Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Dekraðu við þig fyrir jólin

Mik­il­vægt er að vinna gegn stress­inu sem fylgir þessum árs­tíma.

Dekraðu við þig fyrir jólin

Það jafn­ast ekk­ert á við það að skella sér í spa og láta dekra aðeins við sig en því miður leyfir fjár­hagur flestra ekki slíkan munað – sér­stak­lega ekki fyrir jólin. Hér eru nokkrar hug­myndir hvernig má dekra við sig heima og láta stressið sem fylgir þessum árs­tíma líða úr sér.

gott kveikja á kertum og ekki er verra ef þau eru með huggu­legum ilm.

Kerta­ljós og huggu­legur ilmur
Til að skapa huggu­lega birtu og smá­vegis spa-stemmn­ingu á bað­her­berg­inu er gott kveikja á kertum og ekki er verra ef þau eru með huggu­legum ilm.

Einnig er snið­ugt að setja ilmol­íur í baðið sjálft til að auka vellíðan og slökun. Best er að bæta nokkrum dropum af olíu út í þegar baðið er hálf­fullt, þannig dreif­ist hún best. Einnig má blanda epsom-salti í baðið til hámarka slök­un­ina. Saltið er ríkt af magnesíum sem eykur blóð­flæði til húðar og hjálpar til við að losa um bjúg og bólgur.

Þeir sem eru latir við að bera krem á lík­amann en vilja samt halda honum mjúkum ættu að prófa að setja olíu í baðið, til dæmis möndlu- eða kókosolíu. Olían gerir það að verkum að húðin verður silki­mjúk eftir baðið án nokk­urrar fyr­ir­hafnar.

Áhrifa­rík leið til að hressa upp á húð­ina
Nýttu tím­ann á meðan þú liggur í baði og settu á þig and­lits­maska. And­lits­maskar eru fljót­leg og áhrifa­rík leið til að hressa upp á húð­ina. Til að hámarka áhrifin er snið­ugt að nota nota tvo maska hvorn á eftir öðrum, fyrst hreinsimaska og svo rakamaska. Berðu hreins­andi leirmaska á and­litið áður en þú stígur ofan í baðið, láttu hann liggja á húð­inni í hálf­tíma og skol­aðu svo af rétt áður en þú stígur upp úr bað­inu. Þegar þú ert búin að þerra húð­ina get­urðu svo borið rakamaska á sem inni­heldur ýmis raka­gef­andi og róandi efni sem hjálpa við að styrkja húð­ina, gera áferð hennar fal­legri og auka ljóma hennar. Raskamaska þarf yfir­leitt ekki að skola af heldur er nóg að fjar­lægja leifar hans með tis­sjúi.

Djúpnær­andi olía í hárið
Þegar þú ert í slak­andi baði með salti og olíum er óþarfi að pæla í því að þvo á sér hárið. Þess vegna er til­valið að bera djúpnær­andi olíu í hárið fyrir baðið. Auðvelt er að nota plöntu­ol­íur, til dæmis ólífu­olíu, sem djúpnær­ingu fyrir hár. Skiptu hár­inu gróf­lega niður og nudd­aðu olíu í hvern lokk fyrir sig, sér­stak­lega í endana. Þegar þú ert búin að bera olíu á allt hárið er gott að vefja plast­filmu eða -poka og vefja síðan hand­klæði um höf­uðið. Þegar þú kemur úr bað­inu get­urðu skolað það mesta af olí­unni úr hár­inu án þess þó að nota sjampó.

Það er mik­il­vægt að reyna að slaka á og láta stressið ekki ná tökum á sér.

Húðin skrúbbuð hátt og lágt
Við sinnum flest húð­um­hirðu and­lits­ins á hverjum degi en okkur hættir til að gleyma að hugsa um húð­ina á rest­inni af lík­am­anum. Áður en þú stígur upp úr bað­inu er til­valið að skrúbba húð­ina vel. Nú eru fáan­legir ýmsir gæða­skrúbbar sem eru fram­leiddir úr nátt­úru­legum íslenskum hrá­efnum sem eiga að stinna húð­ina og auka heil­brigði hennar. Einnig er hægt að nota góðan húð­bursta með nátt­úru­legum hárum eða ein­fald­lega skrúbb­hanska sem fást í öllum apó­tekum. Eftir að húðin hefur verið skrúbbuð er mik­il­vægt að bera gott krem á húð­ina svo hún þorni ekki upp. Eftir svona góða með­ferð ætt­irðu að sjá mik­inn mun á húð­inni; hún er stinn­ari, slétt­ari og með heil­brigðan ljóma.

Gott að grípa í spari­hand­klæðin
Hafðu spari­hand­klæðin til­búin þegar þú kemur upp úr bað­inu því það er ekki hátíð­legt að þurrka sér með hörðu, slitnu hand­klæði. Sniðugt ráð er að leyfa hand­klæð­unum að hitna aðeins á ofn­inum á meðan þú liggur í baði og gera slíkt hið sama við baðslopp­inn. Þá verður lítið sem ekk­ert hita­tap þegar þú stígur upp úr bað­inu. Best er að dekra svona við sig á kvöldin og geta svo farið beint upp í rúm að sofa því það tryggir að þú náir að end­ur­hlaða batt­er­íin almenni­lega. Ef þú hefur ekki tök á því reyndu samt að leggj­ast inn í rúm í örlitla stund, um það bil tutt­ugu mín­útur, og lygna aðeins aftur aug­unum.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir
Myndir / www.pexels.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur