Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Frumraunir í ástamálum

Fyrsta ástin er flókið fyr­ir­bæri sem engu að síður er svo freist­andi að fanga á hvíta tjald­inu.

Frumraunir í ástamálum

Hér eru nokkrar ljúfsárar og ynd­is­legar myndir um fyrstu ást­ina.

Algjörar and­stæður
Í Spectacular Now (sbr. mynd hér að ofan) er sagt frá Sutter Keely sem lifir í núinu og er ekk­ert mikið fyrir það að gera plön fyrir fram­tíð­ina. Hann er á síð­asta ári í fram­halds­skóla, heill­andi og vina­margur, mið­dep­ill athygl­innar í veislum, elskar að vinna í fata­búð­inni og svo fram­vegis – en hann er líka efni­legur alkó­hólisti og vískíflaskan er aldrei langt undan. Eftir að kærastan segir honum upp fer hann á fyll­erí og vaknar í ókunn­ugum garði þar sem Aimee Finecky stendur yfir honum. Hún er öðru­vísi en þær stelpur sem hann á að venj­ast, sann­kölluð „góð stelpa“ sem leggur sig fram í skóla, á sér drauma um fram­tíð­ina og hefur aldrei átt kærasta. Þrátt fyrir að vera svona ólík ná þau merki­lega vel saman og hafa áhrif hvort á annað, bæði góð og slæm.

Oliver ákveður að hann ætli að verða besti kær­asti í heimi til að tryggja að Jordana haldi áfram að vera hrifin af honum.

Skel­eggur strákur
Skondna kvik­myndin Submar­ine segir frá hinum 15 ára gamla Oliver Tate en hann á sér tvö meg­in­mark­mið: að missa svein­dóm­inn fyrir næsta afmæl­is­dag og rústa sam­bandi móður sinnar við elsk­huga sinn. Oliver er bráð­þroska ungur strákur og rembist við að auka vin­sældir sínar í skól­anum. Einn góðan veð­ur­dag verður hin dökk­hærða feg­urð­ar­dís, Jordana, skotin í honum og hann ákveður að hann ætli að verða besti kær­asti í heimi til að tryggja að hún haldi áfram að vera hrifin af honum. Á sama tíma er hjóna­band for­eldra hans í molum og ekki bætir úr skák þegar fyrrum kær­asti móður hans flytur inn í húsið við hlið­ina. Oliver leggur á ráðin um það hvernig hann geti látið for­eldra sína vera áfram saman. Lúmskt skemmti­leg bresk kvik­mynd þar sem hinn ungi leik­ari Craig Roberts ber af.

Cada og Thomas sem er yfir sig ást­fang­inn af henni.

Sorgleg en fal­leg
Það er ekki hægt að fjalla um fyrstu ást­ina og þroska­sögur án þess að tala um My Girl. Þar kynn­umst við Vödu Sul­ten­fuss sem er hel­tekin af dauð­anum. Móðir hennar er látin og faðir hennar rekur útfar­ar­stofu. Hún heldur að hún sé ást­fangin af ensku­kenn­ar­anum sínum og skráir sig meira að segja í ljóða­nám­skeið til að ganga í augun á honum. Besti vinur hennar, Thomas J., er algjör ofnæm­is­pési. Hann er yfir sig ást­fang­inn af Vödu og til­bú­inn til að gera hvað sem er fyrir hana. Vada reið­ist þegar faðir hennar ræður förð­un­ar­fræð­ing á útfar­ar­stof­una og hrífst af henni. Hún gerir allt hvað hún getur til að skemma fyrir þeim. Eins og flestir vita er endir mynd­ar­innar mjög sorg­legur og það er nauð­syn­legt að vera með tis­sjúkassa við hönd­ina þegar maður horfir á þessa.

Oskar kynn­ist Eli sem er heldur betur sér­stök stúlka.

Flókin ást
Það er nógu erfitt og flókið að verða skot­inn í fyrsta skiptið þó mann­eskjan sem maður er skot­inn í sé ekki vampýra í þokka­bót. Í sænsku mynd­inni Låt den rätte komma in kynn­umst við Oskari, 12 ára gömlum strák í Stokk­hólmi sem er lagður í ein­elti í skól­anum og for­eldrar hans láta hann alveg afskiptan. Líf hans breyt­ist þegar hann kynn­ist Eli sem er heldur betur sér­stök stúlka. Hún þolir illa sól­skinið, fúlsar við flestum mat og svo þarf að bjóða henni sér­stak­lega inn í her­bergi. Hann fellur engu að síður fyrir henni og hún gefur honum styrk til að standa með sjálfum sér. En þegar hann upp­götvar að hún þarf að drekka manna­blóð til að lifa neyð­ist hann til að hugsa sinn gang upp á nýtt.

Moonrise Kingdom fjallar um sam­band 12 ára stráks, Sam, og stelpu, Suzy, sem hafa verið penna­vinir í eitt ár.

Sann­kallað ævin­týri
Á eyj­unni New Penzance búa aðeins örfáar hræður auk þess sem þar eru reknar sum­ar­búðir. Myndin Moonrise Kingdom fjallar um sam­band 12 ára stráks, Sam, og stelpu, Suzy, sem hafa verið penna­vinir í eitt ár. Þau verða ást­fangin í gegnum bréfa­skrift­irnar og gera með sér leyni­legt sam­komu­lag um að flýja saman út í óbyggð­irnar. Suzy býr á eyj­unni með fjöl­skyldu sinni en Sam kemur árlega í Ivanhoe-sum­ar­búð­irnar. Á meðan yfir­völd og hinar ýmsu stofn­anir leita þeirra sækir skugga­legur stormur í sig veðrið þannig að á end­anum er hið sall­ar­ó­lega sam­fé­lag litlu eyj­unnar komið á annan end­ann.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur