megin við borðið

Krabba­mein er afar óvæg­inn sjúk­dómur. Þrjár kvenn­anna úr hópnum hafa greinst sjálfar með krabba­mein á árunum eftir maka­miss­inn. Guðrún greind­ist með krabba­mein í maga rúmu ári eftir að Jóhann féll frá. „Ég var enn þá í svo miklu áfalli að mér var eig­in­lega alveg sama, það skipti mig litlu hvort ég myndi lifa eða deyja. Börnin mín voru ekki sátt við það við­horf mitt. Ég fór samt í lyfja­með­ferð og aðgerð þar sem maginn var fjar­lægður. End­ur­hæf­ingin var samt lík­lega erf­ið­asti hluti bata­ferl­is­ins, að byrja að borða aftur, en ég var á spít­ala í sjö vikur og fór síðan á Grensás. En ég á sem betur fer afar gott bak­land sem studdi mig í gegnum þetta.“

Nýverið skipti hóp­ur­inn um nafn og heitir nú Perlurnar.

Guðrún er einnig afar þakk­lát Ráð­gjaf­ar­þjón­ust­unni fyrir að hafa sent hóp­inn á núvit­und­ar­nám­skeið. „Ég var toss­inn í hópnum en í krabba­meins­bar­átt­unni kom núvit­undin heldur betur að gagni. Í dag horfi ég öðrum augum á hlut­ina og er ham­ingju­söm og þakk­lát fyrir að hafa náð heilsu á ný,“ segir hún en fyrr í þess­ari viku fékk hún nið­ur­stöður rann­sókna sem sýndu að hún var laus við krabba­mein og almennt við hesta­heilsu.

Ágústa greind­ist nýlega í annað sinn með lungna­krabba­mein. Fyrra skiptið var þó fyrir tíu árum, áður en Tryggvi lést. „Þá tók ég þessu bara sem verk­efni sem ég þurfti að klára og upp­lifði ekki miklar lægðir. Tryggvi var þá líka búinn að lækn­ast af sínu krabba­meini þannig að ég var nokkuð bjart­sýn. Síðan grein­ist hann aftur og svo í þriðja skipti sem að lokum dró hann til dauða. Í þetta skiptið hefur mér þótt þetta mun erf­ið­ara því ég stend ein og vantar stuðn­ing­inn frá honum. Ég hef líka illan bifur á því að fá aftur sama krabba­meinið því af minni reynslu er það frekar nei­kvætt, ekki að það sé nokkurn tím­ann nokkuð jákvætt við krabba­mein. Ég er hrædd­ari og veit ekki hvað ég mun lifa lengi, ég er dálítið að takast á við það um þessar mundir,“ segir hún.

Í fyrra­sumar greind­ist Sigrún með brjóstakrabba­mein í kjöl­far reglu­bund­innar skoð­unnar. „Í skoð­un­inni kom fram eitt­hvað sem þyrfti að skoða betur og það má segja að sum­arið hafi farið í sýna­tökur. Það tók á end­anum marga mán­uði að fá grein­ing­una sjálfa. Ég gat ekk­ert gert, annað en að bíða og það tók rosa­lega á. Ég var sem sagt með tvö mein, hvort af sinni teg­und­inni, sitt­hvorum megin á vinstra brjósti. Ég fór í brjóst­nám, þurfti ekki að fara í lyfja­með­ferð og kaus að fara ekki í upp­bygg­ingu. Þetta gekk allt saman mjög vel og fólk þreytt­ist ekki á því að segja mér hvað ég var heppin,“ segir hún.

Sigrún fann einnig fyrir vöntun á stuðn­ing í veik­ind­unum. „Ég tala stundum við mynd­ina af honum Ármanni og nú sagði ég: Ég stóð við hlið­ina á þér og studdi við bakið á þér öll þín veik­indi og svo er ég bara skilin hér eftir ein með mín. En svo bað ég hann afsök­unnar,“ segir hún og hlær.

Eins og henni einni er lagið þá dreif hún sig á nám­skeið hjá Ljósinu fyrir konur sem eru nýgreindar með brjóstakrabba­mein. „Þar er ég komin með annan góðan hóp kvenna sem ég get leitað til.“

Styðja hverja aðra

Nýverið skipti hóp­ur­inn um nafn og heitir nú Perlurnar. „Sorgin er yfir­leitt ekki til umræðu lengur, við höfum allar náð tökum á þeim þætti lífs­ins. Nú ræðum við skemmti­legri mál­efni en sam­staðan, virð­ingin og vin­áttan sem mynd­að­ist í hópnum er sú sama og jafn­dýr­mæt,“ segir Guðrún.

Af þrettán með­limum eru ell­efu mjög virkar sem hitt­ast yfir­leitt einu sinni í mán­uði, jafn­vel oftar. Oftar en ekki hitt­ast þær í heima­húsi og eru með svo­kallað Pálínupartí þar sem allar leggja eitt­hvað góð­gæti á borð. Auk þess eru þær dug­legar að fara saman í bíó, leik­hús, sum­ar­bú­stað og jafn­vel til útlanda. „Þegar þú ert í hjóna­bandi ertu vön að hafa alltaf ein­hvern til að gera hluti með. Þó að þú eigir enn þína vini þá er það ekki eins því þeir eiga sína maka og fjöl­skyldur. Nú getum við alltaf heyrt í hinum í hópnum ef okkur langar að skreppa í bíó eða leik­hús eða þess háttar,“ segir Auður.

„Hópurinn okkar hefur gefið af sér enn þá sterk­ari konur sem voru þó allar sterkar fyrir.“ Auður

Þær eru allar afar þakk­látar Ráð­gjaf­ar­þjón­ust­unni fyrir að hafa leitt hóp­inn saman og stutt við bakið á þeim. „Sagt er að þegar við missum maka missum við helm­ing­inn af okkur sjálfum. Það tekur tíma að verða heil á ný og flýtir það sann­ar­lega fyrir að fá hand­leiðslu og jafn­ingja­fræðslu á þeirri veg­ferð. Í þessum hópi höfum við orðið heilar á ný,“ segir Auður. „Hópurinn okkar hefur gefið af sér enn þá sterk­ari konur sem voru þó allar sterkar fyrir. Að upp­lifa end­ur­kom­una saman hefur verið ómet­an­legt,“ bætir Ágústa við að lokum og það er greini­legt að þarna eru svo sann­ar­lega perlu­vin­konur á ferð.

Perlurnar þrettán eru: Anna Huga­dóttir, Anna Sóley Sveins­dóttir, Diana Sveins­björns­dóttir, Auður Inga Ein­ars­dóttir, Guðrún Ein­ars­dóttir, Guðrún Tóm­as­dóttir, Margrét Ein­ars­dóttir, Ágústa Tóm­as­dóttir, Kristín María Magn­ús­dóttir, Guðný Björg Guð­munds­dóttir, Sigrún Sveins­dóttir, Sigrún Gísla­dóttir og Þórunn Jóns­dóttir.

Þeir sem vilja kynna sér starf Ráð­gjaf­ar­þjón­ust­unnar frekar er bent á vef­síðu Krabba­meins­fé­lags­ins, krabb.is.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Förðun / Hrafn­hildur Björk Run­ólfs­dóttir fyrir Urban Decay

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur