Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Breytti lífi sínu með skynsemina að leiðarljósi

Líf Maríu Hlínar Eyj­ólfs­dóttur tók stakka­skiptum eftir að hún leit­aði sér aðstoðar.

Breytti lífi sínu með skynsemina að leiðarljósi
||

Fyrir fimm árum var María Hlín Eyj­ólfs­dóttir illa á sig komin og und­ir­lögð af verkjum. Hún ákvað að leita sér aðstoðar til að brjót­ast úr ástand­inu og hefur með dugn­aði, elju og skyn­semi náð undra­verðum árangri.

„Lífið er allt annað í dag,“ segir María, sem stundar nám­skeiðið enn af fullum krafti auk þess að hlaupa og fara í fjall­göngur á sumrin.

„Mik­il­væg­ast af öllu er að halda í gleð­ina. Að missa aldrei sjónir af henni. Ef mér hefði ekki tek­ist að halda í hana í gegnum þetta allt þá veit ég hrein­lega ekki hvernig þetta hefði farið. Kannski hefði ég bara gef­ist upp,“ segir María Hlín Eyj­ólfs­dóttir, starfs­maður á leik­skól­anum Jökla­borg.

Fyrir fimm árum tók María ákvörðun um að breyta um lífs­stíl eftir að hafa glímt við ofþreytu og verki um langt skeið. Hún skellti sér í heim­sókn til Heilsu­borgar en í stað þess að undir-gang­ast heilus­mat hjá hjúkr­un­ar­fræð­ingi og láta skoða matar­æði, hreyf­inu og svefn eins og margir gera, skráði hún sig í Heilsu­lausnir – hóp­tíma þar sem lögð er áhersla á alhliða hreyf­ingu.

„Auðvitað var ekk­ert grín að byrja,“ játar hún. „Ég hafði ekki stundað neina hreyf­ingu lengi og var í engu formi, gat varla gengið og leið illa með sjálfa mig. Fyrir utan að ég var með alls konar verki. Meðal ann­ars krónískan höf­uð­verk vegna gam­alla meiðsla á hálsi. En ég var stað­ráðin í að gef­ast ekki upp og fékk góða hvatn­ingu frá þjálf­urum og þátt­tak­endum á nám­skeið­inu.“

„Ég held nefni­lega að stærstu mis­tökin sem fólk gerir þegar það ákveður að snúa við blað­inu sé að ætla sér of mikið á of skömmum tíma …. Ég held að það sé ein helsta ástæða þess að fólk gefst oft upp.“

Í sam­ráði við þjálf­ar­ana seg­ist María hafa ákveðið að gera allar breyt­ingar rólega. Hún mætti til dæmis í rækt­ina þrisvar í viku til að byrja með á meðan hún var að koma því upp í vana og tók matar­æðið smám saman í gegn og var ekk­ert að mæla árang­ur­inn í lækk­aðri fitu­pró­sentu heldur bættri líðan. „Með öðrum orðum var ég ekk­ert að umturna lífi mínu með ein­hverjum öfgum,“ segir hún. „Ég held nefni­lega að stærstu mis­tökin sem fólk gerir þegar það ákveður að snúa við blað­inu sé að ætla sér of mikið á of skömmum tíma. Allt á að ger­ast á einu bretti. Eins og í Biggest Looser. Ég held að það sé ein helsta ástæða þess að fólk gefst oft upp.“

María var illa á sig komin og und­ir­lögð af verkjum þegar hún leit­aði sér aðstoðar.

Ekki leið á löngu þar til María fór að verða vör við breyt­ingar á sjálfri sér. Á einu ári varð hún lík­am­lega hraust­ari en hún hafði verið um langt skeið og það sem meira er: and­leg líð­anin tók stakka­skiptum. Hún hélt því áfram með skyn­sem­ina að leið­ar­ljósi og fimm árum síðar kveðst hún vera allt önnur en þegar hún steig fyrst inn á stöð­ina illa á sig komin og und­ir­lögð af verkjum.

„Lífið er allt annað í dag. Ég er létt­ari en það sem skiptir meiru er að ég er í betra formi og mér líður betur and­lega. Reyndar fæ ég enn höf­uð­verki af og til en með reglu­legri hreyf­ingu hefur mér tek­ist að draga úr þeim,“ segir hún og kveðst enn stunda hóp­tím­ana af fullum krafti. Að auki er hún byrjuð að hlaupa og fara í fjall­göngur á sumrin til að brjóta upp rútín­una.

„Lífið er allt annað í dag. Ég er létt­ari en það sem skiptir meiru er að ég er í betra formi og mér líður betur and­lega.“

Spurð hvort hún eigi ein­hver ráð handa fólk sem er í svip­uðum sporum og hún var sjálf í segir María að fyrsta skrefið sé að leita sér aðstoðar. „Taktu skrefið og fáðu hjálp. Faglega hjálp. Það er ekk­ert að því. Ég veit það getur verið erfitt. En treystu mér, það marg­borgar sig,“ segir hún glað­lega.

Texti / Roald Eyvinds­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag