Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Íslendingar áhugasamir um staðgöngumæðrun

For­svars­maður ísra­elska fyr­ir­tæk­is­ins Tammuz Nordic, sem býður fólki upp á milli­göngu um stað­göngu­mæðrun, segir Íslend­inga spennta fyrir þessum kosti. Fyr­ir­tækið hélt hér kynn­ing­ar­fund á dög­unum og í kjöl­farið barst því fjöldi fyr­ir­spurna frá áhuga­sömum Íslend­ingum.

Íslendingar áhugasamir um staðgöngumæðrun
Mikkel Raahede, for­svars­maður Tammuz Nordic.

„Fólk hefur verið í sam­bandi við okkur og að minnsta kosti þrjú pör eru mjög áhuga­söm um að fara þessa leið, það er að segja að eign­ast barn með aðstoð stað­göngu­móður,“ segir Mikkel Raahede, for­svars­maður ísra­elska stað­göngu­mæðr­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Tammuz Nordic, sem býður fólki upp á milli­göngu um stað­göngu­mæðrun. Mikkel hélt hér á dög­unum fyr­ir­lestur fyrir áhuga­sama um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins og þann kost að eign­ast barn með stað­göngu­mæðrun. Hann segir fund­inn hafa verið ágæt­lega sóttan og að honum loknum hafi fyr­ir­tæk­inu borist fjöldi fyr­ir­spurna frá áhuga­sömum Íslend­ingum.
„Fólk hefur meðal ann­ars verið for­vitn­ast um sið­fræði­legu hlið­ina og þá laga­legu,“ segir hann, en eins og kunn­ugt er stað­göngu­mæðrun ólög­leg á Íslandi. Mikkel segir þó ekki ólög­legt fyrir Íslend­inga að fá stað­göngu­mæðrun erlendis, það hafi hann verið full­viss­aður um af íslenskum lög­fræð­ingum.

Fyrstu börnin árið 2020
Að hans sögn hafa mest­megnis karl­kyns sam­kynja pör á Íslandi verið í sam­skiptum við Tammuz Nordic eftir fyr­ir­lest­ur­inn en þjón­ustan sem fyr­ir­tækið býður upp á stendur bæði gagn­kyn­hneigðum pörum og karl­kyns sam­kyn­hneigðum pörum til boða og sömu­leiðis ein­stæðum karl­mönnum. Vegna íslenskra laga segir Mikkel að tölu­vert flókn­ara sé að aðstoða ein­stæðar konur og les­b­íur, þar sem barnið yrði skráð barn stað­göngu­móð­ur­innar og því gæti kona lent í vand­ræðum með að fá að koma með barnið inn í landið. Hann bendir á að sé fað­ir­inn íslenskur, til dæmis eins og þegar um er að ræða gagn­kyn­hneigð pör eða tvo karl­menn, sé þetta aftur á móti ekki vanda­mál.

„Fólk hefur verið í sam­bandi við okkur og að minnsta kosti þrjú pör eru mjög áhuga­söm um að fara þessa leið, það er að segja að eign­ast barn með aðstoð stað­göngu­móður.“

Spurður hversu langan tíma taki umsækj­endur að fara í gegnum allt ferlið, segir Mikkel að algengur tími sé á bil­inu 16 til 18 mán­uðir. Umsækj­endur þurfi þó fyrst að upp­fylla ýmis skil­yrði sem Tammuz Nordic setur, rétt eins og konur sem vilja ger­ast stað­göngu­mæður þurfa að upp­fylla alls kyns kröfur, en þær þurfa m.a. að und­ir­gang­ast lækn­is­skoðun. „Við ræðum við fólk, metum hæfni þess til að ger­ast for­eldrar og það hefur komið fyrir að við höfum hafnað umsækj­endum,“ segir hann en tekur fram að þeir Íslend­ingar sem hafa átt í sam­skiptum við fyr­ir­ækið eftir fyr­ir­lest­ur­inn komi vel út. Gangi allt vel fyrir sig gætu fyrstu börnin verið komin til vænt­an­legra for­eldra í febr­úar árið 2020.

Mótmæli á fyr­ir­lestr­inum
Tammuz Nordic hefur starfað í tíu ár og segir Mikkel engin vanda­mál hafa komið upp hjá fyr­ir­tæk­inu, engar lög­sóknir og að það sé eitt hið virtasta í heimi á sínu sviði. Því hafi komið honum á óvart þegar efnt var til mót­mæla vegna fyr­ir­lest­urs­ins á Íslandi, en einn mót­mæl­andi mætti á svæðið og kall­aði til lög­reglu. „Lög­reglan yfir­heyrði mig og hvarf svo fljót­lega af vett­vangi, enda átti sér ekk­ert ólög­legt stað,“ segir hann en kveðst þó skilja þessa afstöðu þar sem stað­göngu­mæðrun hafi sums staðar á sér illt orð. Tammuz Nordic styðji hins vegar vel við stað­göngu­mæð­urnar og vænt­an­lega for­eldra. „Það eina sem við viljum er að hjálpa fólki að ger­ast for­eldrar,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur