Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Ekkert hræddur um að móðga fólk“

Halldór Hall­dórs­son, sem flestir þekkja ein­fald­lega sem Dóra DNA, er einn af lands­ins bestu grínistum. Dóri hefur í nægu að snú­ast þessa dag­ana en hann er nýlega kom­inn aftur til starfa eftir að hafa verið heima með Flosa, yngsta son sinn, í 18 mán­uði.

„Ekkert hræddur um að móðga fólk“

„Þegar maður á þrjú börn þá er tím­inn sem þau eru á sínum mennta­stofn­unum ómet­an­legur og það hefur kennt mér að nýta og skipu­leggja hann vel. Síðan Flosi byrj­aði á leik­skóla hef ég notið þess að vinna skipu­lagðan vinnu­dag,“ segir Dóri. „Venju­legur dagur hjá mér hefst á því að ég fer á kaffi­húsið Bismút klukkan níu, kjafta við gesti og gang­andi í um hálf­tíma. Þaðan fer ég svo á skrif­stof­una og skrifa en ég er með marg­vís­leg verk­efni í gangi. Ég er að vinna að gerð ýmissa hand­rita og verk­efna með Haf­steini Gunnari, skrifa uppi­standsefni, skáld­sögu og fleira. Það að skrifa er upp­á­haldið mitt. Mér líður aldrei betur, ekk­ert finnst mér auð­veld­ara og ekk­ert liggur jafn­vel fyrir mér. Svo reyni ég að enda alla daga á ein­hverri hreyf­ingu, hlaupum, lyft­ingum eða hnefa­leikum. Síðustu ár hef ég notað sept­em­ber og októ­ber til að gera til­raunir á matar­æði. Núna er ég á ketó-matar­æð­inu í þriðja sinn og ætla að skipta yfir í 20/4 í októ­ber.“

Ekkert bannað og ekkert mun verða bannað

Eins og margir vita er Dóri hluti af Mið-Íslandi hópnum, teymi sem sam­anstendur af nokkrum bestu grínistum lands­ins. „Mið-Ísland er alltaf jafn vel sótt. Við tökum þetta ár frá ári og sýnum þar til fólk hættir að mæta. Við hefjum haustin á því að halda prufu­sýn­ingar þar sem við prófum efni sem við höfum párað hjá okkur. Svo mótum við það betur og frum­sýnum í jan­úar. Við eigum tíu ára starfs­af­mæli í ár, sem er nettur skellur.“

Síðustu miss­eri hefur átt sér stað ákveðin umræða varð­andi grín og að „ekk­ert megi“ lengur. Sjálfur seg­ist Dóri ekki finna mik­inn mun á við­horfi fólks varð­andi þetta.
„Ég get ekki sagt það. Það er ekki endi­lega það að fólk sé orðið við­kvæmara, það er bara ekki mót­tæki­legt fyrir ákveðnu gríni. Sér­stak­lega gríni sem er á kostnað minni­hluta­hópa eða gríni sem fer nálægt eða yfir landa­mæri kyn­bund­ins ofbeldis. En það er ekk­ert vanda­mál hjá okkur, við höfum alltaf verið smekk­legir, að mér finnst. Aldrei stuðað neinn svo harka­lega að honum hefur fund­ist það til­efni til að segja það upp­hátt. Þannig erum við bara, sumt grín er bara best í lok­uðum hópi. Það er ein­hver bylgja núna af sér­stak­lega karl­mönnum sem finnst allt bannað. Það er ekk­ert bannað og ekk­ert mun verða bannað. Fólk er bara dug­legra við að láta heyra í sér, þegar því finnst eitt­hvað ekki í lagi. Þegar ein­hver segir að eitt­hvert grín sé ófyndið eða óvið­eig­andi eru það ekki rit­skoð­un­ar­til­burðir, alls ekki. Að vera ósáttur við eitt­hvað er ekki að banna það eða krefj­ast þess að það sé bann­fært. Ég segi oft brand­ara sem eru á mörkum þess að vera ósmekk­legir, í húmor þá elska ég þessi landa­mæri. Og ef þeir ganga fram af fólki, þá hætti ég að segja þá og biðst afsök­unar er þess þarf. Það er hressandi að hafa rangt fyrir sér og svo má ekki gleyma að brand­arar eru bara brand­arar.“

Dóri segir þá félaga í Mið-Íslandi ekki vit­und hrædda við að móðga fólk. „Það væri heldur tak­mark­aður grínisti sem lifir við þann ótta. Við leyfum okkur að grín­ast með hvað sem er, sér­stak­lega okkar á milli. En eng­inn okkar hefur áhuga á því að vera ósmekk­legur eða ógeðs­legur. Sjálfum leið­ist mér þessi til­hneig­ing í ákveðnum grínistum að reyna ganga fram af fólki. Sumir elska þannig grín og gjöri þeim svo vel – það er eitt­hvað fyrir alla og það er æðis­legt. En eins og staðan er núna er eng­inn okkar og eng­inn af þeim grínistum sem eru í okkar mengi á þeim skónum.“

Leiklistarbaktería á háu stigi

Dóri verður að eigin sögn aldrei stress­aður fyrir sýn­ingar. „Ekki ef ég veit að efnið sem ég er að flytja er gott. Að koma fram hefur aldrei vaf­ist fyrir mér, oft líður mér best þannig, ótrú­legt en satt. En það er mjög stressandi að fara fram með nýtt efni sem þú veist ekk­ert hvernig verður tekið, en það er líka upp­á­haldið mitt. Maður hefur stundum dottið í gír, þar sem allt verður fyndið og heil­inn á manni fer á milljón. Ég hef samið heilu brand­ar­ana af fingrum fram, flókna brand­ara með „call-backs“ á sviði, það er ótrú­leg til­finn­ing. Ég hef einnig yfir­gefið sviðið í víga­hug til þess að gera út um áhorf­anda sem var með frammíköll og dóna­skap. Hræði­legt. En þú manst alltaf best eftir því þegar þú hefur skitið á þig. Og ég hef skitið vel á mig í uppi­standi. Man eftir sér­stak­lega einu giggi á árs­há­tíð kvik­mynda­gerð­ar­fólks fyrir löngu. Það var ömur­legt. Fyrsta skiptið sem ég bombaði – mun aldrei gleyma því.“

Dóri hefur ekki aðeins látið til sín taka í uppi­stöndum og grín-sketchum, heldur einnig á hvíta tjald­inu. Hann lék nokkuð stórt hlut­verk í vin­sæl­ustu kvik­mynd lands­ins þessa dag­ana, Lof mér að falla. Hann er að eigin sögn kom­inn með leik­list­ar­bakt­eríu á háu stigi, seint og löngu eftir lista­há­skóla­árin. „Mig langar mikið til að leika meira, bæði grín, drama og hvað sem er. Mér fannst ótrú­lega gaman að leika í Lof mér að falla. Leika per­sónu af húð og hári og pæla í því hvernig hún er og hvað hefur mótað hana. Vonandi fæ ég fleiri svo­leiðis verk­efni upp í hend­urnar,“ segir Dóri DNA að lokum.

Viðtalið birt­ist upp­haf­lega í Vikunni.

/Texti: Margrét Björk Jóns­dóttir
/Myndir: Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur