Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Svona innréttarðu litla stofu

Góð ráð fyrir þá sem eru með litlar stofur.

Svona innréttarðu litla stofu

Þegar þú inn­réttar litla stofu reyndu að kom­ast af með sem fæsta hluti. Þannig kemur þú í veg fyrir að hún verði óreiðu­kennd. Gott er að horfa reglu­lega yfir hana með gagn­rýnum augum og fjar­lægja það sem þér finnst ofaukið.

Gott er að láta lofta sem mest um hús­gögnin. Ekki klessa til dæmis borði fast upp við hlið­ina á sóf­anum, eins og gert er á þess­ari mynd. Hafðu heldur smá­bil á milli þegar þú kemur því við.

Of mikil lita­dýrð getur verið yfir­þyrm­andi í lít­illi stofu. Mörg mynstur eru heldur ekki æski­leg. Hvít máln­ing á veggjum er góð byrjun.

Til eru sniðug hús­gögn með tvö­falt nota­gildi; fínir sófar sem eru líka svefn­sófar, stólar/kollar með geymslu­rými, sófa­borð með hillum á hlið­unum, lítil borð sem gætu einnig þjónað sem sæti og svo fram­vegis. Þegar plássið er lítið þarf stundum að fórna ein­hverju til að lofti betur um það sem eftir er.

Stærri hús­gögn ættu að standa aft­ast í stof­unni frá dyr­unum séð – en ekki stað­sett við inn­gang­inn. Þá gæti þér fund­ist sem hús­gögnin þrengi að þér. Settu þau þyngstu fjærst dyr­unum og komdu hinum fyrir í góðu jafn­vægi við þau.

Ef sami litur er á t.d. veggnum og sóf­anum mun sóf­inn verða minna áber­andi og ekki grípa athygl­ina jafn­auð­veld­lega og ef hann væri í öðrum lit. Það getur verið mjög flott að láta hús­gögnin falla inn í vegg­inn á þennan hátt, svona á meðan maður ofgerir ekki. Þú getur líka notað máln­ingu til að „fela“ bit­ana í loft­inu, ofn­ana og annað sem þér finnst gefa stof­unni drasl­ara­legan blæ.

Haltu yfir­borð­inu hreinu og lausu við ónauð­syn­legt dót. Með því að tak­marka það sem þú geymir ofan á hillum, skápum, borðum og í glugga­kistum loftar svo miklu betur um stof­una. Þú þarft alls ekki að fjar­lægja allt, fækk­aðu bara þessum hlutum. Allt verður svo miklu snyrti­legra. Þeir sem ætla að selja íbúð­ina sína ættu að hafa þetta í huga – áhrifin þegar inn í stof­una (íbúð­ina) er komið eru svo miklu betri á vænt­an­lega kaup­endur en þegar allt er ofhlaðið, hún virkar einnig stærri.

Veldu lista­verk í með­al­stærð á vegg­ina í stað risa­stórra verka. Stórar myndir geta verið afar flottar en yfir­þyrm­andi í litlu rými. Mörg verk saman á vegg geta verið óreiðu­kennd ef þau eru of stór eða mjög mis­stór. Einhver regla verður að vera, að láta efri línur eða neðri mæt­ast. Ef hengt er upp af algjöru handa­hófi njóta mynd­irnar sín ekki sem skyldi.

Falleg glugga­tjöld geta skapað ljúfa og mjúka stemn­ingu í stof­unni en í litlu rými og nálægt hús­gögn­unum gleypa þau alveg stof­una. Gólf­mottur skipta líka máli, of margar litlar mottur geta látið stof­una virka drasl­ara­lega. Rýmið sýn­ist allt svo miklu opn­ara ef hóf­semi er gætt. Þú getur líka sleppt því að nota glugga­tjöld. Rimla- eða rúllu­glugga­tjöld geta verið fín lausn í litlum stofum.

Gott er að gera sem mest úr dags­birt­unni. Blóm og vasar í glugga­kistum geta verið fal­leg en skyggja á birt­una.

Speglar eru magn­aðir í þeim til­gangi að láta her­bergi virð­ast stærra. Spegill á réttum stað gerir ótrú­lega mikið fyrir lítil rými og getur gjör­breytt stof­unni þinni.

Fleiri lampar og góð lýs­ing út í hvert horn er einnig af hinu góða.

Texti / Guðríður Har­alds­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur