Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Eiga konur að vera betri stjórnmálamenn?

Eiga konur að vera betri stjórnmálamenn?

Kvenna­frí­dag­ur­inn 24. októ­ber síð­ast­lið­inn mark­aði fjöru­tíu og þriggja ára afmæli þess er 90 pró­sent íslenskra kvenna lögðu niður vinnu og fjöl­menntu á Lækj­ar­torg til að mót­mæla kyn­bundnum launa­mun og öðru mis­rétti sem konur urðu fyrir í sam­fé­lag­inu. Sýndu og sönn­uðu að vinnu­fram­lag kvenna skiptir sköpum fyrir hin marg­frægu „hjól atvinnu­lífs­ins“ og að sam­taka­máttur kvenna er frum­for­senda þess að fram­farir náist. Síðan þá hefur Ísland skipað sér í fremstu röð hvað varðar jafn­rétti og er ár eftir ár í efsta sæti lista yfir lönd sem standa sig best við að tryggja rétt­indi kvenna. Það var því til ein­hvers barist þótt enn sé því miður langt í land með að fullt jafn­rétti náist.

Á þessu fjöru­tíu og þriggja ára afmæli voru enn og aftur haldnir úti­fundir víða um land, skrif­aðar greinar í fjöl­miðla og rykið dustað af gömlum bar­áttu­söng Rauð­sokk­anna sem voru hvata­konur að kvenna­verk­fall­inu 1975. Allt hið ágætasta mál en féll nokkuð í skugg­ann af pistli sem eig­andi Kvenna­blaðs­ins, Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir, skrif­aði á vef­síðu blaðs­ins þar sem hún, að margra mati, réð­ist gegn þeim konum sem hæst ber í þjóð­fé­lag­inu í dag. Það varð upp­sláttur á flestum vef­miðlum að Steinunn Ólína hefði sagt for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, Katrínu Jak­obs­dóttur, vera eins og tusku í höndum Bjarna Bene­dikts­sonar. Og 90 pró­sent þeirra sem tjáðu sig um skrifin voru hin lukku­leg­ustu með þessa ein­kunn sem kon­unni í for­sæt­is­ráð­herra­stólnum var gefin. Þannig er nú kvenna­sam­staðan fjöru­tíu og þremur árum síðar.

Það virð­ist reyndar vera að verða nokk­urs konar þjóðar­í­þrótt að hrauna yfir Katrínu Jak­obs­dóttur og kenna henni um allt sem aflaga fer í höndum núver­andi rík­is­stjórnar og fer ekki hjá því að maður velti því fyrir sér hvort hún fengi aðra eins útreið ef hún væri karl­maður. Ekki var Sig­mundur Davíð kall­aður tuska í höndum Bjarna Ben þegar þeir voru saman í rík­is­stjórn, svo dæmi sé tekið, og reyndar hefur eng­inn karl­kyns­for­sæt­is­ráð­herra fengið yfir sig aðra eins lít­il­lækkun og ásak­anir um þjónkun eins og Katrín. Það fer því ekki hjá því að maður spyrji sig hvort það þyki góð og gild lat­ína í jafn­réttisparadís­inni Íslandi að tala niður til kvenna í áhrifa­stöðum og gera því skóna að þær séu vilja­laus verk­færi í höndum karl­anna sem þær vinna með. Séu tuskur og strengja­brúður.

Und­ir­liggj­andi tónn í þessum niðr­unum sem beint er að for­sæt­is­ráð­herr­anum er að vegna þess að hún er kona eigi að gera meiri kröfur til hennar um gott sið­ferði og „kven­leg“ sjón­ar­mið í póli­tík. Konur eiga sem sagt enn og aftur að standa sig betur en karl­arnir, vera „betri“ í því sem þær gera og sanna að það skipti máli að hafa konur í áhrifa­stöðum. Þær eru enn þá fyrst og fremst metnar út frá kyn­ferði sínu og eiga að vera „fyr­ir­myndir“ ungra stúlkna. Aldrei er minnst á það að karlar í stjórn­málum eigi að vera fyr­ir­myndir ungra drengja í sínum störfum. Er ekki ein­hver tíma­skekkja í þess­ari hugsun?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag