Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hugað að heilsunni í vinnunni

Mik­il­vægt er að huga vel að heils­unni á meðan við erum í vinn­unni.

Hugað að heilsunni í vinnunni

Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá eyðum við bróð­ur­parti tíma okkar í vinn­unni. Þess vegna er mjög mik­il­vægt að huga vel að heils­unni á meðan við erum á skrif­stof­unni. Hér eru nokkur góð ráð sem gott er að hafa í huga.

Alltaf við hönd­ina
Ofþornun getur haft áhrif á starf­semi lík­am­ans á margan hátt og eitt ein­kenni er ein­beyt­ing­ar­leysi og þreyta. Til að tryggja að við drekkum nægi­legt vatn yfir dag­inn er snið­ugt að vera með vatns­brúsa á skrif­borð­inu. Ósjálfrátt förum við að fá okkur einn og einn sopa þannig að áður en við vitum af erum við búin að drekka tvo lítra af vatni, eða ráð­lagðan dag­skammt.

Hollur kostur
Þegar mikið er að gera þá hættir okkur til að grípa eitt­hvern fljót­legan mat sem er oftar en ekki óhollur. Gott ráð til að sporna við þessu er að skipu­leggja nesti kvöldið áður. Ýmist er hægt að nota afganga frá kvöld­matnum eða gera ein­falda rétti, svo sem pasta­salat, sam­loku, skyr með múslí og svo fram­vegis.

Rétt staða
Það er mjög mik­il­vægt að passa að sitja rétt við skrif­borðið sitt ásamt því að tölvu­skjár­inn, lykla­borðið og músin séu á réttum stað. Því ef þessi atriði eru röng þá er hætt við að við fáum vöðva­bólgu, tennis­oln­boga og ýmsa fleiri kvilla. Mörg fyr­ir­tæki hafa tekið í gagnið upp­hækk­an­leg skrif­borð sem ýmist er hægt að standa og sitja við. Þannig getur fólk ráðið sinni vinnu­stöðu sjálft.

Gakktu um gólf
Það eitt að standa upp og fara á sal­ernið eða ná í kaffi­bolla getur komið blóð­flæð­inu aftur í gang og slakað á hug­anum. Ef þú hefur val reyndu að velja þá kaffi­vél eða sal­erni sem er hvað lengst frá vinnu­stöð þinni þannig að þú fáir sem mesta hreyf­ingu út úr þess­ari pásu. Eins er mik­il­vægt að sleppa lyft­unni og fara frekar stig­ann þegar það er hægt.

Hugsaðu vel um augun
Við getum ofreynt augun með því að stara allan dag­inn á upp­lýstan tölvu­skjá eða snjall­síma. Gott er að hafa 20-20-20 þum­al­putta­regl­una í huga, það er að taka 20 sek­úndna pásu á 20 mín­útna fresti og leyfðu aug­unum að renna yfir eitt­hvað í um 20 feta fjar­lægð, um það bil sex metra. Þetta slakar á spennu í öllum smáu vöðv­unum í aug­unum.

Fáðu ferskt loft
Það eitt að stíga út fyrir húss­ins dyr og anda að sér fersku lofti getur gert krafta­verk fyrir ein­beit­ingu og fram­leiðni – hvað þá ef þér tekst að hreyfa þig aðeins utandyra líka. Í stað þess að eyða öllum hádeg­is­matnum í það að borða og kjafta inni á kaffi­stofu ætt­irðu að standa upp og taka tutt­ugu mín­útna göngutúr um næsta nágrenni, þú verður mun kröft­ug­ari á eftir.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur