Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Áfallið sem breytti öllu

Þrátt fyrir að vera aðeins rúm­lega þrí­tug hefur Arna Páls­dóttir upp­lifað meira en margir gera á heilli ævi. Hún ólst upp við mjög óhefð­bundið fjöl­skyldu­mynstur og þurfti snemma að standa á eigin fótum. Á dög­unum birti Arna pistil á Vísir.is sem ber heitið „Að vilja deyja eða geta ekki lifað “ en þar opn­aði hún sig um sjálfs­víg föður síns og sína upp­lifun af því að vera aðstand­andi. Pistill­inn kveikti áhuga hjá okkur á að kynn­ast þess­ari heil­steyptu konu betur og heyra sögu hennar.

Áfallið sem breytti öllu

Arna var tveggja ára þegar for­eldrar hennar skildu og á því engar minn­ingar af þeim sem hjónum. Skiln­að­ur­inn var þungur og erf­iður og fór það svo að Arna flutti af heim­il­inu með pabba sínum en Lilja systir hennar sem er fimm árum eldri varð eftir hjá móður þeirra. Arna segir þessa ákvörðun hafa kostað móður hennar sál­ar­stríð allar götur síðan. „Ég held að það hafi ekki legið nein sér­stök hugsun að baki í upp­hafi en þegar mikið gengur á í til­finn­inga­lífi fólks eru ákvarð­anir sjaldan teknar af yfir­vegun og skyn­semi.“

Mamma veit að hún hefur minn skiln­ing og ég veit að einn dag­inn mun hún sætt­ast við þennan kafla í lífi okkar.

Áfallið sem breytti öllu

Arna segir þessar aðstæður og erfið sam­skipti milli for­eldra sinna vissu­lega hafa mótað æsku sína. Heimili hennar hafi verið mjög ást­ríkt en á sama tíma með­virkt. Faðir hennar stjórn­aði sam­skiptum og umgengni Örnu við mömmu hennar og hafði einnig mikil völd í sam­bandi hennar við stjúp­móður sína. Var það meðal ann­ars alveg skýrt af hans hálfu að ef leiðir myndu skilja, myndu leiðir þeirra mæðgna gera það líka. Van­máttur þeirra gagn­vart honum var mik­ill.

Mynd / Unnur Magna

„Pabbi minn var dásam­legur maður, örlátur, inni­legur og hjarta­hlýr,“ segir Arna þegar hún lýsir föður sínum. „En hann átti sínar skugga­hliðar og það var ekki auð­veld­lega farið gegn því sem hann hafði ákveðið. Þótt hann hafi verið góður maður tók hann ekki alltaf góðar ákvarð­anir. Hann var ofboðs­lega stór per­sóna sem hafði mikla útgeislun og nær­veru, var hrókur alls fagn­aðar. Við bjuggum við fjár­hags­legt öryggi og hann var alltaf að, hvort sem það var að smíða pall, stækka húsið eða gera upp gamlan Benz í bíl­skúrnum, enda ein­stak­lega hand­lag­inn. Hann elskaði að ferð­ast og við fjöl­skyldan ferð­uð­umst mikið.“

„Pabbi minn var dásam­legur maður, örlátur, inni­legur og hjarta­hlýr.“

En sagt er að hver hafi sinn djöful að draga. Þung­lyndi og alkó­hól­ismi sóttu hart að heim­il­is­föð­urnum, og þótt Arna hafi verið náin pabba sínum og elskað hann mikið, við­ur­kennir hún að hafa líka verið hrædd við hann. „Við vorum það öll. Í fjöl­skyldum þar sem geð­sjúk­dómar eru til staðar litar það líf allra sem í þeim eru. Ég á ótelj­andi góðar minn­ingar um pabba minn en líka aðrar ekki eins góðar,“ segir hún.

Arna prýðir for­síðu Vikunnar.

Eftir því sem árin liðu fóru djöflar föður Örnu að stækka og gekk á ýmsu á heim­il­inu. Það var svo árið 2001, þegar Arna var 16 ára, að hann framdi sjálfs­víg. Þrátt fyrir það sem á undan var gengið var þetta henni og fjöl­skyld­unni allri gríð­ar­legt áfall. „Maður á aldrei von á svona fréttum,“ segir Arna. „Ég var ein heima þetta kvöld með nokkra vini í heim­sókn þegar lög­reglu­maður og prestur bönk­uðu upp á. Maður þarf ekki að vera mjög gam­all til að vita að það boðar ekki gott þegar slíkt tvíeyki stendur fyrir framan þig. Þeir spurðu bara um mömmu og þá vissi ég að eitt­hvað hefði komið fyrir pabba. Þegar þeir sögðu mér að hann væri dáinn vissi ég strax hvað hefði gerst. Ég get ekki lýst því betur og ég get ekki útskýrt hvernig en ég vissi um leið að hann hefði framið sjálfs­víg.“

Þetta er aðeins brot úr ítar­legu við­tali við Örnu. Lestu við­talið í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

Myndir / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur