Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ekta ítölsk menning

Tinna Bessa­dóttir hönn­uður bjó ásamt fjöl­skyldu sinni í Treviso Veneto sem er í hálf­tíma akst­urs­fjar­lægð frá sjálfum Feneyjum.

Ekta ítölsk menning
Rétt innan veggja múrs­ins er hald­inn mark­aður alla fimmtu­dags- og laug­ar­dags­morgna.

„Treviso er eld­gömul borg sem á sér sögu allt frá 100 árum fyrir Krist. Borgin er byggð með hlið­sjón af Feneyjum. Feneyjar voru ekki með her en her­inn í Treviso varði Feneyjar. Borgin á sér mikla menn­ing­ar­sögu og mið­bær­inn er byggður inn í virki umkringt sýkjum sem kall­ast Le Mura-sýkin og setja mik­inn svip á bæinn. Þau minna á Feneyjar. Innan veggja mið­bæj­ar­ins búa um 3.000 manns og erfitt að fara um á bíl en innan marka Treviso búa um 82.535 manns. Við vorum svo heppin að fá ynd­is­lega fal­lega íbúð rétt við múr­inn og sóttum því alla okkar þjón­ustu, líkt og skóla barn­anna, innan veggja mið­bæj­ar­ins,“ segir Tinna.

Ódýrt flug
Treviso er frekar rík borg og Veneto-fylkið er það fylki sem á hvað mesta pen­inga á Ítalíu. „Það er lítið um fátækt í Treviso og mjög lág glæpa­tíðni. Sem dæmi má nefna að þá stendur á stóru skilti í hjarta mið­bæj­ar­ins, á torg­inu Piazza Del Signore, stórum stöfum: „Treviso mafíu­laus borg“.

Ryanair flýgur beint til Treviso frá London og er ekk­ert mál að finna flug þaðan fyrir 3.000-4.000 krónur. Það er einnig flogið frá Billund og þegar ég bjó í Danmörku var ódýr­ara fyrir mig að fljúga frá Billund til Treviso en að taka lest­ina frá Suður-Jótlandi til Kaup­manna­hafnar. Hótel og gisti­heim­ili eru ódýr­ari þar en nálægt Feneyjum en það tekur um hálf­tíma að taka lest­ina til Feneyja, tæpa tvo tíma til Verona og þrjá tíma til Mílanó.“

Uppruni tiramisu
Tiramisu-kakan kemur upp­una­lega frá Treviso og veit­inga­stað­ur­inn Le Beccherie, sem fann hana upp, er enn starf­andi. „Hann var í eigu sömu fjöl­skyldu frá upp­hafi, eða frá 1960, en árið 2014 var hins vegar skipt um eig­endur. Sama tiramisu-kakan hélt að sjálf­sögðu sínum sess á mat­seðl­inum. Tiramisu-kakan er stolt ítal­skrar mat­ar­menn­ingar og mæli ég hik­laust með að stoppa á þessum sögu­fræga stað og fá sér sneið. Heim­il­is­fangið er Piazza Giannino Ancilotto 11, 31100 Treviso.“

Borgin á sér mikla menn­ing­ar­sögu og mið­bær­inn er byggður inn í virki umkringt sýkjum sem kall­ast Le Mura-sýkin og setja mik­inn svip á bæinn. Þau minna á Feneyjar.

Ekta ítalskur mark­aður
Rétt innan veggja múrs­ins er hald­inn mark­aður alla fimmtu­dags- og laug­ar­dags­morgna. „Á þessum mark­aði fæst allt milli him­ins og jarðar og hægt að upp­lifa sanna ítalska menn­ingu eins og maður sér í gömlum bíó­myndum. Fatnaður, heim­il­is­á­höld, blóm, fal­leg veski, efn­is­strangar með fal­legu silki, pelsar og svona mætti lengi telja, flæða um, ásamt ferskum ávöxtum og græn­meti sem kemur beint frá bónda. Fiskur, kjöt og ostar eru einnig til staðar og kemur það allt líka beint frá bónda, afgreitt með bros á vör.

Alla þriðju­dags- og laug­ar­dags­morgna er fisk­mark­aður á lít­illi eyju í hjarta mið­bæj­ar­ins, Isolotto della Pesceria. Þessi litla eyja er umkringd fersku vatni sem liggur í gegn um allan mið­bæ­inn. Mark­að­ur­inn hefur verið þarna allt frá árinu 1854 og má oft sjá inn­fædda renna fyrir fiski á brúnni og iðandi fugla­líf sem setur skemmti­legan blæ á lista­verk borg­ar­innar. Umhverfis eyj­una eru fjöld­inn allur af litlum tratt­oria-veit­inga­stöðum þar sem gott er að setj­ast með litla smá­rétti og vín­glas, best er að panta einn af öllum. Það er gaman að segja frá því að vatnið innan múra Treviso er það hreint að það má vel drekka beint úr kran­anum.
Fjórða sunnu­dag hvers mán­aðar er antík­mark­aður við hlið Borgo Cavour. „Þar er enda­laust hægt að gramsa og finna ótrú­legar ger­semar.“

Fræg fata­merki
Piazza Del Signori er stærsta torg mið­bæj­ar­ins með ótal veit­inga­staði. „Þar er ynd­is­legt að setj­ast niður og fá sér pizzu og spriz að hætti heima­manna. Á kvöldin um helgar er oft lif­andi tón­list og dansað á torg­inu við harm­on­iku­spil eða ýmsar aðrar upp­á­komur. Þar er ávallt mikið mann­líf að hætti ítal­skrar menn­ingar, eins og brúð­kaup, skrúð­göngur og sýn­ingar af ýmsu tagi.

Það er gott að versla í borg­inni en flestar þær versl­anir sem eru innan veggja mið­bæj­ar­ins eru frekar í hærri kant­inum fyrir utan stóra og glæsi­lega H&M-verslun. Benetton-fjöl­skyldan er frá Treviso og bjuggu þeir bræður einmitt í bleikri höll sem prýddi enda göt­unnar okkar

Í Treviso eru höf­uð­stöðvar merkj­anna Benetton, Sisley, Stefanel, Geox, Diadora og Lotto Sport. Það er gott að versla í borg­inni en flestar þær versl­anir sem eru innan veggja mið­bæj­ar­ins eru frekar í hærri kant­inum fyrir utan stóra og glæsi­lega H&M-verslun. Benetton-fjöl­skyldan er frá Treviso og bjuggu þeir bræður einmitt í bleikri höll sem prýddi enda göt­unnar okkar.“

Frægur tenór
Einn fræg­asti tenór Ítala, Mario Del Monaco, er frá Treviso. „Finna má styttur og leik­hús í hans nafni í borg­inni. Það er um að gera að skella sér í leik­hús eða á tón­leika í hinu glæsi­lega leik­húsi Teatro Comunale Mario Del Monaco, teatrocomunaletreviso.it. Það er gaman að segja frá því að við bjuggum einmitt í gull­fal­legri íbúð bróður Del Monaco á meðan á dvöl okkar stóð í borg­inni. Þess vegna snart allt sem varð­aði þennan söngv­ara, sem hafði áhrif á sjálfa Pavarotti og Domingo, okkur djúpt.“

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Aðalmynd: Tinna Bessa­dóttir ásamt fjöl­skyld­unni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur