Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

„Ákveðinn kostur að vera orðin svona gömul“

Andleg upp­bygg­ing ekki síður mik­il­væg.

„Ákveðinn kostur að vera orðin svona gömul“
||

Þórdís Jóna Hrafn­kels­dóttir, 53 ára hjarta­læknir, er í lands­lið­inu í utan­vega­hlaupum ásamt sjö öðrum hlaup­urum og þann 12. maí næst­kom­andi munu þau taka þátt í heims­meist­ara­mót­inu í utan­vega­hlaupum á Spáni.

Þórdís Jóna Hrafn­kels­dóttir er í lands­lið­inu í utan­vega­hlaupum.

Hlaupa­leiðin er 85 km í Penya­golosa-þjóð­garð­inum í Castellón-hér­aði aust­ar­lega á Spáni. Leiðin liggur inn í land á stígum sem sumir hverjir eru fornar píla­gríms­leiðir. Samtals hækkun er um 5000 m með lækk­unin sem nemur 3600 m. „Þetta er mitt lengsta hlaup fram til þessa og und­ir­bún­ing­ur­inn hefur falist í lengri og skemmri hlaupum, með áherslu á að hlaupa utan­vega og takast á við tals­verðar hækk­anir. Það er mik­il­vægt að ná nokkrum æfingum þar sem maður er lengi að, jafn­vel 4-6 klukku­stundir eða lengur því maður þarf að venj­ast því að vera á lengi á ferð­inni,“ segir Þórdís sem er á loka­spretti und­ir­bún­ings fyrir keppn­ina.

Auk hennar eru í lið­inu Elísabet Mar­geirs­dóttir, Ragn­heiður Svein­björns­dóttir, Hildur Aðal­steins­dóttir, Sigríður Björg Ein­ars­dóttir, Guðni Páll Pálsson, Daníel Reyn­is­son og Sigurjón Ernir Sturlu­son. Liðs­stjór­inn er Frið­leifur Frið­leifs­son, einn af okkar öfl­ug­ustu utan­vega­h­laup­urum. „Við erum með nokkuð mis­mun­andi æfinga­á­ætl­anir en við stelp­urnar höfum náð nokkrum löngum góðum hlaupum saman sem er hvetj­andi og skemmti­legt. Á löngu æfing­unum æfir maður ekki bara hlaupið sem slíkt heldur prófar sig líka áfram með nær­ingu og fatnað. Ég reyni líka að læða inn einni og einni hjóla- eða sun­dæf­ingu til að dreifa álag­inu á skrokk­inn og til til­breyt­ingar. Einnig þarf maður að huga að því að byggja sig upp and­lega, reyna að horfa á sínar sterku hliðar og takast á við hlaupið í hug­anum,“ segir Þórdís. Hún var einnig í lands­lið­inu í fyrra en þá fór keppnin fram í Toscana og voru hlaupnir 50 kíló­metrar með tæp­lega 3000 m hækkun. „Ég var bara nokkuð sátt við hvernig mér gekk, þrátt fyrir heldur hærra hita­stig en við eigum að venj­ast. Ekkert kom upp á í hlaup­inu, ég kom sterk í mark, leið eins vel og manni getur liðið eftir svona langt hlaup og var alveg ótrú­lega ham­ingju­söm. Mér fannst þetta svo jákvæð upp­lifun, góð stemn­ing í lið­inu og frá­bær stemn­ing í fjalla­þorp­inu þar sem hlaupið fór fram og ég er að von­ast til að fá að upp­lifa eitt­hvað svipað aftur á Spáni.“

„Því fylgir ákveðin áskorun að hlaupa utan­vega í allskyns færi og veðri en því fylgir líka meira frelsi. Þú starir ekki á klukk­una til að fylgj­ast með hrað­anum á sama hátt og í götu­hlaupi og það er miklu auð­veld­ara að gleyma sér og njóta.“

Áskorun að hlaupa utan­vega
Keppn­ins­mann­eskja hefur blundað í Þórdísi alla tíð og sem ung­lingur og fram á full­orð­insár keppti hún í frjálsum íþróttum. Hún náði bestum árangri í hástökki, stökk 1,74 m, og keppti líka í 800 m hlaupi og grinda­hlaupi. „Eftir að frjáls­í­þrótta­ferl­inum lauk spil­aði ég körfu­bolta með Stúd­entum í nokkur ár en eftir að börnin fædd­ust og ég fór í sér­nám fór ég að hlaupa mér til heilsu­bótar. Ég setti markið á að taka árlega þátt í Göte­borgs­var­vet sem er stærsta hálf­mara­þon í heimi og fer fram á hverju vori í Gauta­borg þar sem ég bjó í tólf ár. Ég fór síðan að æfa hlaup meira mark­visst eftir að hlaupa­hópur FH var stofn­aður en ég mætti að sjálf­sögðu á fyrstu æfing­una hjá hópnum í jan­úar 2010.  Til að byrja með stund­aði ég aðal­lega götu­hlaup, en ég held að áhug­inn á utan­vega­hlaup­unum hafi kviknað alvar­lega í tengslum við að ég hljóp Jök­ulsár­hlaupið, 32,7 km, þá um haustið. Annars hef ég alltaf haft áhuga á úti­vist og eftir því sem ég hef orðið eldri hefur áhug­inn á lengri keppnum og æfingum auk­ist og fjalla- og utan­vega­hlaup sam­eina svo sann­ar­lega þetta tvennt. Því fylgir ákveðin áskorun að hlaupa utan­vega í allskyns færi og veðri en því fylgir líka meira frelsi. Þú starir ekki á klukk­una til að fylgj­ast með hrað­anum á sama hátt og í götu­hlaupi og það er miklu auð­veld­ara að gleyma sér og njóta. Kost­irnir við utan­vega­hlaupin eru líka þeir að álagið á skrokk­inn er öðru­vísi en við götu­hlaup, en þau reyna líka á jafn­vægi og útsjón­ar­semi. Ég held þau henti flestum, ungum sem öldnum, en maður verður bara að prófa til að kom­ast að því. Þá er ábyggi­lega gott að vera í góðum félags­skap til að byrja með.“

Þórdís ásamt liðs­fé­lögum sínum Hildi Aðal­steins­dóttur, Elísa­betu Mar­geirs­dóttur og Ragn­heiði Svein­björns­dóttur á æfingu á Heng­ils­svæð­inu.

Leggur allt í söl­urnar
Markmið Þórdísar fyrir heims­meist­ara­mótið á Spáni er að mæta vel und­ir­búin til leiks og eiga góðan dag þar sem allt gengur upp. „Og njóta. Ég geri mér grein fyrir að ég er ekki að fara að vinna til verð­launa og að hlaupið verður afar krefj­andi en ef til­finn­ingin eftir hlaupið verður sú að ég hafi lagt allt í söl­urnar og upp­skorið í sam­ræmi við það, verð ég sátt. Ég hlakka líka til að sjá hvernig liðs­fé­lögum mínum gengur,“ segir Þórdís.

Annars er keppnin á Spáni bara byrj­unin á sumr­inu. Þórdís stefnir á að hjóla Vatt­ern­rund­una, 300 km, í júni, auk þess að hlaupa Lauga­veg­inn og fleiri utan­vega­hlaup í sumar. „Svo er aldrei að vita nema ég skelli mér í þrí­þraut erlendis í sept­em­ber,“ segir hún hress í bragði. Og hún fær dyggan stuðn­ing að heiman. „Það er ómet­an­legt að njóta góðs stuðn­ings frá sínum nán­ustu og ég get ekki sagt annað en að á heim­il­inu ríki mik­ill skiln­ingur á að ég verji miklum tíma í æfingar. Svo er nátt­úr­lega ákveð­inn kostur að vera orðin svona gömul eins og ég er, börnin eru orðin full­orðin og því slepp ég alveg við að útvega pössun til að geta stundað mínar íþróttir.“

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son og úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag