Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Ný lög auðvelda allt ferli í kringum líffæragjafir

Ný lög auðvelda allt ferli í kringum líffæragjafir
|

Alþingi sam­þykkti í vik­unni ætlað sam­þykki líf­færa­gjafa en það var þing­manns­frum­varp Silju Daggar Gunn­ars­dóttur og Willums Þórs Willumssonar sem lagt var fram á Alþingi.
Mikill skortur er á líf­færum í heim­inum og hafa því margar þjóðir farið þessa leið en árið 2013 hafn­aði Alþingi frum­varpi um ætlað sam­þykki. Þetta frum­varp mun því hafa tölu­verðar breyt­ingar í för með sér.

Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Silja Dögg segir að mikil fræðsla og umræða í sam­fé­lag­inu hafi haft þarna tölu­vert að segja um breytta afstöðu til frum­varps­ins en hún var for­maður í þverpóli­tískum hópi sem skip­aður var á sínum tíma af Krist­jáni Júl­í­us­syni, fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, um líf­færa­gjafir og vann ötul­lega að mál­inu ásamt fleirum. Tíð stjórn­ar­skipti hafi þó haft áhrif á að málið fékk ekki fram­göngu á þingi. Silja tekur fram að það þurfi að halda áfram að fræða fólk um líf­færa­gjafir, upp koma ýmsar spurn­ingar sem varði sið­ferð og trú og menn­ing­ar­legur bak­grunnur hefur áhrif á afstöðu fólks til líf­færa­gjafa. Hún segir að í Noregi sé sér­stök skrif­stofa sem sjái um fræðslu líf­færa­gjafa. „Ég myndi kjósa að það yrði einn starfs­maður hjá Embætti land­læknis sem myndi hafa fræðslu og um líf­færa­gjafir á sínum höndum. Við þurfum að halda áfram að fræða fólk og fara í skóla þó að lögin séu til staðar nú og fólk þarf að geta rætt þetta og afskráð sig, óski það ekki eftir að gefa líf­færi við and­lát. Svo þarf einnig að þjálfa heil­brigð­is­starfs­fólk í sam­bandi við allt ferli um líf­færa­gjafir,“ segir Silja Dögg.

Lög­gjöfin mætir skorti á líf­færum
En hvaða þýð­ingu hefur slík lög­gjöf fyrir almenn­ing? „Samkvæmt rann­sóknum hjá starfs­hópnum þá léttir slík lög­leið­ing mikið á bæði aðstand­endum og auð­veldar allt ferlið í kringum líf­færa­gjöf, en það gildir líka um heil­brigð­is­starfs­fólk. Lög­gjöfin mun hafa miklar breyt­ingar í för með sér til að mæta skorti á líf­færum sem stöðugt eykst með hækk­andi aldri þjóð­ar­innar,“ segir Silja Dögg.

„Við þurfum að halda áfram að fræða fólk og fara í skóla þó að lögin séu til staðar nú og fólk þarf að geta rætt þetta og afskráð sig, óski það ekki eftir að gefa líf­færi við and­lát. Svo þarf einnig að þjálfa heil­brigð­is­starfs­fólk í sam­bandi við allt ferli um líf­færa­gjafir.“

Lög­gjöfin um ætlað sam­þykki var sam­þykkt af 52 þing­mönnum en 2 sátu hjá. Lög frá 1991 byggð­ust á upp­lýstu sam­þykki, þ.e. að hinn látni hefði verið and­vígur líf­færa­gjöf nema hann hefði áður lýst yfir vilja til að gefa líf­færi sín.

Í ljós hefur komið að meg­in­þorri þjóð­ar­innar er hlynntur ætl­uðu sam­þykki. Íslend­ingar hafa hingað til fengið líf­færi úr sam­eig­in­legum líf­færa­banka Norð­ur­landa­þjóða, en líf­færa­gjafir okkar hafa lengst af verið fáar í sam­an­burði við aðra. Fjöldi líf­færa­gjafa hefur auk­ist veru­lega síð­ast­liðin þrjú ár og mik­il­vægt að við­halda því til fram­búðar en það er talið m.a. stafa af auk­inni umræðu og fræðslu um líf­færa­gjafir.

______________________________________________________________

– Mikill skortur er á líf­færum í heim­inum.
– Löggjöf frá 1991 gengur út frá að hinn látni hafi verið and­vígur líf­færa­gjöf.
– Nýju lögin ganga út frá að hinn látni gefi líf­færi sín við and­lát nema hann hafi komið annarri skoðun sinni áleiðis.
– Rann­sóknir hafa sýnt að meg­in­þorri þjóð­ar­innar er hlynntur því að gefa líf­færi.
– Nýju lögin auð­velda bæði aðstand­endum og heil­brigð­is­starfs­fólki allt ferli í kringum líf­færa­gjöf.
– Með fram nýju lög­unum verður bæði almenn­ingur fræddur og heil­brigð­is­starfs­fólk þjálfað.
– Æskilegt er að Embætti land­læknis muni sjá um upp­lýs­ingar um líf­færa­gjafir og þá sem eru and­vígir.

Hér á landi getur fólk skráð vilja sinn ef það vill ekki gefa líf­færi á vef Embættis land­læknis og á www.heilsuvera.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag