Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Stórbrotnir staðir á Suðurlandi

Á Suð­ur­landi eru margir stór­brotnir staðir sem vert er að heim­sækja við réttar aðstæður.

Stórbrotnir staðir á Suðurlandi

Þar er hvergi meiri fjöl­breytni í nátt­úru­fari á Íslandi eins og jöklar, eld­fjöll, eld­fjalla­eyjar, háhita­svæði, jök­ulár, svartar sjáv­ar­strendur, víð­áttu­mikil und­ir­lendi, mýrar og stöðu­vötn af öllum stærðum og gerðum. Það er því óhætt að mæla með ósnortnu hálendi Suð­ur­lands við áhuga­sama ferða­langa.

Laka­gígar eru, hvernig sem á þá er litið, ein stór­felldasta furðu­smíð í nátt­úru lands­ins. Mynd / www.commons.wikimedia.org

Laka­gígar gusu árið 1783 hinu mesta hraun­gosi er sögur fara af á jörð­inni. Þeir voru þá kall­aðir Skaft­ár­eldar og er gíga­röðin 25 kíló­metrar að lengd og endar við Vatna­jökul. Alls eru gíga­opin talin vera um 100. Gígarnir eru af marg­vís­legri gerð og lögun. Sumir eru kringlóttir, aðrir aflangir og stundum meira eða minna brotnir. Í barmi flestra þeirra er skarð sem hraunið hefur runnið út úr.

Flestir þeirra eru að miklu leyti þaktir þykkri breiðu af grámosa og hinir feg­urstu til­sýndar. Ganga ber um þá með gætni því að mos­inn er afar við­kvæmur. Laka­gígar eru, hvernig sem á þá er litið, ein stór­felldasta furðu­smíð í nátt­úru lands­ins en þeir voru frið­lýstir árið 1971.

Fjaðrár­gljúfur Hið 100 metra djúpa og tveggja kíló­metra langa Fjaðrár­gljúfur er bæði stór­brotið og hrika­legt. Gljúfrið er vegg­bratt, hlykkj­ótt og þröngt. Berggrunn­ur­inn í Fjaðrár­gljúfri er að mestu móberg frá kulda­skeiðum ísaldar og telst um tveggja millj­óna ára gam­alt. Fjaðrá á upp­tök sín í Geir­lands­hrauni og fellur fram af heið­ar­brún­inni í þessu mik­il­feng­lega gljúfri þar til hún skilar sér niður í Skaftá. Fjaðrá er bergvatnsá og ljóst er að hún hefur breyst mikið í tím­ans rás. Í dag er Fjaðrá oft­ast frekar vatns­lítil og því geta göngu­menn hæg­lega kosið að ganga inn gljúfrið en þá þarf að vaða ána alloft. Innst í gljúfr­inu eru fossar svo ganga þarf sömu leið til baka. Flestir velja að ganga eftir göngu­stíg uppi á gljúf­ur­barm­inum og njóta um leið útsýn­is­ins yfir gljúfrið. Fjaðrár­gljúfur er á nátt­úru­minja­skrá og öðl­að­ist heims­frægð eftir að söngv­ar­inn Justin Bieber tók upp mynd­band sitt I´ll Show You í gljúfr­inu.

Rauf­ar­hóls­hellir Einn af lengstu hellum Íslands nefn­ist Rauf­ar­hóls­hellir og er stað­settur við Þrengsla­veg. Hellir­inn er yfir 1.300 metra langur og mynd­að­ist í Leit­ar­hrauns­gosi í Blá­fjöllum fyrir um 5.200 árum. Vinsælt er að nota hell­inn í kvik­myndum og til að mynda var hluti úr kvik­mynd­inni Noah (2014) tek­inn upp þar. Daglegar ferðir eru í boði í hell­inn.

Jökla­dýrð Hluta af hinni kraft­miklu móður jörð er að finna í hinum hættu­legu jöklum lands­ins. Flesta jökla lands­ins er að finna á Suð­ur­landi og vert að hafa í huga að mestu máli skiptir að setja í for­gang við­eig­andi búnað og skipu­lagn­ingu ef ferð­ast á yfir jökul. Eitt meg­in­ein­kenni jökla er að þeir hreyfast. Í jöklunum eru margar virkar eld­stöðvar en eld­gos og jarð­hiti bræða ís og geta valdið jök­ul­hlaupi. Um þriðj­ungur þess vatns sem fellur til sjávar á Íslandi er jök­ul­vatn. Aðgengi að íslenskum jöklum er nokkuð mis­mun­andi en þó er mögu­legt að kom­ast að flestum þeirra. Ferð upp á jökul getur verið ógleym­an­legt ævin­týri en þó ber að hafa í huga að þeir geta verið stór­hættu­legir og því nauð­syn­legt að vera í fylgd reyndra jökla­leið­sögu­manna. Nokkur fyr­ir­tæki sjá um skipu­lagðar jökla­ferðir á Suð­ur­landi en hægt er að nálg­ast upp­lýs­ingar um þær á Netinu, í upp­lýs­inga­mið­stöðvum ferða­mála eða hjá starfs­mönnum hót­ela. Vikan mælir ein­dregið með að ferða­menn hafi sam­band við ferða­skipu­leggj­endur og leið­sögu­menn á svæð­unum áður en lagt er af stað upp á jökul.

Systrastapi við Klaustur Árið 1186 var sett nunnu­klaustur í Kirkjubæ á Síðu sem síðar var nefnt Kirkju­bæj­ar­klaustur. Örnefnin Systrastapi og Systra­foss eru einmitt tengd þeim tíma.

Mik­il­vægt er að leggja af stað vel und­ir­bú­inn.

Systrastapi er kletta­stapi vestan við Klaustur. Þjóðsaga segir að uppi á stap­anum sé leg­staður tveggja klaust­ur­systra sem hafi verið brenndar á báli fyrir brot á siða­reglum. Önnur hafði selt sig fjand­anum, gengið með vígt brauð fyrir náð­hús­dyr og lagst með karl­mönnum. Hin hafði talað óguð­lega um páfann. Eftir siða­skiptin var seinni nunnan talin sak­laus og á leiði hennar óx fagur gróður en á leiði hinnar seku var gróð­ur­laust. Klifra má upp á stapann en þaðan er mikið útsýni með jökla­sýn.

Systra­foss heitir foss­inn þar sem Fossá fellur úr Systra­vatni fram af fjalls­brún­inni fyrir ofan Kirkju­bæj­ar­klaustur, ofan í Fossár­gil. Fallegar göngu­leiðir eru í nágrenni foss­ins og greið göngu­leið er upp á fjalls­brún­ina að Systra­vatni en ofan af brún­inni er stór­brotið útsýni.

Frá Hrífu­nesi yfir í Þjórs­ár­dal Óhætt er að mæla með göngu frá Hrífu­nesi yfir í Þjórs­ár­dal sem álit­inn er af mörgum einn feg­ursti dalur lands­ins. Þjórs­ár­dalur er stað­settur í Árnes­sýslu og liggur milli Búrfells og Skriðu­fells. Dalurinn skipt­ist í tvo dal­botna um Rauðu­kamba og Berg­ólfs­staðaá en hann er bæði slétt­lendur og vik­ur­borin eftir síend­ur­tekin eld­gos í Heklu. Talið er að Þjórs­ár­dalur hafi verið full­byggður á þjóð­veld­is­öld en lagst í eyði á 17. öld. Merkustu staðir dals­ins eru taldir vera Stöng, Háifoss, Þjóð­veld­is­bær­inn, Vegg­hamar og Gjáin.

Texti / Íris Hauks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur