Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þetta er sagan hans

Benjamín Nökkvi Björns­son greind­ist með hvít­blæði níu vikna gam­all. Hann sigr­að­ist tvisvar á veik­indum sínum og er sá ein­stak­lingur sem hefur lifað lengst með meinið.

Þetta er sagan hans

Tæpum tólf árum síðar laut hann í lægra haldi eftir að hafa þjást af sjald­gæfum lungna­sjúk­dómi. Móðir hans, Eygló Guð­munds­dóttir segir Benjamín notið hafa góðra lífs­kjara enda lifði hann í algjörri núvit­und. Hún varði nýverið dokt­ors­rit­gerð sína sem fjallar um sál­fé­lags­leg áhrif for­eldra krabba­meins­greindra barna, sam­hliða því að skrifa bók um sögu þeirra mæðgina.

Sama dag og Benjamín dó átti hann inni­halds­ríkt sam­tal við móður sína. „Hann sagð­ist ekki eiga mikið eftir inni og spurði hvort ég yrði leið að heyra hann segja þetta. Ég játti því auð­vitað en bætti við að hann mætti tala um allt við mig. Við héld­umst svo í hendur og grétum.
Ég hafði séð hann draga sig sífellt meira inn í skel og á þessum tíma var hann alfarið hættur að mæta í skól­ann. Síðasta árið vildi hann lítið umgang­ast önnur börn og upp­lifði sig sífellt meira sem lík­am­lega van­mátt­ugan. Ég hélt á honum milli staða til að spara ork­una hans en þegar vinir hans voru fyrir utan í fót­bolta og hann með súr­efn­iskút­inn hélt hann fast í virð­ingu sína og bað um að fá að ganga. Svo heils­aði hann en hélt aftur inn.”

„Hann fór rosa­lega langt á þrjósk­unni og síð­ustu vik­una lifði hann á vilj­anum. Hann hafði ákveðið að halda Fífa-mót og fleira en þegar því lokið dó hann á einum degi.”

Bókin, sem bráðum kemur út byrj­aði sem blogg­færsla en Eygló vant­aði hvíld frá síma­eyr­anu. „Sem móðir lang­veiks barns verður maður fljótt þreyttur í síma­eyr­anu en samt þakk­látur þeim sem vildu fylgj­ast með. Ég hætti að blogga en fann frið­þæg­ingu í skrif­unum. Þau urðu óvart að bók­ar­hand­riti en til­gangur þess að birta skrifin er fræðsla, á hvers­dags­máli. Hver sem er á að geta lesið og sett sína sýn í text­ann en á sama tíma upp­lýsa þá sem standa hinum megin við lín­una.”

„Það segir til að mynda ekki sann­leik­ann þegar for­eldrar veikra barna svara að þau hafi það fínt. Þau vita að þau hafa fimmtán mín­útur og verja þeim tíma skilj­an­lega frekar í að lækn­ir­inn fari yfir stöðu veika barns­ins en sinnar eigin.”

„En þetta er saga okkar Benja­míns. Þrátt fyrir að við hefðum mætt alls­konar við­móti er þetta síður en svo ein­hver predik­un­ar­bók. Þeir sem þekkja vita að maður verður ofboðs­lega einn í svona ferli. Eitt af því sem ég á erf­ið­ast með að heyra sem sál­fræð­ingur er að það sem brjóti mann ekki styrki því í svona til­fellum er maður neyddur út í aðstæður. Ef ég mætti velja væri ég ekki pínd til að standa á brún­inni til að njóta lífs­ins. Á sama tíma veit ég að fólk meinar vel og eflaust myndi Benjamín skamma mig fyrir að vera dóna­leg því hann vildi bara vera blíður. Þetta er bókin hans og á sama tíma við­brögð mín í geggj­uðum aðstæðum.”

Viðtalið má lesa í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

Texti / Íris Hauks­dóttir.
Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir.
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur