Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Pulsan sameinar alla Íslendinga

Pulsan sameinar alla Íslendinga

Þau Ylfa Ösp Áskels­dóttir og Ragnar Ísleifur Bragason reka hönn­un­ar­fyr­ir­tækið Pulsa Design en þau segja mik­il­vægt að menn­ing­ar­stólpum íslensks sam­fé­lags séu gerð góð skil í allri fram­setn­ingu.

„Pulsa Design er í raun sam­ein­ing­ar­tákn fyrir Íslend­inga enda er fátt íslenskarar og íslenskan pulsan,” segir Ylfa og heldur áfram. „Grunn hug­mynda­fræðin er byggð á vanga­veltum um ein­kenni Íslands og öllum þessum lunda­búðum sem okkur finnst ekk­ert sér­stak­lega íslenskar. Svo lá þetta í augum uppi þegar pulsan birt­ist okkur og þegar við loks­ins byrj­uðum fannst okkur eins og við hefðum löngu átt að vera búin að gera þetta. „Ég fór að hugsa um þessa túrista­sprengju og hvernig Ísland birt­ist ferða­mönnum. Mesta áherslan hefur verið lögð á lunda og ein­hverja nátt­úru en svo spyr maður sig, er ekki pulsan stærsta birt­ing­ar­mynd íslensks sam­fé­lags? Það hafa til að mynda mjög fáir borðað lunda en flestir fá sér pulsu kannski einu til fimm sinnum í viku. Hún er auð­vitað líka til marks um þá hug­vits­semi sem við Íslend­ingar höfum þegar kemur að mat­ar­menn­ingu og menn­ingu yfir höfuð.”

„Lífið er á margan hátt eins og pulsa,” bætir Ragnar við og heldur áfram.

„Alls konar hrá­efni, sem maður á erfitt með að henda reiður á, úr ölllum áttum sam­an­komin í einn hræri­graut og þrýst saman í eina góða rúllu sem bragð­ast vel svona dálítið eins og mann­kynið. Svo kemur áleggið sem er eins og reynslan, sumir lifa ein­földu lífi og fá sér til að mynda bara pulsu með tómatsósu og steiktum lauk meðan aðrir lifa flóknu lífi og fá sér eina með öllu. Það að við séum núna bara byrjuð að hanna dót og fá fyr­ir­spurnir frá fólki og svona, sýnir að þetta er hægt. Það eru allir hönn­uðir og það geta allir hannað dót. Við vorum nátt­úru­lega mjög heppin að detta inn á þennan umfangs­mikla menn­ing­ar­arf sem liggur í puls­unni og tengslum hennar við íslenskt sam­fé­lag. Við höfum byggt mikið af okkar hönnun á íslenskum hlutum. Sett þá í nýtt sam­hengi og betrumbætt. Hönnun snýst að mörgu leyti um að skoða hvað aðrir eru að gera í kringum þig og gera betri útgáfur af því. Okkur hefur oft fund­ist vanta nýtt spinn á marga hluti og þá kemur pulsan svo sterkt til manns.”

Viðtalið í heild má lesa í nýj­ustu Vikunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur