Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Birgitta um Írafárs-ævintýrið: „Ég gekk oft fram af mér“

Birgitta Haukdal er óneit­an­lega í upp­á­haldi hjá Íslend­ingum á öllum aldri, enda erfitt að falla ekki fyrir útgeislun hennar og ein­lægni. Birgitta sló eft­ir­minni­lega í gegn í kringum alda­mótin og gerði allt vit­laust með hljóm­sveit­inni Írafári. Eftir mikla keyrslu og tíma­bil sem hún lýsir sem rús­sí­ban­areið tóku þau þá ákvörðun um að hætta á toppnum. Síðustu ár hefur Birgitta ein­beitt sér að öðru en á þessum tíma hefur hún stofnað fjöl­skyldu, búið erlendis og flutt til baka, skrifað barna­bækur og unnið að fjöl­breyttum verk­efnum. Fyrr á árinu kom Írafár saman aftur og óhætt að full­yrða að um end­ur­komu ald­ar­innar hafi verið að ræða.

Birgitta um Írafárs-ævintýrið: „Ég gekk oft fram af mér“

Stór­tón­leikar Írafárs fóru fram 2. júní síð­ast­lið­inn þar sem gestum varð ljóst að með­limir sveit­ar­innar hefðu engu gleymt. Birgitta segir það ólýs­an­lega til­finn­ingu að standa frammi fyrir fullum Eld­borg­ar­sal og fá að flytja tón­list­ina sína, ekki síst þar sem ætt­ingjar og vinir voru á staðnum. Meðal gesta var níu ára sonur Birgittu, Víkingur Brynjar. „Hann var algjör­lega stjarfur að sögn pabba síns allan tím­ann en þetta var í fyrsta sinn sem hann sá mig á heilum tón­leikum en ekki bara að flytja eitt og eitt lag. Eftir tón­leik­ana spurði ég hvernig honum hefði fund­ist og hann var í skýj­unum með þetta. Hann við­ur­kenndi þó að hafa verið mjög stress­aður fyrir mína hönd og þegar ég spurði hann nánar út í það var svarið, „ég var svo hræddur um að þú myndir rugl­ast, mamma“,“ segir Birgitta og hlær.

Meðlimir Írafárs ákváðu að koma einnig fram á Þjóð­há­tíð og kveðja svo á Menn­ing­arnótt. „Við komum þar fram, til þess að segja svo að við værum farin aftur. Við vitum ekki hvort við erum að kveðja í ár eða í 10 ár. En okkur fannst þetta flott, koma fram með eitt­hvað geggjað og bakka svo út aftur þar til næst.“

Birgitta seg­ist finna mik­inn mun á því að koma fram núna og á þeim árum sem þau voru á toppnum. „Þá var þetta atvinna mín númer eitt, tvö og þrjú og alltaf svo ótrú­lega mikið að gera. Þetta var algjör rús­sí­ban­areið, enda varð svo mikil spreng­ing í kringum okkur. Ég var út um allt, dag eftir dag, og náði í raun ekki að njóta. Hausinn var stilltur á vinnustill­ingu og þetta var bara keyrsla. Inn á milli þegar ég fékk frí var ég bara í bóm­ull að reyna halda viti og passa upp á rödd­ina. En í dag er ég að gera þetta frekar mér til skemmt­unar en atvinnu. Það er svo mik­ill munur að geta staðið og andað augna­blik­inu að sér og notið þess. Það spilar að sjálf­sögðu inn í að ég er orðin eldri og þroskaðri og farin að átta mig á þessum for­rétt­indum.“

Rús­sí­ban­areið er orðið sem Birgitta notar yfir árin sem Írafár var upp á sitt besta og ekki af ástæðu­lausu. Hún tekur fram að árin 2002 og 2003 hafi verið sér­stak­lega þétt. „Þetta ár var ég bara í rugl­inu. Ég var að spila út um allt með Írafári, var í öllum við­tölum, og í raun bara í alls staðar þar sem hægt var að vera. Ég lék í Grease á þessum tíma og fór oft beint eftir sýn­ingar til að syngja á böllum. Á dag­inn var ég svo að æfa fyrir Eurovision og fór í þá ferð. Inn á milli reyndi ég semja tón­list. Þetta var algjör bilun og mjög erf­iður tími í minn­ing­unni en rosa­lega skemmti­legur líka. Mjög dýr­mæt reynsla sem ég myndi aldrei vilja skipta út fyrir eitt­hvað annað. Ég gekk hins vegar oft fram af mér og hélt að ég gæti tekið meira að mér en raun var og þá lenti ég á vegg. Þótt það sé gaman að hugsa til baka sæki ég ekki í svona læti aftur.“

Þetta er aðeins brot úr ítar­legu við­tali við Birgittu Haukdal, en hún prýðir for­síðu sér­stakrar afmæl­is­út­gáfu Vikunnar sem vænt­an­leg er í versl­anir í dag.

/Texti: Margrét Björk Jóns­dóttir
/Myndir: Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur