Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Farðaði Katy Perry og kastaði vatnsblöðru í Cate Blanchett

Ísak Freyr Helgason förð­un­ar­fræð­ingur hefur á und­an­förnum árum ferð­ast heims­horna á milli til að farða margar feg­urstu konur heims. Hann er nýkom­inn frá Frakk­landi þar sem hann farð­aði Katy Perry og kastaði (óvart) vatns­blöðru í augað á Cate Blanchett.

Farðaði Katy Perry og kastaði vatnsblöðru í Cate Blanchett

Ísak var sautján ára gam­all þegar hann ákvað að verða förð­un­ar­fræð­ingur. „Ég var algjör gelgja á mynd­list­ar­braut í Fjöl­brauta­skól­anum í Breið­holti og mér fannst svo ómerki­legt að teikna myndir af eplum og könnum og læra að skyggja kassa. Ég hætti þess vegna og fór beint á þriggja mán­aða nám­skeið í förð­un­ar­skóla sem hét EMM School of Make Up. Eftir það var ekki aftur snúið.“

Hann segir sína helstu áskorun hingað til hafa verið að halda geði á tímum þegar dag­skráin er þétt. Ísak er vanur að fljúga út um víða ver­öld til þess að farða margar feg­urstu konur heims. Frægar leikkonur, söng­konur og fyr­ir­sætur. Hann hefur verið á mjög miklu flakki upp á síðkastið. „Ég flaug nýlega á ponsu­litla eyju við Palermo á Ítalíu sem heitir Panarea en þar lenti ég í einu mesta ævin­týri sem ég hef á ævi minni upp­lifað. Ég fékk að kynn­ast hlutum þar sem ég vissi ekki að væru til og henti óvart vatns­blöðru í augað á Cate Blanchett! Þaðan fór ég til L.A í viku til að farða fyrir her­ferð og eftir það strax til Frakk­lands til að farða Katy Perry. Þetta hefur verið heil­mikið stuð,“ við­ur­kennir Ísak.

Ég fékk að kynn­ast hlutum þar sem ég vissi ekki að væru til og henti óvart vatns­blöðru í augað á Cate Blanchett!

Nýlega lenti hann í ógöngum þegar hann var í tökum í skógi rétt fyrir utan Los Angeles. Þar var allt mor­andi í högg­ormum og stór skilti út um allt til þess að vara fólk við þeim. „Ég heyrði í alvör­unni í högg­ormunum þarna allt í kring en þurfti að standa kyrr með förð­un­ar­burstana og reyna mitt besta að pissa ekki í mig úr hræðslu,“ segir Ísak og skellir upp úr.

Ég heyrði í alvör­unni í högg­ormunum þarna allt í kring en þurfti að standa kyrr með förð­un­ar­burstana og reyna mitt besta að pissa ekki í mig úr hræðslu.

Ísak býr í London með kærast­anum sínum en er með annan fót­inn hér heima á Íslandi. Hann seg­ist reglu­lega koma til lands­ins til að kúpla sig út og slappa af. „Það skiptir mig svo miklu máli að finna innri ró og slappa af í íslenskri nátt­úru.“

Það er margt spenn­andi fram undan hjá Ísaki en hann hlakkar mest til að fara til Oman í byrjun nýja árs­ins.

Aðspurður hvaða stjörnu honum hafi þótt skemmti­leg­ast að farða segir hann: „Mér fannst ótrú­lega skemmti­legt að mála Katy Perry. Hún er algert gull og sjúk­lega fyndin en á sama tíma með svaka­lega góða orku í kringum sig.“

Mér fannst ótrú­lega skemmti­legt að mála Katy Perry. Hún er algert gull og sjúk­lega fyndin en á sama tíma með svaka­lega góða orku í kringum sig.

Óskalistinn

Hvaða föt og fylgi­hlutir eru á óska­lista hjá þér?

Mig langar í geggj­aða, prjón­aða lopa­peysu. Flottan klút eftir Hildi Yeoman, Balenciaga-stíg­vél, næs kasmír­peysu og par af trylltum Tom Ford-gler­augum.

Hver er þín helsta tísku­fyr­ir­mynd?

Í raun­inni hef ég enga tísku­fyr­ir­mynd. Ég var alltaf rosa­lega mikið fyrir Grace Jones þegar ég var yngri en það hefur breyst. Ég hef alltaf verið frekar mik­ill hippi í mér og vil helst hafa allt þremur núm­erum of stórt. Ég elska hreyf­ingar í efnum og skrítin mynstur. Elsku Jame, kær­asti minn, er alltaf svo hissa á því sem ég kaupi en segir alltaf að ég líti vel út, elsku kall­inn. Ef eitt­hvað er að angra mig þá klæði ég mig í svart og mikið dökkt. Þá verð ég pínu­lítið eins og skríð­andi skjald­baka.

Ef eitt­hvað er að angra mig þá klæði ég mig í svart og mikið dökkt. Þá verð ég pínu­lítið eins og skríð­andi skjald­baka.

Hvað er möst að eiga fyrir vet­ur­inn?

Góða úlpu. Ég elska Dranga­jökul-úlpuna mína frá 66°Norður. Hún heldur á mér hita allan vet­ur­inn og er ein­stak­lega góð í úti­tökum. Hún er tveimur núm­erum of stór svo það kom­ast fleiri en ég fyrir í henni.

Hvaða nude-vara­litur er bestur?

Sá sem ég nota mest núna er pott­þétt lit­ur­inn Spanish Pink frá Tom Ford.

TOPP 5 hjá Ísaki

Ísak segir topp­list­ann sífellt breyt­ast hjá sér, enda fær hann mikið af snyrti­vörum sendar til sín. Hér er það sem er í upp­á­haldi hjá honum í augna­blik­inu.

Sensai Bronzing Gel frá Kanebo er í upp­á­haldi.

1. Eitt af því sem er ómissandi og hefur verið í fyrsta sæti hjá mér í mörg ár er Sensai Bronzing Gel frá Kanebo. Kremið er með gel­á­ferð sem gefur húð­inni fal­legan ljóma í stað þess að þekja. Algjört töfra­efni. Ég, mamma, amma, systir mömmu og allt heila ætt­ar­tréð notar þetta.

2. Just Skin, lit­aða raka­kremið frá Chaintecaille, er eina raka­kremið með þekju í sem bræðir sig inn í húð­ina og þó að þú færir yfir and­litið með stækk­un­ar­gleri mynd­irðu ekki taka eftir því að mann­eskjan væri með eitt­hvað á húð­inni.

3. Syncro Skin Lasting Liquid Foundation frá Shiseido er farði sem ég lifi fyrir. Hann rennur yfir húð­ina eins og silki, þekur miðl­ungs og gefur ótrú­lega fal­lega áferð. Það er ótrú­lega auð­velt að vinna með hann og allir sem kynn­ast honum falla fyrir honum. Ég not­aði alltaf Luminous Silk-farð­ann frá Armani en Shiseido hefur hressi­lega tekið fram úr.

4. Skin Food frá Weleda er þykkt raka­krem sem er í raun­inni fyrir þurra bletti en ég elska að nota það yfir allt and­litið áður en ég ber farða á. Mér finnst húðin fá svo ótrú­lega fal­legan ljóma en þá púðra ég rétt yfir þá staði sem ég vil hafa matta ef mér finnst húðin of glans­andi.

5. Eye def­in­ing liner frá Tom Ford er fljót­andi eyeliner sem er með ofur­mjóum oddi framan á og þess vegan er hægt að gera mjög fína línu. Ég elska líka hvað hann er extra svartur.

Mynd / Saga Sig­urð­ar­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur