Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Erum að verða of sein að bjarga jörðinni

Val­gerður Árna­dóttir kom með látum inn á póli­tíska sviðið þegar hún bauð sig fram fyrir hönd Pírata í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í vor. Vala, eins og hún er oft­ast kölluð, er vegan og mikil bar­áttu­kona fyrir rétt­indum dýra en hún er fram­kvæmda­stjóri Samtaka græn­metisæta. Kven­rétt­inda­bar­áttan er henni einnig hug­leikin en nýverið stofn­aði hún við­burða­fyr­ir­tækið Puzzy Patrol sem berst fyrir því að konur fái sömu tæki­færi og karlar í tón­list­ar­heim­inum.

Erum að verða of sein að bjarga jörðinni
Val­gerður Árna­dóttir prýðir nýj­ustu for­síðu Vikunnar.

Vala var ekki há í loft­inu þegar hún tók ákvörðun um að ger­ast græn­metisæta. Hún varði nótt á tjald­stæði við hlið slát­ur­húss og vakn­aði við veinið í grís­unum áður en þeim var slátrað. Næstu tutt­ugu og fimm árin var hún fiskæta en það var frá­sögn vin­konu hennar sem opn­aði augu hennar fyrir grimmd mjólkur­iðn­að­ar­ins. „Vinkona mín fæddi veikt barn sem var ekki hugað líf. Á meðan dreng­ur­inn hennar barð­ist fyrir lífi sínu þurfti hún að mjólka sig og einnig eftir að hann dó vegna þess að mjólkin fór ekki strax. Þá sorg sem hún upp­lifði við að þurfa að mjólka sig þrátt fyrir að barnið hennar væri dáið tengdi hún við upp­lifun kúnna. Þær ganga einnig með afkvæmin sín í níu mán­uði sem er svo tekið af þeim við fæð­ingu svo hægt sé að mjólka þær fyrir mann­fólkið, sem í raun þarf ekki á mjólk­inni að halda. Ég missti alger­lega lyst­ina og ég sem hafði sagt að ég „elskaði ost“ gat ekki hugsað mér að stuðla að þessarri þján­ingu.“

Vala tók þátt í Veganúar í jan­ú­ar­byrjun fyrir tveimur árum síðan og eftir það var ekki aftur snúið. Hún segir breyt­ing­arnar á heilsu og almennri líðan virki­lega jákvæðar. „Áður en ég varð vegan var ég með krónískt mígreni og þrá­látar ennis- og kinn­holu­sýk­ingar. En við það að taka út mjólk­ur­vörur hurfu nán­ast mígreni­köstin og ég hef bara einu sinni fengið kvef á þessum tæpu þremur árum. Ég missti líka nokkur kíló af „mjólk­ur­skvapi“, húðin varð betri og ég hress­ari og orku­meiri. Ég fór meira að segja að æfa crossfit og ganga á fjöll, eitt­hvað varð ég að gera við alla þessa auka­orku,“ segir Vala og hlær dill­andi hlátr­inum sem ein­kennir hana. „Mér líður miklu betur bæði and­lega og lík­am­lega og mér finnst ég loks­ins lifa líf­inu eftir eigin sann­fær­ingu og gildum en ekki þeim sem sam­fé­lagið hefur sagt mér að gera frá fæð­ingu,“ segir hún og meinar hvert ein­asta orð.

Aðspurð hvort hún hafi fengið mikla gagn­rýni fyrir lífs­stíl sinn segir hún ótrú­legt hvað vegan­ismi getur vakið harka­leg við­brögð hjá fólki. „Fólk á það til að finn­ast það knúið til að rétt­læta eigin kjöt­neyslu fyrir mér eða segja mér að ég sé öfga­full og nota þaðan af verri við­ur­nefni.

Eins er full­kom­lega við­ur­kennt að gera grín að vegan­isma við hin ýmsu tæki­færi, það er ekki komið á bann­lista eins og ras­ismi og kven­fyr­ir­litn­ing.

Ég verð að vonum oft þreytt á óum­beðnum rétt­læt­ingum ann­arra og hef þurft að biðja fólk vin­sam­leg­ast um að hætta að predika yfir mér. Stundum hef ég líka hvæst á móti þegar fólk lætur mig ekki í friði í fjöl­skyldu­boðum og öðrum manna­mótum, ég er bara mann­leg,“ segir Vala ein­læg.

ÁREITI SEM FYLGIR ÞVÍ AÐ VERA KVENKYNSPLÖTUSNÚÐUR

Vala er gall­harður femínisti og mál­efni kvenna eru henni afar hug­leikin. Hún ákvað að stofna við­burða­fyr­ir­tækið Puzzy Patrol en það sér­hæfir sig í að skipu­leggja við­burði með lista­konum og fem­inískum tals­konum til að styðja við konur í listum. Hún segir hug­mynd­ina hafa kviknað kvöldið sem Donald Trump var settur í emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna. „Ég hef alltaf haft mik­inn áhuga á tón­list og þetta til­tekna kvöld var ég að þeyta skífum á Kaffi Vinyl og hafði í til­efni dags­ins hannað og prentað á boli fyrir mig og vin­konur mínar með slag­orð­inu „Pussy grabs back“. Ég spil­aði ein­ungis tón­list með konum eða samda af konum, hipphopp og R&B. Þetta fram­tak vakti því­líka lukku og banda­rískar konur sem voru á staðnum þökk­uðu fyrir stuðn­ing­inn með tárin í aug­unum. Þær höfðu lagt í ferða­lag til Íslands til að vera sem lengst frá Banda­ríkj­unum þennan dag, sem þær köll­uðu sorg­ar­dag fyrir konur. Ég stofn­aði stuttu seinna Puzzy Patrol með Ingi­björgu Björns­dóttur vin­konu minni sem er menntuð í við­burð­ar­stjórnun. Það er mik­ill upp­gangur í hipphoppi og margar flottar tón­list­ar­konur í þeim geira sem fá ekki sömu tæki­færi og strák­arnir og þess vegna ein­beittum við okkur að þess­ari tón­list­ar­stefnu til að byrja með. Við vorum með okkar eigið kvöld á Airwaves og héldum svo mál­þing og stór­tón­leika með öllum helstu tón­list­ar­konum lands­ins í Gamla bíói í jan­úar. Ingi­björg er að flytja til Dan­merkur og við erum að skoða það að fara í nor­rænt sam­starf. Flytja tón­list­ar­konur út og erlendar konur kæmu hingað að spila,“ segir Vala sem þeytir skífum undir dj-nafn­inu Pussy Valore.

Áreiti frá hinu kyn­inu segir hún óneit­an­lega fylgi­fisk þess að vera kven­kyns­plötu­snúður. „Eins og það er gaman að þeyta skífum og skemmta fólki þá getur áreitið orðið erfitt, sér­stak­lega þegar þú ert kona. Ég á nokkrar vin­konur sem eru plötu­snúðar og er oft þeim til sam­lætis og stuðn­ings þegar þær spila. Nýlega var ég Dj de la Rosa til sam­lætis og stóð hjá henni við dj-búrið, aðal­lega til að hindra að menn færu ekki inn fyrir það til að fikta í græj­unum eða skipta um lag, enda halda menn að konur geti það ekki þótt þær vinni sem plötu­snúðar. En þetta til­tekna kvöld var rosa­hress steggja­hópur á staðnum sem margoft komu og báðu um óska­lög og reyndu að draga mig á dans­gólfið sem ég neit­aði alltaf kurt­eis­is­lega. Ég lét skýrt í ljós að ég hefði ekki áhuga en svo þurfti ég að fara á kló­settið og til þess þurfti ég að fara yfir dans­gólfið. Ég var ekki fyrr búin að taka nokkur skref þegar ég var gripin og mér lyft upp í loftið eins og bikar á fót­bolta­móti.  Sigri hrós­andi karl sneri mér í hringi eins og ekk­ert væri sjálf­sagð­ara. Það fauk í mig og ég bað hann að setja mig niður en hann sleppti mér ekki fyrr en dyra­vörð­ur­inn kom aðvíf­andi og hót­aði að henda honum út ef hann léti mig ekki niður.

Steggj­unum fannst öllum við dyra­vörð­ur­inn vera voða fýlu­púkar, auð­vitað eiga menn að fá að grípa konu sem þeim líst vel á og sveifla henni upp í loft eins og bav­í­anar með ban­ana­klasa.

Mér fannst þetta mjög nið­ur­lægj­andi og ég hugs­aði með sjálfri mér að það er ekki eins og ég sé tví­tug smá­stelpa. En svo rann upp fyrir mér að einmitt á þeim aldri lét ég mig bara hafa svona hegðun. Þetta var bara partur af því að vera ung og sæt og álitin vera ein­hver hlutur sem mátti káfa á, lyfta upp og grípa í án þess að fá leyfi og því miður við­gengst það enn. En mér finn­ast eldri menn vera verri en þessi yngri, ég vona að yngri kyn­slóðin sé að læra betri siði, bæði hvað varðar drykkju og hvað varðar virð­ingu gagn­vart konum.“

Viðtalið í heild má lesa í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

Texti: Helga Krist­jáns

Myndir: Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu