Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Minni diskar – minni skammtastærðir

Nær­ing­ar­fræð­ing­ur­inn Christian Bitz hvetur fólk til að borða góðan og heilsu­sam­legan mat, án allra öfga, skyndi­lausna eða sam­visku­bits.

Minni diskar – minni skammtastærðir
Christian hefur hannað sér­stakan borð­búnað sem er hugs­aður og hann­aður þannig að hann geri fólki auð­veld­ara að stjórna skammta­stærð­unum og njóta mat­ar­ins.

Christian Bitz er heil­mikið til lista lagt, en hann er nær­ing­ar­fræð­ingur, met­sölu­bóka­höf­undur, fyr­ir­les­ari og kemur reglu­lega fram í hinum ýmsu sjón­varps­þáttum í Danmörku. Hug­mynda­fræði hans byggir meðal ann­ars á því að fólk lifi heilsu­sam­legu lífi og njóti þess að borða góðan og heilsu­sam­legan mat, án allra öfga, skyndi­lausna eða sam­visku­bits. Hann hefur líka hannað sér­stakan borð­búnað sem er hugs­aður og hann­aður þannig að hann geri fólki auð­veld­ara að stjórna skammta­stærð­unum og njóta mat­ar­ins.

Hvaðan kemur áhugi þinn á heilsu og matar­æði?
Ég starf­aði sem fyr­ir­sæta víðs­vegar um heim­inn á tíunda ára­tugnum. Á þeim tíma þurfti ég að hugsa vel um eigin heilsu og áhugi minn jókst á því hvernig ég gæti náð hámarks­ár­angri með réttu matar­æði og hreyf­ingu. Í fram­haldi af því ákvað ég að fara í nám og læra meira um það hvernig matar­æði hefur í raun áhrif á líf okkar á hverjum degi.

Hverjir eru lyk­il­þættir heil­brigðs lífstíls að þínu mati?
Fyrir það fyrsta þurfum við ein­fald­lega að byrja að njóta mat­ar­ins aftur. Stundum ein­blínum við of mikið á megrun í stað matar. Síðan held ég að lyk­ill­inn að góðu matar­æði og betri heilsu sé að borða rétt hlut­fall kol­vetna og próteins. Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar, DIOGENES sem stendur fyrir Diet – Obesity – Genes, hefur sýnt fram á að besta hlut­fallið sé 1:2 af kol­vetnum og próteini.

Hvers vegna ákvaðstu að hanna borð­búnað?
Mitt mark­mið er að gera heim­inn örlítið heil­brigð­ari. Með því að hanna minn eigin borð­búnað get ég verið við kvöld­mat­ar­borðið á hverju heim­ili. Allar kenn­ingar mínar og upp­skriftir geta notið stuðn­ings af réttum borð­bún­aði og saman getur það leitt til heil­brigð­ara lífs.

Hver er hug­myndin eða inn­blást­ur­inn á bak við borð­bún­að­inn?
Grunn­hug­myndin var að hanna kvöld­mat­ar­disk sem rúmar minna því allar rann­sóknir sýna að minni diskar þýða minni skammta­stærðir. Minni skammta­stærðir þýða færri hita­ein­ingar og fólk er ekk­ert endi­lega lík­legra til að fá sér aftur á diskinn.

Skiptir það máli að borð­bún­að­ur­inn sé fal­legur?
Ég vildi bæta auknum lit, óform­leg­heitum og ófull­komnun við mat­ar­borðið, þess vegna ákvað ég að nota hráan efni­við sem er inn­blás­inn af nor­rænni nátt­úru. Ég tel að það að borða af fal­legum diskum auki ánægj­una. Rann­sóknir hafa líka sýnt að við skynjum mat á ólíkan hátt á svörtum, hvítum eða grænum diskum. Heilsu­sam­legur matur hefur líka lengi fengið á sig þann stimpil að hann sé óspenn­andi. Borð­bún­að­ur­inn minn getur því kannski hleypt smá­vegis lífi í matseld­ina.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir
Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur