Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fjölskyldan öll heilsuhraustari á hráfæði

Elfa Þor­steins­dóttir heilsu­fröm­uður stendur á bak­við heima­síð­una rawmother.com þar sem hún deilir hrá­fæð­is­upp­skriftum og ýmsum heilsu­tengdum fróð­leik.

Fjölskyldan öll heilsuhraustari á hráfæði
|

Heilsu­á­hugi hennar kvikn­aði fyrir nokkrum árum þegar breytt matar­æði gjör­breytti líðan lang­veiks sonar hennar.

„Fyrst og fremst er það orkan, heil­brigðið, fal­legri húð og meiri vellíðan sem maður upp­lifir þegar maður er á þessu fæði,“ svarar Elfa þegar hún er spurð út í sér­stöðu hrá­fæðis. „Svo er það auð­vitað bragðið og fersk­leik­inn í öllum matnum sem er svo ein­stakt. Hráfæði inni­heldur hámark nær­ing­ar­efna, vítamína, stein­efna og ens­íma sem ann­ars vilja tap­ast mikið við eldun.“

„Heima­síðan hefur verið lengi í fæð­ingu. Ég eign­að­ist dreng árið 2005 sem var lang­veikur. Eftir lífs­nauð­syn­legar aðgerðir sat hann enn þá eftir með ýmis heilsu­fars­leg vanda­mál sem hefð­bundar lækn­ingar gátu ekki hjálpað honum með. Þarna hófst fyrir alvöru heilsu­á­hug­inn minn,“ segir Elfa sem búið hefur ásamt fjöl­skyldu sinni á suð­ur­strönd Englands í fimm ár. Eftir aðgerð­irnar og ýmsa fylgi­kvilla átti sonur hennar, Anthony, meðal ann­ars erfitt með alla nær­ing­ar­inn­töku. „Ég var mamma með veikan strák með það eina mark­mið að finna lausn sem virk­aði fyrir hann. Eftir mik­inn lestur ákvað ég að prófa að fara með honum á hrá­fæði í eitt ár og athuga hvort það myndi hjálpa honum. Það er skemmst frá því að segja að á sjö mán­uðum komst lík­ami hans í full­komið lag og allt fór að virka rétt í fyrsta skipti á ævi hans.

Daginn sem ég fékk nið­ur­stöð­urnar úr pruf­unum hans lof­aði ég honum að ég myndi vera með honum á hrá­fæði þar til hann flytti að heiman og fljót­lega var öll fjöl­skyldan komin á sama fæði. Maðurinn minn losn­aði í kjöl­farið við ýmis heilsu­fars­leg vanda­mál á nokkrum mán­uðum auk þess að missa 30 kíló og dóttir okkar losn­aði við áreynslu­asma. Ég hef lært svo margt á þessum tíma í sam­bandi við heilsu og hvernig við getum notað réttan mat til að hjálpa lík­ama okkar að lækna sig sjálfur. Mér fannst ekki hægt að vera komin með alla þessa þekk­ingu, eftir að vera búin að lifa þessum lífs­stíl í svona mörg ár, og halda henni bara fyrir sjálfa mig og fjöl­skyldu mína.

„Ég hef lært svo margt á þessum tíma í sam­bandi við heilsu og hvernig við getum notað réttan mat til að hjálpa lík­ama okkar að lækna sig sjálfur.“

Það er líka búin að vera gríð­ar­lega mikil eft­ir­spurn eftir nám­skeiðum hjá mér og ráðum í sam­bandi við bætt matar­æði. Svo það lá eig­in­lega bein­ast við að koma þekk­ing­unni fyrir á einum stað. Ég var svo heppin að fá hana Ingi­björgu Rósu, vin­konu mína, með mér í þetta verk­efni. Hún er mín hægri hönd í öllu sem kemur að tækni­málum, textum fyrir heima­síð­una og upp­setn­ingu, enda með ensku­kunn­áttu upp á rúm­lega tíu. Heima­síðan var svo opnuð á ell­efu ára afmæl­is­degi hans Anthonys í fyrra.“

Sérstakar barnauppskriftir

Síðan er í stöðugri þróun og vinnslu þar sem Elfa bætir inn upp­skriftum reglu­lega, setur inn blogg­pósta og fræðslu. „Sér­staðan felst kannski helst í því að þarna er mann­eskja sem lifir þessum lífs­stíl og er með alla fjöl­skyldu sína á hrá­fæði. Ég legg mikið upp úr því að mat­ur­inn bragð­ist vel og geti því höfðað til sem flestra. Fólk hefur svo val um að koma í áskrift hjá mér þar sem það fær nýjar upp­skriftir reglu­lega með víd­eói um hvernig hver réttur er búinn til. Þetta er eins og að vera í áskrift að hrá­fæði­nám­skeiði þar sem ég býð öllum heim í eld­hús til mín.

Elfa ásamt syni sínum, Anthony, sem hefur verið á hrá­fæði frá fjög­urra ára aldri og er með sér­stakar hrá­fæð­is­barna­upp­skriftir á heima­síð­unni.

Anthony er líka með sitt svæði á síð­unni, Anthony’s Kitchen, þar sem við búum saman til upp­á­halds­rétt­ina hans. Þeir eiga það sam­eig­in­legt að vera allir mjög ein­faldir og bragð­góðir. Við upp­tökur á efni fyrir Anthony’s Kitchen verða stundum mis­tök. Það er stundum ansi spaugi­legt það sem miður fer og svo á Anthony til að vera mjög orð­hepp­inn í tökum, sem er ekki hægt að nota í aðal­mynd­böndin, svo Anthony kom með þá hug­mynd að gera mynd­bönd úr skot­unum sem mis­heppn­ast og við erum nýbúin að setja þau inn á síð­una líka.“

Elfa tekur að sér að leiða hópa í föstur og safa­hreins­anir. „Ég hef farið reglu­lega í hreins­anir síðan ég var 18 ára. Þær eru ein­fald­lega hluti af mínum lífs­stíl. Á síð­ustu árum hefur verið sótt mjög mikið í að kom­ast í þessar hreins­anir með mér og það hefur undið upp á sig. Ég býð Facebook-vinum mínum og fylgj­endum að koma með mér í hreins­anir þrisvar sinnum á ári. Þar fá allir frítt pró­gramm sem ég hef sett saman og stuðn­ing í gegnum alla hreins­un­ina. Nýárs­hreins­unin er sú lengsta, 10-14 dagar, svo eru styttri hreins­anir í maí og sept­em­ber, 4-5 dagar. Þetta hefur verið ótrú­lega gaman og gef­andi þrátt fyrir mikla vinnu við hverja hreinsun. Þessar hreins­anir hafa verið upp­hafið hjá mörgum að taka næstu skref að bættum lífs­stíl sem mér þykir sér­stak­lega vænt um að fá að vera þátt­tak­andi í.“

Í þekktum heilsuþætti

Elfu bregður fyrir í mynd­inni Fat, Sick & Nearly Dead 2 eftir ástr­alska kvik­mynda­gerð­ar­mann­inn og heilsu­fröm­uð­inn Joe Cross en hann hefur per­sónu­lega reynslu af djús­föstu. „Fyrir nokkrum árum var ég að hjálpa einni vin­konu minni sem þurfti að fara í langa og mikla safa­hreisnun og ákvað að prófa að bjóða Facebook-vinum mínum að vera með. Ég átti von á að fá kannski 4-5 með okkur en á rúmum sól­ar­hring voru komnir yfir 100 manns í hreinsi­hóp­inn, alls staðar að úr heim­inum. Ég hafði ekki hug­mynd um hvernig ég gæti stutt allan hóp­inn og hafði því sam­band við Joe Cross sem þá hafði nýlega gefið út mynd­ina sína Fat Sick and Nearly Dead og bað um hjálp hans. Honum fannst mjög sér­stakt það sem ég var að gera og gerði þá und­an­tekn­ingu að hjálpa mér við að styðja og hvetja fólkið í hópnum. Hann kom inn, kommenter­aði og fylgd­ist með okkur – sem var brjálað „búst“ fyrir alla. Við Joe höfum hist nokkrum sinnum eftir þetta þegar hann hefur komið til London. Hann er svo ein­stak­lega vand­aður maður, er alveg eins í per­sónu og þú sérð hann á skjánum. Honum fannst svo flott að þekkja mann­eskju frá kalda Íslandi sem væri að djúsa þannig að ég fékk að vera ein af þeim sem heilsa áhorf­endum í upp­hafs­at­riði mynd­ar­innar Fat, Sick and Nearly Dead 2.“

Fram undan er áfram­hald­andi upp­bygg­ing upp­skrifta­bank­ans á heima­síð­unni, við­bætur á fróð­leik og fleira. „Svo eru hreins­an­irnar mínar reglu­lega á dag­skrá. Á Facebook getur fólk skráð sig í hóp­inn og fengið aðgang að prógramm­inu og stuðn­ings­hópnum frítt. Svo er líka hægt að fylgj­ast með mér á Instagram og Twitter þar sem allar upp­lýs­ingar eru einnig settar inn. Svo langar mig mjög mikið til að koma til Íslands og halda þar nám­skeið aftur sem fyrst.

„Ég hef farið reglu­lega í hreins­anir síðan ég var 18 ára. Þær eru ein­fald­lega hluti af mínum lífs­stíl. Á síð­ustu árum hefur verið sótt mjög mikið í að kom­ast í þessar hreins­anir með mér og það hefur undið upp á sig.“

Við Anthony erum með langan lista af hug­myndum og réttum sem við eigum eftir að taka upp fyrir Anthony’s Kitchen. Regluleg „live-vídeó“ eru á Facebook-síð­unni minni og margt fleira skemmti­legt fram undan. Það er um að gera að fylgj­ast með fyrir þá sem hafa áhuga á að bæta við hollum  græn­met­is­réttum fyrir fjöl­skyld­una og fá heilsu­tengda fróð­leiksmola.“

Hráfæðis-triffli

Triffli er gam­all og hefð­bund­inn enskur eft­ir­réttur sem er bor­inn fram í gler­skál og sam­anstendur vana­lega af svamp­botni eða makkar­ónu­kökum, ávöxtum og eggjakremi. Að auki er oft áfengi í honum svo hann er langt í frá hollur í sinni upp­runa­legu mynd. Hér er hins vegar útgáfa af honum sem er svo holl að óhætt er að fá sér tvo og jafn­vel þrjá skammta.

Þessi útgáfa af Triffli er svo holl að óhætt er að fá sér tvo og jafn­vel þrjá skammta.

Súkkulað­i­lag
1 bolli möndlur

1 bolli mjúkar döðlur

1 bolli kakó­duft

3 msk. sæta í fljót­andi formi, t.d. kóko­sn­ektar, hun­ang, agave o.fl.

3 msk. kókos­olía

salt

Setjið möndlur, döðlur og kakó­duft í mat­vinnslu­vél og látið hana ganga þar til möndl­urnar og döðl­urnar eru komnar í fína bita.
Bætið þá sæt­unni, kókosol­í­unni og smá­vegis salti, eftir smekki hvers og eins, út í og látið mat­vinnslu­vél­ina ganga áfram í nokkrar sek­úndur, eða þar til kur­lið loðir saman þegar það er kramið á milli tveggja fingra.

Berjalag

300 g hind­ber eða jarð­ar­ber, eftir smekk. Hvort tveggja eru himnesk ber til að nota í þessa upp­skrift.

Settu berin í skál og stapp­aðu þau með gaffli til að búa til gróft mauk.

Ágætt er að skilja nokkur ber eftir til að nota til að skreyta með.

Búðingur

1 bolli nýkreistur app­el­sínu­safi, úr u.þ.b. 3 app­el­sínum

safi úr 1 app­el­sínugulri papriku, u.þ.b. 1 dl

1 mangó

safi úr ½ sítrónu

1 bolli kasjú­hnetur, lagðar í bleyti í 2-4 klst.

1 bolli kókos­olía, fljót­andi, hún bráðnar við 25°C

½ bolli hreint xylitol

1 tsk. stevíu­dropar með vanillu­bragði

salt eftir smekk

Paprikan er sett í gegnum djú­s­vél, eða bara í bland­ara og svo má sía safann frá með fínni grisju eða hnetu­mjólk­ur­poka. Afhýðið mangóið og takið stein­inn frá.

Allt er sett í bland­ara­könnu og blandað vel eða þar til kasjú­hnet­urnar eru vel maukaðar og komin er búð­ings­blanda með silki­mjúkri áferð.

Samsetning

Sett í lögum í fal­lega gler­skál. Byrjið á að setja helm­ing­inn af súkkulaðikurlinu í botn­inn á skál­inni. Þrýstið aðeins niður með sleif svo botn­inn verði vel þéttur. Hellið helm­ingnum af búð­ingnum yfir. Þar ofan á fer allt berjam­aukið og svo restin af súkkulaðikurlinu áður en afgang­ur­inn af búð­ingnum fer ofan á sem efsta lag.

Fallegt að skreyta með sömu berjum og notuð eru í berja­lagið.

Látið standa í vel köldum ískáp í um það bil 8-10 klst. eða inni í frysti í 2 klst. til að búð­ing­ur­inn þétt­ist áður en trifflið er borið fram.
Njótið hvers munn­bita af þessum heilsu­sam­lega og himneska eft­ir­rétti.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / Alex­andra Krist­jáns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur