Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þetta færðu fyrir 30 milljónir

Þetta færðu fyrir 30 milljónir
||||||||||||||||||||||||||||

Við kíktum á fast­eigna­mark­að­inn fyrir stuttu og hvers konar eignir væru falar fyrir 35 millj­ónir króna. Við ákváðum að end­ur­taka leik­inn, enda alltaf gaman að velta fast­eignum fyrir sér, en kíkjum nú á hvað er hægt að festa kaup á fyrir 30 millj­ónir.

Það er bjart á Akranesi

Á Akranesi er snot­urt hús við Kirkju­braut sem skipt­ist í efri hæð sem er rúm­lega hund­rað fer­metrar og ris sem er rúm­lega 34 fer­metrar. Eignin er búin fjórum svefn­her­bergjum og einu bað­her­bergi og er heim­ilið afar bjart. Kominn er tími á við­hald, til dæmis á rennur, en húsið var sprungu­við­gert og málað að utan árið 2016. Þá var járn á þaki end­ur­nýjað árið 2004 og skipt um tvo glugga í stofu og svefn­her­bergi.

Útsýni yfir Ólafsvík

Aðeins vestar á Ólafsvík er 159 fer­metra hús við Tún­brekku á 30 millj­ónir. Úr íbúð­inni er gott útsýni yfir Ólafsvík og er hún búin þremur svefn­her­bergjum og einu bað­her­bergi. Þá fylgir bíl­skúr með sem er 29 fer­metra að stærð. Eignin býður uppá mikla mögu­leika og er full­komin fyrir hand­lagna sem vilja breyta og bæta.

Glæný 62 fermetra íbúð

Á Akureyri er hægt að fá glæ­nýja, 2ja her­bergja íbúð á 30 millj­ónir. Íbúðin er 62,2 fer­metrar og er á 4. hæð í nýju fimm hæða fjöl­eign­ar­húsí í Gler­ár­hverfi. Fleiri íbúðir í svip­uðum stíl eru í boði á fast­eigna­vefjum lands­ins en í hús­inu er lyfta og bíla­geymsla. Íbúðin er búin einu svefn­her­bergi og hentar því vel pari eða ein­stak­ling. Hugs­an­lega ágætt fyrsta skref á íbúða­mark­að­inum.

190 fermetrar á Hofsósi

Á Hofsósi, nánar til­tekið við Kirkju­götu, er hægt að næla sér í nýupp­gert ein­býl­is­hús á 30 millj­ónir. Húsið er 186,8 fer­metrar að stærð, en þar af er bíl­skúr sem er tæp­lega 44 fer­metrar. Í hús­inu eru þrjú svefn­her­bergi og hentar því afar vel fyrir með­al­fjöl­skyldu. Mikið hefur verið gert fyrir húsið, til dæmis hefur verið skipt um glugga og gól­f­efni og settur hiti í gólf. Hins vegar á eftir að gera upp bíl­skúr­inn.

Hlíðarnar þurfa ást og tíma

Ef fólk vill halda sig á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er hægt að festa kaup á tveggja her­bergja íbúð við Eskihlíð í Reykja­vík fyrir 30 millj­ónir. Íbúðin er skráð 69,3 fer­metrar og sam­eign undir stiga telur 1,7 fer­metra. Hér er á ferð­inni íbúð sem kallar á ein­hvern sem er til­bú­inn til að eyða tíma og ást í að gera hana upp því hún þarfn­ast tals­verðs við­halds að utan sem innan.

Ómótstæðilegt útsýni

Stór fjöl­skylda gæti prófað eitt­hvað nýtt og flutt að Aust­ur­vegi í Hrísey þar sem er til sölu 225,2 fer­metra ein­býl­is­hús á 30 millj­ónir. Húsið er búið sex svefn­her­bergjum og einu bað­her­bergi og ku allur frá­gangur eign­ar­innar og við­hald vera til fyr­ir­myndar. Svo ekki sé minnst á útsýnið yfir eyj­una, sem er dásam­legt.

Sveitasælan kallar

Svo ef ekk­ert af þessu heillar er alltaf hægt að splæsa í sum­ar­hús í landi Merki­hvolls í Lands­sveit. 79,5 fer­metrar og þrjú svefn­her­bergi í sann­kall­aðri sveita­sælu. Þetta snotra bjálka­hús var byggt árið 2004 og er á tveimur hæðum. Lóðin er 4072 fer­metrar og er 97 fer­metra pallur við húsið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina