Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Ráðin framkvæmdastjóri þjóðarhljómsveitar Kanada

Arna Kristín Ein­ars­dóttir, sem hefur verið fram­kvæmda­stjóri Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands und­an­farin ár, hefur verið ráðin sem fram­kvæmda­stjóri Þjóð­ar­hljóm­sveitar Kanada, National Arts Centre Orchestra, og hefur hún störf með vor­inu.

Ráðin framkvæmdastjóri þjóðarhljómsveitar Kanada
Arna Kristín Ein­ars­dóttir sin­fonía Íslands.||

Texti / Svava Jóns­dóttir

Arna Kristín Ein­ars­dóttir var ráðin sem fram­kvæmda­stjóri Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands árið 2013 og er ráðið í stöð­una til fjög­urra ára í senn. Samkvæmt lögum hljóm­sveit­ar­innar er hægt að end­ur­ráða í stöð­una í önnur fjögur ár en ekki oftar. Arna Kristín var end­ur­ráðin árið 2017 og því farin að leiða hug­ann að hvað tæki við eftir örfá ár þegar haft var sam­band við hana í sumar og hún spurð hvort hún hefði áhuga á að sækja um sem fram­kvæmda­stjóri þjóð­ar­hljóm­sveit Kanada, National Arts Centre Orchestra, í Ottawa.
„Ég hugs­aði mig aðeins um og sagð­ist svo vera spennt og hófst þá ferlið þar til ég stóð ein eftir og var ráðin. Það magn­að­asta var að það var ekki bara haft sam­band við mig frá þess­ari hljóm­sveit heldur var líka hringt frá skosku þjóð­ar­hljóm­sveit­inni. Ferlið í Kanada var lengra komið og buðu þeir mér á end­anum samn­ing sem ég gat eig­in­lega ekki afþakkað. Þá ákvað ég að draga mig út úr hinu ferl­inu en ég var líka komin langt þar. Skoska þjóð­ar­hljóm­sveitin var líka mjög spenn­andi kostur.
Stundum finnst manni við á Íslandi vera á jaðr­inum og að augu heims­ins nái ekki alltaf hingað en þetta kom úr ólíkum áttum þannig að það er greini­legt að það er tekið eftir því sem við erum að gera hérna.“

„Vonandi verður þetta þannig að maður geti látið til sín taka og það þarf alltaf nokkur ár í það; sér­stak­lega í þessum sin­fóníska heimi en það er alltaf skipu­lagt svo ótrú­lega langt fram í tím­ann,“ segir Arna Kristín. Ljós­mynd­ari / Heiða Helga­dóttir

Getur von­andi látið til sín taka
Arna Kristín segir að National Arts Centre Orchestra sé mjög áhuga­verð hljóm­sveit.
„Hún var stofnuð árið 1969 og teng­ist því að opnað var menn­ing­ar­setur, National Arts Center, í Ottawa þar sem hljóm­sveitin æfir og kemur fram. Þar er líka leik­hús – enskt leik­hús, franskt leik­hús og dans­leik­hús og núna eru þeir að fara af stað með frum­byggja­leik­hús. Ég mun einnig starfa með þessu teymi sem býr til dag­skrá fyrir allt þetta hús en þar er við­burður á nær hverju kvöldi.“
Arna Kristín segir að hún geti alveg látið sig dreyma stóra drauma. „Þetta er ótíma­bundin ráðn­ing og fólkið þarna virð­ist vera gott fólk. Þetta virð­ist vera þéttur hópur. Það vinna um 25 manns á skrif­stofu hljóm­sveit­ar­innar, 10 manns á skrif­stofu Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands, en um 300 manns vinna í allri mið­stöð­inni. Það verður merki­legt að kynn­ast því. Vonandi verður þetta þannig að maður geti látið til sín taka en það þarf alltaf nokkur ár í það; sér­stak­lega í þessum sin­fóníska heimi en það er alltaf skipu­lagt svo langt fram í tím­ann.“

„Hóf nám dag­inn sem ég átti að eiga son minn“
Arna Kristín byrj­aði að læra á þver­flautu þegar hún var níu ára og útskrif­að­ist með ein­leik­ara­próf í flautuleik frá Tón­list­ar­skóla Reykja­víkur árið 1990. Hún stund­aði fram­halds­nám í flautuleik í Indiana Uni­versity í Banda­ríkj­unum og útskrif­að­ist þaðan með láði árið 1992. Hún hélt svo áfram námi við Royal Northern College of Music í Manchester og lauk þaðan post­gradu­ate diploma árið 1996. Hún gegndi stöðu 2. flautuleik­ara Sin­fón­íu­hjómsveitar Íslands á árunum 2000-2004.
„Ég bjó í Manchester í sex ár og keypti hús þar og var ekk­ert á leið­inni heim þegar ég vann prufu­spil hjá Sin­fón­í­unni árið 2000 í afleys­inga­stöðu og spil­aði með hljóm­sveit­inni næstu árin. Það var æðis­legur tími. Fasti flautuleik­ar­inn ákvað svo að gefa frá sér stöð­una og sam­kvæmt reglum hljóm­sveit­ar­innar þurfti að aug­lýsa hana þar sem þetta var ekki lengur tíma­bundið heldur föst ráðn­ing. Ég þurfti að fara aftur í prufu­spil og var komin sjö mán­uði á leið og var ekki alveg nógu mik­ill nagli. Maður þarf að vera svaka­legur nagli til að vinna svona prufu­spil.“
Arna Kristín fékk ekki stöð­una sem hún segir að hafi verið heil­mikið áfall.
„Ég ákvað þá að fara í meist­ara­nám í menn­ing­ar­stjórnun við Háskól­ann á Bifröst og hóf nám dag­inn sem ég átti að eiga eldri son minn.“
Arna Kristín útskrif­að­ist árið 2007. Hún var tón­leika­stjóri Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands á árunum 2007-2013 eða þar til hún hóf störf sem fram­kvæmda­stjóri hljóm­sveit­ar­innar.

Góður árangur
Arna Kristín segir að rekstur hljóm­sveit­ar­innar hafi gengið vel und­an­farin ár.
„Við höfum náð mjög góðum árangri, bæði hvað varðar rekst­ur­inn og list­ræna þætti. Ég er kannski hvað stolt­ust af því að á sama tíma og við náðum að rétta af rekst­ur­inn og greiða niður umtals­verðar skuldir stofn­un­ar­innar sem er nú skuld­laus þá höfum við styrkt list­rænt teymi hljóm­sveit­ar­innar og náð auknum, alþjóð­legum sýni­leika. Til marks um það erum við nýkomin úr magn­aðri tón­leika­ferð um Japan þar sem við lékum fyrir um 24.000 manns og höfum fengið boð um fleiri tón­leika­ferðir á næstu starfs­árum. Slíkar ferðir eru gríð­ar­leg land­kynn­ing fyrir Ísland. Við höfum líka lagt mikla áherslu á að ná til breiðs hóps tón­leika­gesta með sam­starfi við hljóm­sveitir og lista­menn á borð við Skálmöld, Emilíönu Torrini og uppi­standar­ann Ara Eldjárn. Fræðslu­starfið hefur líka stór­eflst á síð­ustu árum. Það eru því margir þættir sem spila saman.
Harpa hefur að mörgu leyti komið okkur á kortið, gert okkur sýni­legri og skapað hljóm­sveit­inni kjörað­stæður til að vaxa og dafna í. Við höfum líka verið svo heppin að fá til liðs við okkur tvö tón­skáld, Daníel Bjarna­son og svo Önnu Þor­valds­dóttur, sem bæði hafa náð ótrú­lega langt í list sinni á alþjóð­legum vett­vangi. Samvinna við þau hefur gert það að verkum að við erum í sam­floti við virt­ustu hljóm­sveitir heims á borð við Los Angeles fíl­harm­ón­í­una og Berlínar fíl­harm­ón­í­una um að panta tón­verk eftir þau. Það skiptir miklu máli að vera nefnd í sömu andrá og í sam­hengi við þessar hljóm­sveitir.
Það má heldur ekki gleyma hlut aðal­hljóm­sveit­ar­stjór­ans, Yan Pascal Tor­telier, og heið­urs­stjórn­end­anna okkar Osmo Vanska og Vladimir Ashkenazy. Þessir menn gefa hljóm­sveit­inni þann gæða­stimpil að hún er eft­ir­sótt af öðrum hljóm­sveit­ar­stjórnum og ein­leik­urum heim að sækja.
Ég held að það gleym­ist oft að Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands starfar í raun í alþjóð­legu sam­hengi og hefur gert alla tíð. Alveg frá stofnun hljóm­sveit­ar­innar árið 1950 hafa hingað komið á hverju starfs­ári erlendir hljóm­sveit­ar­stjórar og ein­leik­arar til að starfa með hljóm­sveit­inni.“
Arna Kristín og fjöl­skylda hennar flytja til Ottawa með vor­inu. „Þau bíða eftir mér en ég vil ganga vel frá hlutum hér og það þarf nátt­úr­lega að finna arf­taka og koma honum inn í starfið. Hjarta mitt mun alltaf slá fyrir Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands. Ég hef verið svo ótrú­lega heppin að vinna með svo frá­bæru fólki hjá Sin­fón­í­unni og mér finnst ég vera mik­illar gæfu aðnjót­andi að hafa fengið að vera á þessu ferða­lagi með þeim. Fyrir mér hefur þetta ekki snú­ist um per­sónu­legan metnað; þetta snýst bara um ein­hverja dýpri sann­fær­ingu og trú á því sem við erum að gera.“

Mennign­ar­mið­stöðin þar sem Arna Kristín mun starfa. Mynd / Aðsend

„Líður eins og ég sé trú­boði“
Arna Kristín segir að starf sitt sé ástríða. „Þetta er ekki bara ein­hver vinna. Mér líður stundum eins og ég sé í hálf­gerðu trú­boði; ég þarf svo mikið að segja heim­inum hvað tón­list sé magnað fyr­ir­bæri og sin­fónísk tón­list mik­ill galdur en í gegnum hana kynn­umst við tón­list­ar­starfi sem geymir ein­hver feg­urstu lista­verk manns­and­ans; tón­list sem sam­einar ólíka menn­ing­ar­heima en allir geta skilið og tengt við.“
Ég hef mætt á alla tón­leika Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands síðan 2007 nema ef ég hef verið í útlöndum. Þetta er þannig vinna. Ef ég er spurð um áhuga­mál þá svara ég að mér finnst æðis­legt að fara á skíði og ég hleyp til að halda mér í formi en maður lifir og hrær­ist í þessu. Ég hef þurft að gera þetta upp við mig; það er bara vinnan og fjöl­skyldan. Það hefur því verið minni tími fyrir vin­ina – ég og vin­kona mín höfum þó hlaupið saman og ég er í leik­hús­klúbbi og sauma­klúbbi – en ég hef ekki getað sótt eins marga tón­leika fyrir utan Sinfó-tón­leika eins og ég hefði gjarnan viljað.“
Hún seg­ist spila sjaldan á flaut­una sína. „Því miður. Það koma stundir þegar mig byrjar að klæja og ef ég fer að spila aftur þá held ég að ég myndi byrja á að æfa Bach-sónöt­urnar. Ég hef í raun­inni aldrei saknað þess að vera hljóð­færa­leik­ari á sviði. Mér finnst mjög gaman að vera fram­kvæmda­stjóri og ég fæ mikla útrás fyrir sköpun í því starfi. Ég kem af stað hlutum og sé til þess að þeir verði að veru­leika og ég fæ að horfa á stóru mynd­ina. Og mér finnst stóra myndin vera svo skemmti­leg og spenn­andi.“
Esjan, Akra­fjall og Skarðs­heiði og hafið bláa blasir við úr skrif­stofu Örnu Krist­ínar í Hörpu. Hún neitar því ekki að hún muni sakna útsýn­is­ins.
„Ég mun auð­vitað sakna þess að vera í þessu húsi, Hörpu. Það er enn þannig þegar ég kem í vinnu að ég trúi þessu ein­hvern veg­inn ekki; að þessi draumur hafi orðið að veru­leika. Að þetta lang­þráða tón­list­ar­hús hafi risið úr rústum hruns­ins og lýsi okkur nú í myrkr­inu eins og viti. Mér finnst þetta hús hafa haft svo mikið að segja fyrir íslenskt sam­fé­lag. Þess vegna skiptir svo miklu máli hvaða tónn er gef­inn hér inn­an­húss. Harpa þarf að vera trú tón­list­inni sem hún var byggð yfir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag