Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Semur leikrit um kynferðislega áreitni: „Mennirnir hér eru töluvert grófari“

Semur leikrit um kynferðislega áreitni: „Mennirnir hér eru töluvert grófari“
||||||

Karen Erlu­dóttir flutti til Los Angeles í sept­em­ber 2016 til að læra kvik­mynda­leik­list í skól­anum New York Film Academy. Hún vinnur nú að loka­verk­efni sínu þar sem hún safnar saman sögum kvenna af kyn­ferð­is­legri áreitni. Hún segir Los Angeles vera sitt annað heim­ili, þó að borgin hafi vissu­lega sína galla eins og aðrir staðir í heim­inum.

Auðvitað er Karen búin að heim­sækja Central Perk, enda mik­ill Friends-aðdá­andi.

„Ég er mikið fiðr­ildi að eðl­is­fari og hef búið á hinum og þessum stöðum í heim­inum og fannst því þessir flutn­ingar ekk­ert nema spenn­andi. Það er auð­vitað alltaf erfitt að skilja eftir fólkið sem maður elskar, en maður verður að elta draumana sína meðan maður getur. Veðrið hér hjálpar líka heil­mikið. Það er erfitt að fá heim­þrá þegar maður liggur við sund­laug­ar­bakk­ann að sleikja sól­ina,“ segir Karen og hlær.

Heilsteyptari og hamingjusamari

Karen útskrif­ast í vor með AFA-gráðu í leik­list frá New York Film Academy í Los Angeles. Þó að áherslan í nám­inu sé á leik­list, lærir Karen flest sem teng­ist kvik­mynda­gerð, svo sem leik­stjórn, lýs­ingu, klippi­vinnu og fleira.

„Það að fara í þetta nám er án efa besta ákvörðun sem ég hef tekið,“ segir Karen sem blómstrar á þess­ari braut þótt námið taki oft á. „Námið er gíf­ur­lega krefj­andi, erfitt og ég hef aldrei þurft að gefa jafn­mikið af mér, en það er allt þess virði. Í sann­leika sagt finnst mér mjög leið­in­legt að ég sé alveg að fara að útskrif­ast sem er alveg glæný til­finn­ing, en ég held að það segi allt sem segja þarf,“ segir Karen. Hún bætir við að námið hafi í raun þvingað hana til að fara í mikla og djúpa sjálf­skoðun.

„Það sem hefur komið mér hvað mest á óvart í þessu námi er hvað ég hef kynnst sjálfri mér mikið, eins fárán­legt og það kannski hljómar. Ég hef tölu­vert meira sjálfs­traust en ég hef nokkurn tíma haft og er miklu örugg­ari í öllu sem ég tek mér fyrir hendur. Ég kem ekki bara út úr nám­inu sem reynd­ari leik­kona heldur líka sem miklu heil­steypt­ari og ham­ingju­sam­ari ein­stak­lingur. Sem er algjör­lega ómet­an­legt.“

Karlmenn í Los Angeles talsvert grófari

Karen vinnur nú í loka­verk­efni sínu, sem felst í því að hún skrifar sitt eigið leik­rit og setur það síðan á svið í lok annar. Hún ákvað að sækja inn­blástur úr tíð­ar­and­anum í sam­fé­lag­inu og #metoo-bylt­ing­unni.

„Ég hef ekki mikla reynslu í að semja en ákvað að fyrst þetta er eitt­hvað sem ég á að gera þá ætla ég að gera það almenni­lega. Ég vildi því skrifa sögu sem skiptir máli, nýta tæki­færið til hins ýtrasta og von­andi hafa ein­hver áhrif. Ég ákvað því að skrifa um kyn­ferð­is­lega áreitni gagn­vart konum þar sem það er eitt­hvað sem við lendum allar í, á einn hátt eða annan, og það virð­ist bara vera normið sem það á svo sann­ar­lega ekki að vera,“ segir Karen. Til að fá vissa breidd í verkið ákvað hún að aug­lýsa eftir sögum kvenna sem lýstu þess­ari áreitni. Þar kom hún ekki að tómum kof­anum.

„Mér fannst ég ekki getað skrifað aðeins út frá minni reynslu og mínu sjón­ar­horni, svo ég aug­lýsti eftir sögum frá öðrum konum, því þetta er ekki bara mín saga, þetta er sagan okkar allra. Ég fékk gíf­ur­legt magn af sögum sem ég er rosa­lega þakk­lát fyrir, en á sama tíma gera þær mig svaka­lega reiða. Það sýndi mér bara enn þá frekar hvað það er mik­il­vægt að tala um þetta, opna augu fólks,“ segir þessi dugn­að­ar­forkur og bætir við að ekki sé of seint að senda henni sögu.
Karen fékk smjör­þef­inn af brans­anum þegar hún fór á Ósk­arsverð­launa­há­tíð­ina fyrr á árinu.

„Ég er enn að taka á móti sögum og hver saga hjálpar. Ég sjálf hef heilt haf af sögum að segja og þá sér­stak­lega eftir að ég flutti hingað til Los Angeles, þar sem menn­irnir hér eru tölu­vert gróf­ari og það var aðal­kveikjan að þess­ari hug­mynd. Við­horfið þarf að breyt­ast og ég ætla ekki bara að sitja á rass­inum og vona að það ger­ist, svo ég er að reyna að leggja mitt af mörkum. Eins og staðan er núna er þetta bara skóla­verk­efni, en það er aldrei að vita nema ég fari með þetta eitt­hvað lengra.“

Lenti næstum í árekstri við Courteney Cox

Los Angeles hefur oft verið kölluð borg draumanna, enda margir sem leggja leið sína þangað ein­göngu með drauma um frægð og frama í fartesk­inu. Því verð ég að spyrja hvort Karen vilji festa rætur í borg­inni?

„Eins og ég nefndi áðan þá er ég mjög mikið fiðr­ildi og er því ekki aðdá­andi þess að plana langt fram í tím­ann. Ég vil frekar bara bíða og sjá hvert lífið tekur mig. En eftir útskrift er stefnan tekin heim til Íslands og í sumar verð ég að kenna börnum og ung­lingum leik­list. Hvar ég verð í haust eða vetur er hins vegar ekki ákveðið. Ég er mjög heima­kær þrátt fyrir að vera fiðr­ildi og mig langar rosa­lega að geta unnið sem leik­kona heima á Íslandi. Ég er þó ekki til­búin til að kveðja Los Angeles alveg, svo ég kem hingað fljótt aftur,“ segir Karen sem er mjög hug­fangin af borg englanna. „Borgin hefur að sjálf­sögðu sína galla, eins og hver annar staður, en hér líður mér vel. Los Angeles verður án efa alltaf mitt annað heim­ili.“

Talandi um borg draumanna, þá hafa sumir þá ímynd af Los Angeles að þar séu stjörnur á hverju horni. Er það rétt?

„Ég myndi kannski ekki segja á hverju horni, en skól­inn minn er við hlið­ina á Warner Brothers Studios og ég bý þar mjög nálægt svo ég hef séð tölu­vert margar stjörnur. Sem brjál­aður Friends-aðdá­andi mun það alltaf standa upp úr þegar Courteney Cox/Monica Geller keyrði næstum á mig. Hún varð alveg miður sín, en ég var ekki lengi að fyr­ir­gefa henni þetta. Annars hef ég líka séð Matt LeBlanc, Ellen, Önnu Faris, Celine Dion, Wilson Bethel, Leu Thompson, Margot Robbie, Chris Pratt, Apl.de.ap, Redfoo og marga fleiri,“ segir Karen.

Á góðri stundu með Apl.de.ap úr ofur­grúbb­unni Black Eyed Peas.

Sýnd klámmynd í Uber-bíl

Hvað er það skrýtn­asta sem þú hefur upp­lifað í Los Angeles?

„Ég er hrein­lega ekki viss um hvort það sé Uber-bíl­stjór­inn sem sýndi mér klám­mynd­ina sem hann lék í, á meðan hann var að keyra, alveg óum­beð­inn. Eða kom­ast að því að strák­ur­inn sem bjó í íbúð­inni fyrir ofan mig var Íslend­ingur. Ég meina, við erum nú ekki mörg og Los Angeles er mjög stór borg. Eða þegar ég fann tví­fara minn hér og lenti með henni í bekk. Við erum ekki bara mjög líkar útlits­lega heldur með nán­ast sama per­sónu­leika og sama smekk á öllu. Það eru ein­hver stór­und­ar­leg tengsl okkar á milli og við vitum nán­ast hvað hin er að hugsa öllum stundum,“ segir Karen.

En það skemmti­leg­asta?

„Úff, það er afar erfitt að velja bara eitt. Eitt af því sem ég mun aldrei gleyma er þegar ég fór á Óskarinn og þegar ég horfði á tökur á Mom-þátt­unum í Warner Brothers Studios og var dregin upp á svið. Þeim fannst svo áhuga­vert að ég væri íslensk, en Amer­ík­anar gjör­sam­lega elska okkur, svo þau spurðu mig spjör­unum úr um Ísland og báðu mig svo að lokum að syngja fyrir þau á íslensku,“ segir Karen, sem fékk ekki að sleppa við það, enda Ósk­arsverð­launa­leik­kona í leik­ara­lið­inu.

Karen með tón­list­ar­mann­inum Redfoo sem er hvað þekkt­astur úr sveit­inni LMFAO.

„Ég syng ekki fyrir framan fólk og neit­aði því. Þau tóku hins­vegar ekki neitun sem svari og þegar sjálf Allison Janney var farin að hvetja mig áfram gat ég eig­in­lega ekki sagt nei. Ég meina, konan var til­nefnd, og vann síðan Óskarinn. Svo ég söng eina íslenska lagið sem mér datt í hug í augna­blik­inu, Rómeó og Júlíu, án und­ir­spils og í míkra­fón fyrir framan sirka þrjú hund­ruð manns og tölu­verður hluti þeirra var mik­il­vægt fólk í brans­anum. Það þagn­aði hver ein­asta sála í öllu stúd­íó­inu og starði á mig. Ég þakka enn fyrir það að hafa ekki liðið út af. En því­líkt adrena­línkikk sem þetta var,“ segir Karen og brosir þegar hún hugsar um þetta stór­kost­lega augna­blik.

Matvöruverslanir eins og félagsmiðstöðvar

Í nám­inu sem Karen er í er aðal­á­hersla lögð á leik­list.

Ísland togar í okkar konu og það er ýmis­legt sem hún saknar frá heima­land­inu.

„Fyrir utan fjöl­skyldu mína og vini sakna ég klár­lega íslenska vatns­ins. Nói Siríus kemst að vísu ansi nálægt vatn­inu, en sam­viskan segir að velja vatnið frekar,“ segir Karen og hlær. „Ég sakna líka íslensku menn­ing­ar­innar mjög mikið. Menn­ingin hér er tölu­vert ólík, sem kom mér mikið á óvart. Hér verð ég rosa­lega mikið vör við kyn­þátta­hatur, gömul við­horf gagn­vart konum og bara almennt er mun meira mis­rétti en á Íslandi. En aftur á móti er fólk mun opn­ara hér og þú lendir miklu oftar í því að spjalla við blá­ó­kunn­ugt fólk tímunum saman. Það að skreppa inn í mat­vöru­verslun hér getur oft verið eins og að ganga inn í félags­mið­stöð, á meðan þú labbar inn í Bónus heima og segir ekki orð allan tím­ann. Tæki­færin í Los Angeles eru líka enda­laus og tölu­vert meira úrval en heima á Íslandi. Ég gæti, held ég, þulið enda­laust upp en Los Angeles og Ísland eru bara afar ólíkir staðir að öllu leyti, það er í það minnsta ekki margt sem þessir staðir eiga sam­eig­in­legt.“

Ævistarfið er leiklistin

Talið berst að fram­tíð­ar­draumunum og þó að Karen sé mik­ill flakk­ari og plani ekki langt fram í tím­ann er ljóst að leik­listin á eftir að spila stórt hlut­verk í lífi hennar.

„Mig hefur alltaf langað að vera leik­kona, alveg síðan ég man eftir mér. Aumingja mamma þurfti að horfa á ófá leik­ritin heima í stofu þegar ég var krakki. Svo þegar hún var hætt að nenna, tók ég þau bara upp á mynda­vél og horfði svo sjálf. Ég fékk síðan loks­ins kjarkinn til að sækja um að kom­ast í skól­ann og sé svo sann­ar­lega ekki eftir því. Ég sé mig ekki gera neitt annað í líf­inu.“
Í Los Angeles er alltaf sól og blíða.

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag