Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Vertu til er vorið kallar á þig

Nú er tím­inn til vor­verka, jafnt innan heim­il­is­ins sem utan. Allir eru upp­teknir við að taka til í skáp­unum, þrífa heim­ilin hátt og lágt eða und­ir­búa garða. Í öllu þessu amstri gleymum við stundum að huga að okkur sjálfum og hafa það huggu­legt. Hér eru nokkrar hug­myndir að vor­verkum fyrir lík­ama og sál.

Vertu til er vorið kallar á þig
Nú er rétti tím­inn til þess að djúp­hreinsa húð­ina vel til að tryggja að hún verði í topp­á­standi .

Fínir fætur
Nú kemur brátt sá tími þar sem við byrjum að klæð­ast opnum skóm og því ekki úr vegi að huga aðeins að fót­snyrt­ingu. Lítið mál er að gera hana heima; skella í gott fóta­bað með salti og horfa á eina góða bíó­mynd á meðan. Síðan er nauð­syn­legt að nota korna­krem eða þjöl til að fjar­lægja dautt skinn og klippa og pússa neglur. Þessu er svo lokið með góðu fótakremi og fót­unum stungið í mjúka bómull­ar­sokka.

Einn, tveir og út
Það er óþarfi að púla inni á lík­ams­rækt­ar­stöðvum þegar veðrið er orðið gott. Við úti­veru fær maður aukið súr­efni, sem stuðlar að auk­inni brennslu og svo auð­vitað smá­vegis D-vítamín sem okkur er oft farið að vanta eftir langan og dimman vetur.

Sýndu þitt rétta and­lit
Vorið er rétti tím­inn til þess að djúp­hreinsa húð­ina vel til að tryggja að hún verði í topp­á­standi í sumar. Auðvelt að gera það sjálfur heima en það er vel þess virði að fara í and­lits­bað á snyrti­stofu, alla­vega svona einu sinni á ári. Þar er yfir­leitt boðið er upp á öfl­ugri með­ferðir, eins og ávaxta­sýru­með­ferð eða vítamín­með­ferð. Vert er að hafa í huga að húðin verður aðeins við­kvæm­ari eftir slíkar með­ferðir og því þarf að passa sig sér­stak­lega á sól­inni í alla­vega sól­ar­hring á eftir.

Sítrónur – allra meina bót
Gott er að drekka volgt sítrónu­vatn á morgn­ana því það kemur melt­ing­unni af stað fyrir dag­inn. Sítrónu­safi er fremur vatns­los­andi og hjálpar því til að losa við bjúg sem ku hafa safn­ast fyrir um vet­ur­inn. Hann getur líka stuðlað að þyngd­ar­tapi en sumar rann­sóknir hafa sýnt að fólk sem heldur sig við basískt matar­æði er fljót­ara að ná af sér nokkrum kílóum en þeir sem ekki gera það.

Unaðsbað
Það er algjör unaður að láta streitu og áhyggjur líða úr sér í góðu baði. Hægt er að bæta baðið með ýmsu móti og gera það enn betra; til dæmis er hægt að bæta epsom-salti, olíu og nokkrum dropum af upp­á­halds­ilm­kjarna­ol­í­unni út í bað­vatnið, kveikja á kertum, setja góða tón­list á fón­inn og lesa bók eða fletta blaði.

Skrúbb, skrúbb, skrúbb
Gott að er nýta tæki­færið og skrúbba af sér vetr­ar­ham­inn. Ódýr og auð­veld leið er að nota þar til gerða skrúbb­hanska eða -bursta sem fást í flestum apó­tekum og heilsu­vöru­versl­unum. Einnig fram­leiða mörg fyr­ir­tæki lík­ams­skrúbba sam­hliða kremum. Í möndlu­línu L’Occitane má finna mjög girni­legar húð­vörur, til dæmis skrúbb sem er búinn til úr möndlu­olíu og -skeljum og þur­r­olíu sem gott er að setja á sig eftir allt skrúbbið.

Seiðandi sum­ar­salat
Það verður að segj­ast eins og er að salat er ekki það sem mann langar að borða þegar úti er frost og funi og þess vegna borðum við yfir­leitt þungan mat yfir vetr­ar­tím­ann. Á góð­viðr­is­dögum er því til­valið að fá sér góm­sætt salat sem er stút­fullt af vítamínum og stein­efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur