Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Bjóða Íslendingum milligöngu um staðgöngumæðrun

Ísra­elska stað­göngu­mæðr­un­ar­fyr­ir­tækið Tammuz Nordic hyggst frá og með hausti bjóða Íslend­ingum upp á milli­göngu um stað­göngu­mæðrun. For­svars­maður fyr­ir­tæk­is­ins, Mikkel Raahede, er staddur hér á landi til að kynna verk­efnið og hann full­yrðir að þessi þjón­usta stang­ist ekki á við íslenska lög­gjöf.

Bjóða Íslendingum milligöngu um staðgöngumæðrun
|
Mikkel Raahede, for­svars­maður Tammuz Nordic.

„Stað­göngu­mæðrun er ólög­leg innan Íslands, en það er ekki ólög­legt fyrir Íslend­inga að fá stað­göngu­mæðrun erlendis,“ segir hann. „Ég hef verið í sam­bandi við íslenska lög­fræð­inga og þeir full­vissa mig um að þetta sé lög­legt.“

Þjón­ustan stendur bæði gagn­kyn­hneigðum og karl­kyns sam­kynja pörum til boða og sömu­leiðis ein­stæðum körlum. Mikkel segir að sam­kvæmt íslenskum lögum sé hins vegar flókn­ara að hjálpa ein­stæðum konum og les­b­íum þar sem barnið yrði skráð barn stað­göngu­móð­ur­innar og því gæti kona lent í vand­ræðum með að fá að koma með það inn í landið. „Ef fað­ir­inn er íslenskur, eins og þegar um er að ræða gagn­kyn­hneigð pör og tvo karl­menn, er það hins vegar ekk­ert vanda­mál,“ segir hann.

Tammuz er í sam­starfi við lækna­stöðvar í Banda­ríkj­unum og Úkraínu þar sem valið á stað­göngu­mæðrum fylgir mjög ströngum reglum, að sögn Mikkels. „Þetta er mjög strangt mat,“ segir hann. „Við fáum mjög margar umsóknir frá konum sem vilja verða stað­göngu­mæður, en við höfnum fleirum en við tökum við. Í fyrsta lagi verða kon­urnar sem vinna fyrir okkur að vera mæður sjálfar, hafa gengið með og fætt barn áður en þær taka þetta að sér. Þær þurfa að und­ir­gang­ast stranga lækn­is­skoðun, bæði lík­am­lega og and­lega. Þær mega hvorki drekka né reykja og við leggjum mikla áherslu á að þær hafi sterkt stuðn­ings­net í kringum sig.“

„Ég hef verið í sam­bandi við íslenska lög­fræð­inga og þeir full­vissa mig um að þetta sé lög­legt.“

Tammuz hefur starfað í tíu ár og börnin sem hafa fæðst fyrir milli­göngu fyr­ir­tæk­is­ins skipta þús­undum. Mikkel segir engin vanda­mál hafa komið upp hjá fyr­ir­tæk­inu, engar lög­sóknir og að fyr­ir­tækið sé eitt hið virtasta í heimi á sínu sviði. Hann leggur áherslu á að í stefnu fyr­ir­tæk­is­ins sé áherslan lögð á mann­lega þátt­inn, það sé stutt vel við bæði stað­göngu­mæð­urnar og vænt­an­lega for­eldra, sem að sjálf­sögðu fái að fylgj­ast með með­göng­unni og vera við­staddir fæð­ing­una ef er óskað. „Við leggjum mikla áherslu á að styðja við bakið á for­eldr­unum og hjálpa þeim á allan hátt sem við getum,“ segir hann. „Stað­göngu­mæðrun hefur sums staðar illt orð á sér fyrir að vera gróða­fyr­ir­tæki, eða að ríka fólkið sé að nýta sér neyð fátækra kvenna, sem vissu­lega er raunin sums staðar, en hjá okkur snýst þetta fyrst og fremst um að hjálpa fólki að verða for­eldrar.“

Sjálfur á Mikkel þrjú börn með eig­in­manni sínum, sem er af íslenskum ættum, og þau eru öll fædd af stað­göngu­móður. „Að vera for­eldri er það stór­kost­leg­asta sem nokkur upp­lifir,“ segir hann. „Ég held að við höfum öll þessa þörf fyrir að eign­ast eigin afkvæmi og það viljum við hjá Tammuz Nordic hjálpa fólki við.“

En hvernig snúa þeir karlar sem vilja nýta sér þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins sér í því að útvega eggja­gjafa?

„Það er ýmist í gegnum eggja­banka, eins og hjá gagn­kyn­hneigðum pörum þar sem konan er ófrjó, eða að þeir fá konu sem þeir þekkja og treysta til að gefa egg,“ útskýrir Mikkel. „Hvort sem fólk velur erum við til staðar og aðstoðum, við setjum ekki fram neinar kröfur um að eggin komi úr eggja­banka sem við erum í við­skiptum við.“

Mikkel við­ur­kennir að það sé mjög dýrt að fara í gegnum þetta ferli, en fyr­ir­tækið kapp­kosti að halda kostn­aði eins mikið niðri og kostur sé. „Við erum til dæmis meðal ódýr­ustu stað­göngu­mæðr­un­ar­fyr­ir­tækja í Banda­ríkj­unum,“ segir hann. „Þannig að við erum til­tölu­lega hag­kvæmur kostur ef fólk vill fara þessa leið.“

Mikkel er í stuttu stoppi á Íslandi núna til að kanna hvernig landið liggur, en hann kemur aftur í byrjun októ­ber og mun þá halda kynn­ing­ar­fyr­ir­lestur fyrir áhuga­sama um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins og þann kost að að eign­ast barn með stað­göngu­mæðrun. „En ég er alltaf til­bú­inn að ræða við þá sem vilja kynna sér málið og hvet fólk til að vera í sam­bandi við okkur og spyrja spurn­inga,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag