Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

„Margt af þessu hefur aldrei verið gert upp“

Rit­höf­und­ur­inn Sólveig Jóns­dóttir sendi nýlega frá sér bók­ina Heiður sem fjallar um fjöl­skyldu í Reykja­vík sem sundr­ast þegar hinn norður-írski faðir yfir­gefur eig­in­konu og dóttur og tekur son­inn með. Bókin er meðal ann­ars byggð á raun­veru­legum atburðum úr lífi vina Sól­veigar frá Írlandi.

„Margt af þessu hefur aldrei verið gert upp“
Sólveig Jóns­dóttir sendi nýlega frá sér sína aðra skáld­sögu sem ber nafnið Heiður og fjallar meðal ann­ars um átökin í Norður-Írlandi. Mynd / Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir||

„Ég hef alltaf haft mik­inn áhuga á Írlandi, alveg frá því að ég var barn,“ segir Sólveig.

Skáldsagan Heiður.

„Ég lærði stjórn­mála­fræði í Háskóla Íslands og fór seinna í meist­ara­nám í þjóð­ern­is­hyggju og þjóð­ern­isá­tökum í Edin­borg­ar­há­skóla. Írlands­á­hug­inn minn bland­að­ist þá auð­vitað inn í námið og ég sökkti mér vel ofan í átaka­sögu og sjálf­stæð­is­bar­áttu Norður-Íra og Íra. Ég fór líka að vinna á veit­inga­stað á kvöldin með nám­inu og ein­hvern veg­inn hitt­ist það þannig á að allir sem unnu þar með mér voru írskir. Við fórum að ræða þessi mál og ég komst að því að þessi átök höfðu á einn eða annan hátt haft áhrif á fjöl­skyldur þeirra allra. Ég kynnt­ist svo fjöl­skyldum vina minna vel og bókin er að stórum hluta byggð á sönnum atburðum úr lífi þeirra frá þessum tíma. Það skipti mig þess vegna máli að koma þessum frá­sögnum áleiðis svo fólk viti að þó svo að búið sé að koma á friði glíma margir enn við eft­ir­köst þess­ara átaka og ófriðar á einn eða annan hátt. Sjálfs­morð­s­tíðni á Norður-Írlandi er til dæmis mjög há, og sér­stak­lega hjá þeim ald­urs­hópi sem voru börn og ung­lingar á meðan átökin voru sem verst.“

„Lang­flestir voru til­búnir að ræða þetta opin­skátt en aðrir ekki. Sumum fannst það ein­fald­lega ekki vera eitt­hvað sem ætti að vera að ræða, nú þegar friður væri kom­inn á, en fyrir aðra var þetta ein­fald­lega of sárs­auka­fullt umræðu­efni til þess að vera að rifja upp.“

Hitti fólk sem upplifði átökin

Bókin heitir Heiður sem er ann­ars vegar nafnið á aðal­sögu­hetj­unni og hins vegar eitt af umfjöll­un­ar­efnum sög­unnar. „Hún fjallar um fjöl­skyldu í Reykja­vík í byrjun 9. ára­tug­ar­ins. Faðirinn er norður-írskur en mamman er íslensk. Saman eiga þau son og dóttur, Dylan og Heiði. Einn dag­inn stingur pabb­inn af til Norður-Írlands og tekur dreng­inn með. Eftir sitja mæðgurnar og það er ekki fyrr en 28 árum síðar sem Dylan hefur sam­band við Heiði og biður hana um hjálp. Í kjöl­farið fer af stað atburða­rás þar sem hún reynir meðal ann­ars að kom­ast að því hvað varð til þess að faðir hennar sundraði fjöl­skyld­unni og hvað það var sem honum þótti mik­il­væg­ara í átök­unum á Norður-Írlandi en frið­sælt fjöl­skyldu­lífið á Íslandi,“ segir Sólveig.

Mikil rann­sókn­ar­vinna liggur að baki bók­inni, Sólveig las sér heil­mikið til í nám­inu í Edinborg á sínum tíma og hefur fylgst vel með gangi mála á Norður-Írlandi síðan. „Svo horfði ég á fullt af heim­ilda­myndum, las bæði fræði­bækur og dag­bækur liðs­manna Írska lýð­veld­is­hers­ins og end­ur­minn­ingar venju­legs fólks frá þessum tíma. Mest lagði ég þó upp úr að fá að heyra sögur frá fólk­inu í kringum mig á Norður-Írlandi, fá þetta beint í æð frá þeim sem upp­lifðu þetta á eigin skinni. Lang­flestir voru til­búnir að ræða þetta opin­skátt en aðrir ekki. Sumum fannst það ein­fald­lega ekki vera eitt­hvað sem ætti að vera að ræða, nú þegar friður væri kom­inn á, en fyrir aðra var þetta ein­fald­lega of sárs­auka­fullt umræðu­efni til þess að vera að rifja upp. Það kom mér svo sem ekki á óvart að fólk ætti líka erfitt með að tala um þetta. Margt af því sem gerð­ist á þessum tíma hefur aldrei verið gert upp, fólk ekki fengið rétt­læti fyrir sig og sína.“

Sólveig Jóns­dóttir sendi nýlega frá sér sína aðra skáld­sögu sem ber nafnið Heiður og fjallar meðal ann­ars um átökin í Norður-Írlandi. Mynd / Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir

Bakstur prýðileg hugleiðsla

Heiður er önnur bók Sól­veigar og afskap­lega ólík fyrstu bók­inni hennar, Korteri.

„Það er eig­in­lega mjög fátt sem þessar sögur eiga sam­eig­in­legt, fyrir utan það að í báðum þeirra eru konur aðal­sögu­hetj­urnar. Og ef til vill líka að ég leyfi mér að flakka svo­lítið fram og aftur í tíma í þeim báðum. En Heiður fjallar um tals­vert þyngri mál­efni, þó svo að stærð­argráða vanda­mála hvers og eins skap­ist auð­vitað út frá aðstæðum þeirra hverju sinni. Ég var byrjuð að skrifa þessa bók þegar fyrsta bókin mín kom út svo hún var lengi í smíðum. Það var mjög gaman að skrifa þær báðar en mun erf­ið­ara og meiri áskorun að skrifa Heiður,“ segir Sólveig sem nú á eftir nokkra daga í fæð­ing­ar­or­lofi og fer þá að starfa sem texta­smiður á aug­lýs­inga­stofu með fram rit­störfum.

Að auki fæst hún við mat­ar­gerð og bakstur, til dæmis fyrir tíma­ritið Gest­gjafann. „Mér þykir veru­lega gaman að elda og baka og hugsa almennt mjög mikið um mat og mat­ar­gerð. Fyrir mér eru mat­ar­gerð og upp­skrifta­skrif ann­ars konar sköp­un­ar­vinna en í rit­stör­f­unum en inn í þetta bland­ast líka ákveðin slökun fyrir mig. Ef ég á til dæmis eitt­hvað erfitt með að sofna skelli ég stundum í eins og eina köku. Það er líka alveg prýði­leg hug­leiðsla að horfa á eitt­hvað bak­ast í ofn­inum. Ég mæli með því.“

Og Sólveig er með margar hug­myndir í koll­inum og langar að skrifa fleiri bækur. „Ég er byrjuð á tveimur og von­andi næ ég að ljúka annarri eða báðum áður en langt um líður. Ég hef líka verið leið­sögu­maður fyrir ferða­menn á Norður-Írlandi og í Skotlandi og langar mikið til að gera meira af því. Annars þarf ég bara svo­lítið að fara að gíra mig upp í að fara aftur út á vinnu­mark­að­inn eftir ár í fæð­ing­ar­or­lofi, sem hefur verið alveg dásam­legur tími.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag