Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Var í fullri vinnu við að fela kynferðisofbeldið

Var í fullri vinnu við að fela kynferðisofbeldið
|

*TW*Trigger Warning/*VV*varúð váhrif

Hrönn Ólöf Guðmundsdóttir er ein þeirra kvenna sem komið hefur fram með sögu sína undir myllumerkinu #whyididntreport, eða ástæða þess að ég kærði ekki. Stutta svarið við spurningunni í hennar tilfelli er: „Af því að hann var kærastinn minn.“

„Þegar ég var 16 ára byrj­aði ég með strák sem var einu ári eldri en ég. Mér fannst hann æðis­legur. Fljót­lega fór hann að beita mig and­legu ofbeldi, svo bætt­ist lík­am­legt ofbeldi við og því næst nauðg­anir eftir að hann hafði barið mig eða rifið mig niður and­lega. Þetta gerði hann þegar ég var sem minnst and­lega og hann mestur, að hans mati. Nauðg­unin var eins og punktur yfir i-ið, stjarna á jóla­tré­stopp­inn, sultan á pönnu­kök­una, kirsu­berið ofan á ban­anasplittið. Þannig lagði hann loka­hönd á ofbeld­is­verk sín. Við vorum saman í tæp þrjú ár og þessi tími er í mik­illi móðu. Ég hef enga tölu á því hve oft hann nauðg­aði mér,“ segir Hrönn sem í dag er 47 ára og búsett í Banda­ríkj­unum. Hún starfar sem sölu­að­ili, er gift Banda­ríkja­manni og á þrjá syni.

Hún sagði engum frá, kærði ekki og segir ástæðu þess marg­þætta. „Aug­ljós­asta ástæðan er sú að hann var kærast­inn minn, maður kærir jú ekki kærast­ann sinn fyrir nauðgun, eða hvað? Á þessum tíma sá ég ekki nauðg­an­irnar sem nauðgun heldur part af öllu hinu en við stund­uðum kyn­líf inn á milli nauð­gana. Einnig er stórt og flókið skref að kæra kærast­ann sinn fyrir nauðgun. Ég var í raun í fullri vinnu við að fela fyrir fjöl­skyldu minni og vinum hvernig hann kom fram við mig. Það liðu mörg ár þar til ég sagði ein­hverjum frá kyn­ferð­is­of­beld­inu, það datt bara út úr mér þegar ég var að tala um að hann hefði barið mig.“

„Nei, ekki aftur!“
Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Hrönn varð fyrir kyn­ferð­is­of­beldi. Í minn­ing­unni finnst henni eins og hún hafi verið áreitt kyn­ferð­is­lega öll ung­lings­árin og árin frá þrettán til fimmtán ára hafi verið sér­stak­lega erfið. „Það voru alltaf ein­hverjir karlar að stoppa og bjóða manni far og einu sinni var ég að ganga heim úr búð­inni þegar ein­hver hálf­viti gekk í humátt á eftir mér og káf­aði á rass­inum á mér þegar hann gekk fram hjá. Hann sagði ekk­ert, leit glott­andi framan í mig og hélt svo bara áfram. Ég var miður mín, fannst ég skítug eftir þessa rassa­stroku og spáði mikið í hvort ég hefði gert eitt­hvað til að bjóða upp á þetta.

„Lög­reglan neit­aði síðan að halda kærunni til streitu, hann væri fjöl­skyldu­maður og hefði ekki verið ásak­aður um svona áður. Og þar sem hann var fjöl­skyldu­maður mátti ekki valda honum óþæg­indum.“

Þegar ég var þrettán eða fjórtán ára réðst karl­kynsst­urtu­vörður á mig þar sem ég beið ein frammi í and­dyri leik­fimi­húss­ins meðan kven­kynsst­urtu­vörð­ur­inn fór inn í leik­fimisal­inn til að biðja um leyfi fyrir mig í leik­fimi vegna veik­inda. Hann stökk á mig, ýtti mér út í horn og þrýsti sér að mér á meðan að hann þukl­aði á brjóst­unum á mér og reyndi að troða tung­unni á sér upp í mig á meðan ég reyndi að ýta honum frá mér. Í þetta skipti sagði ég strax frá, fyrst vin­konu minni. Hún, flestir kenn­arar, skóla­stjóri og for­eldrar mínir stóðu við bakið á mér. Ég lagði fram kæru en upp­lifði mikla nið­ur­læg­ingu við yfir­heyrslur. Lög­reglu­full­trú­inn reyndi að gera sem minnst úr mál­inu. Til dæmis sagði ég þrá­spurð að hann hefði reynt að troða tung­unni á sér inn í munn­inn á mér en lög­reglu­full­trú­inn sagði stöðugt: „Hann reyndi að kyssa þig?“ Að lokum sagði ég: Nei, þetta er ekki það sama! En ég veit ekki hvað hann skrif­aði að lokum í skýrsl­una. Lög­reglan neit­aði síðan að halda kærunni til streitu, hann væri fjöl­skyldu­maður og hefði ekki verið ásak­aður um svona áður. Og þar sem hann var fjöl­skyldu­maður mátti ekki valda honum óþæg­indum. Ég man hvað ég dofn­aði upp þegar aum­ingja pabbi sagði mér frétt­irnar, því­líkur van­máttur sem við upp­lifðum. Seinna komst ég að því að þessi maður hefði beitt stúlkur og ungar konur kyn­ferð­is­of­beldi um ára­bil. Þessi reynsla mín við að kæra kyn­ferð­is­of­beldi varð því ekki beint hvetj­andi til að kæra kyn­ferð­is­brot síðar á lífs­leið­inni,“ segir Hrönn.

Nokkru síðar var hún að vinna í sjoppu og var búin að loka þegar eig­and­inn kall­aði á hana inn á skrif­stofu til sín þar sem hann var að horfa á klám og bauð henni að horfa með sér. „Ég spennt­ist upp og hugs­aði strax: Nei, ekki aftur. Og nú mun eng­inn heyra í mér. Ég neit­aði og steig út úr skrif­stof­unni til að auka bilið sem var á milli okkar, sagð­ist ætla að hringja í pabba og biðja hann að sækja mig. Þá kom fát á hann og hann sagð­ist geta keyrt mig heim. „Beint heim,“ sagði ég ákveðin og hann sam­þykkti það. Á leið­inni heim sagði ég honum að ef að ég frétti að hann hafi snert ein­hverja af hinum stelp­unum myndi ég kæra hann, ég sagði honum líka að ég myndi segja for­eldrum mínum frá þessu, sem ég og gerði.“

Hrönn Ólöf Guð­munds­dóttir er ein þeirra kvenna sem komið hefur fram með sögu sína undir myllu­merk­inu #whyididntreport. Myndir eru úr einka­safni.

Skamm­að­ist sín fyrir afleið­ing­arnar
Hrönn glímdi lengi við afleið­ingar alls ofbeld­is­ins og seg­ist oft hafa spurt sig þeirrar spurn­ingar hver hún væri ef þetta hefði ekki gerst. „Eftir að sturtu­vörð­ur­inn réðst á mig átti ég erfitt með að umgang­ast menn í langan tíma á eftir, sér­stak­lega eldri menn, þar á meðal afana mína sem voru á svip­uðum aldri og karl­inn. Ég grét og skamm­að­ist mín í laumi fyrir hvernig mér leið þegar þeir föðm­uðu mig, hvað þá ef þeir kysstu mig á kinn­ina, ég var með rosa­legt sam­visku­bit yfir líðan minni. Mér fannst eins og að ég hlyti að vera að gera eitt­hvað rangt, ég meina af hverju voru allir þessir menn að nálg­ast mig kyn­ferð­is­lega? Ung­lingar ganga í gegnum nógu miklar breyt­ingar, bæði and­lega og lík­am­lega, og þetta rugl­aði mig alveg. Kynlíf á að vera fal­legt. Til að virki­lega geta notið kyn­lífs þarft þú að geta slakað á, opnað alla þína vit­und, drukkið í þig það sem er verið að gefa þér og geta gefið á móti af heilum hug, engin höft, bara njóta og gefa. Fyrr­ver­andi kærast­inn eyði­lagði það fyrir mér í langan tíma. Ég er með áfallastreituröskun út af honum, fyrstu árin á eftir þurfti stundum ekki mikið til að slá mig út af lag­inu; lykt, hljóð, lag og stundum átt­aði ég mig ekki einu sinni á því hvað var að ger­ast.“

Hrönn hefur í gegnum tíð­ina leitað sér marg­vís­legrar hjálpar bæði hjá sér­fræð­ingum og með því að fá útrás með hreyf­ingu. Hennar besta með­ferð hefur þó verið að tala um það sem gerð­ist og fela ekki hlut­ina.

Skil hræðsl­una
Þegar talið snýst að umræð­unni sem skap­ast hefur í kringum mál Brett Kavan­augh og þeim sem hafa snú­ist honum til varnar segir Hrönn að þetta lýsi því vel hvað allt sé rotið. „Allt of margt valda­mikið fólk er til­búið til að líta í hina átt­ina. Mér finnst Christine Blasey Ford mjög hug­rökk, margar konur hefðu bara bitið í tung­una á sér en hún steig fram vit­andi um það hvað gat beðið hennar. Þótt sögur okkar séu ólíkar á ég auð­velt með að setja mig í hennar spor, ég skil hræðsl­una. Það gerir mig sorg­mædda hvað mörgum finnst þetta lítið mál, hvað fáir gera sér grein fyrir hversu stórt vanda­málið er. En ég held að hlut­irnir séu að hreyfast hægt í rétta átt, bæði konur og karlar eru farin að láta heyra meira í sér. Við megum ekki gef­ast upp, sögur okkar skipta máli og halda athygli fólks á þessu við­kvæma máli,“ segir Hrönn og hún er með skila­boð til þolenda og aðstand­enda þeirra. „Til þeirra sem hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­broti og hafa ekki haft kjark til að segja frá því vegna þess að þau skamm­ast sín: Ekki skamm­ast þín, þú gerðir ekk­ert rangt, þú áttir þetta ekki skilið. Við aðstand­endur vil ég segja: Ekki brjóta ykkur niður með sam­visku­biti yfir því að hafa ekk­ert vitað. Það fór mikil vinna í það hjá mér að fela það sem var í gangi og því skilj­an­legt að eng­inn vissi neitt.“

„Bara það að ég skuli vera að hugsa um hvernig svona frá­sögn kemur út fyrir ger­anda segir svo mikið um hvað þolendur geta verið hálf­brengl­aðir í koll­inum eftir svona reynslu.“

Hún hefur reynslu af því hversu erfitt er að koma sér ofbeld­is­sam­bandi og skilur vel aðrar konur í sömu stöðu. „Það skiptir engu máli hvernig ofbeld­inu er háttað, maður væri ekki í sam­band­inu til að byrja með ef maður bæri ekki ein­hverjar góðar til­finn­ingar til brota­manns­ins. Ég fór til dæmis oft frá kærasta mínum en kom alltaf til baka. Einn dag­inn þegar að ég var alveg búin að fá nóg en fann samt ekki styrk hjá mér til þess að slíta sam­band­inu fann ég lausn sem virk­aði fyrir mig. Ég gaf honum eins mán­aðar upp­sagn­ar­frest. Já, þetta hljómar hálf­kjána­lega en þetta virk­aði. Þennan mánuð not­aði ég til að slíta mig frá honum til­finn­inga­lega séð, ég varð sterk­ari og sterk­ari með hverjum deg­inum og þegar mán­uð­ur­inn var lið­inn sagði ég honum rólega að taka dótið sitt, tím­inn væri liðin, við værum hætt sam­ann. Hann reyndi að tala mig til en fann að ég var ákveðin og fór.“

Hrönn seg­ist hafa hugsað sig um áður en hún sam­þykkti að ræða opin­skátt um reynslu sína við Mannlíf. „Ég vildi það ekki án þess að tala fyrst við syni mína, eig­in­mann, for­eldra og systk­ini. Þau voru hins vegar öll hvetj­andi og vildu að ég gerði það sem mér þætti best. Í sam­tali við tví­tugan son minn sagði ég meðal ann­ars að ég myndi ekki vilja að við­talið kæmi sér illa fyrir fyrr­ver­andi kærast­ann ef fólk átt­aði sig á því hver hann væri. En sonur minn svar­aði að mestu máli skipti að ég væri sátt við að opna mig og kannski gæti saga mín hjálpað öðrum. Aðrir í fjöl­skyld­unni tóku undir þetta og mamma sagði meðal ann­ars: „Ekki hugs­aði hann um þig og þína líðan á þessum tíma.“ Bara það að ég skuli vera að hugsa um hvernig svona frá­sögn kemur út fyrir ger­and­ann segir svo mikið um hvað þolendur geta verið hálf­brengl­aðir í koll­inum eftir svona reynslu.“

Eftir að núver­andi Banda­ríkja­for­seti spurði hvers vegna Dr. Christine Blasey Ford hefði ekki kært kyn­ferð­is­of­beldið sem hún varð fyrir af hendi Brett Kavan­augh á háskóla­ár­unum stigu fjöl­margir fram henni til stuðn­ings undir myllu­merk­inu #whyididntreport og útskýrðu hvers vegna þau kærðu ekki. Auk Hrannar deildu Bryn­hildur Yrsa Valkyrja Guð­munds­dóttir og Sigrún Braga­dóttir sínum ástæðum með les­endum Mannlífs. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina