Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Girnirlegir og einfaldir eftirréttir

Gómsætir eft­ir­réttir gerðir með góðum fyr­ir­vara.

Girnirlegir og einfaldir eftirréttir
|||

Hér eru upp­skriftir að glæsi­legum eft­ir­réttum sem má laga með góðum fyr­ir­vara. Er það ekki einmitt það sem við þurfum, að hafa mögu­leika á að skipu­leggja okkur svo­lítið með góðum fyr­ir­vara og ein­göngu þurfa að setja eft­ir­rétt­inn saman rétt áður en hann er bor­inn fram.

Ís og eldur
fyrir 8-10

Hér má gera ísinn til­bú­inn með nokk­urra vikna fyr­ir­vara. Þessi ís á mynd­inni er ekki með köku­botn en það er líka gott að hafa ljósan eða dökkan köku­botn undir. Væta má í köku­botn­inum með víni eða ávaxta­safa. Óneit­an­lega glæsi­legur eft­ir­réttur og flott að stinga stjörnu­ljósum í hann fyrir gamlárs­kvöld. Þið getið hæg­lega keypt góðan ís og stytt ykkur leið, ef þið notið til­bú­inn ís þarf u.þ.b. 800 ml af jarð­ar­berjaís og 1000-1200 ml af súkkulaðiís eða bara þeim ís sem er að ykkar smekk.

Þessi ís á mynd­inni er ekki með köku­botn en það er líka gott að hafa ljósan eða dökkan köku­botn undir.

Jarð­ar­berjaís:

3 eggja­r­auður
4 msk. sykur
1 msk. vanillu­sykur
300-400 g jarð­ar­ber, maukuð í mat­vinnslu­vél
4 dl rjómi, létt­þeyttur

Þeytið rauður með sykrinum og vanillu­sykrinum þar til blandan er létt og loft­kennd. Blandið jarð­ar­berjum og þeyttum rjóma var­lega saman við og hellið í skál. Frystið.

Súkkulaðiís:

150 g súkkulaði
1 ½ dl mjólk
3 eggja­r­auður
4 dl rjómi, létt­þeyttur

Bræðið súkkulaði og mjólk saman í vatns­baði. Bætið eggjar­auðum út í og þeytið blönd­una yfir vatns­bað­inu í 6-8 mín. eða þar til blandan þykknar aðeins. Kælið og blandið þeyttum rjóm­anum saman við. Hellið ofan á jarð­ar­berja­ís­inn og frystið.

Mar­en­stoppur:

3 eggja­hvítur
90 g sykur
90 g flór­sykur

Hitið ofn­inn á 250°C. Þeytið eggja­hvítur þar til þær eru að verða stífar. Blandið sykri saman í skál og bætið út í hvít­urnar einni mat­skeið í einu. Hrærið áfram í 6-8 mín. eða þar til mar­ens­inn er stífur. Takið ísinn úr frysti og losið úr skál­inni, hvolfið á ofn­plötu eða köku­botn. Smyrjið mar­ens­inum ofan á allan ísinn. Setjið í ofn­inn í nokkrar mín­útur eða þar til hann er far­inn að taka lit. Einnig má fá húð á mar­ens­inn með því að nota gas­brenn­ara.

________________________________________________________________

Súkkulaði-marquise með app­el­sínu­þrennu
fyrir 8-10

Súkkulaði-marquise er gott að eiga í ísskáp eða frysti og taka fram eftir þörfum. Hægt er að fá 10-12 sneiðar úr þess­ari upp­skrift en þetta er ríku­legur og sað­samur eft­ir­réttur og ekki þarf mikið magn á hvern disk. Gott er að hafa könnu með heitu vatni og væta hníf­inn og þerra til að skera niður fal­legar sneið­arnar.

Gott er að hafa könnu með heitu vatni og væta hníf­inn og þerra til að skera niður fal­legar sneið­arnar.

400 g súkkulaði
200 g smjör
1 dl sykur
1 msk. kon­íak (má sleppa)
6 egg, aðskilin

Smyrjið jóla­köku­form, 25 cm langt, með olíu og leggið plast­filmu í það, eina eftir endi­löngu og aðra þvert, það þarf að þekja botn­inn og allar hliðar. Bræðið súkkulaðið með smjör­inu í vatns­baði við vægan hita. Bætið sykrinum og kon­íakinu út í og hrærið í þar til syk­ur­inn er upp­leystur. Takið súkkulaði­blönd­una af hit­anum og bætið eggjar­auðum í, einni í einu, og hrærið vel saman. Þeytið eggja­hvít­urnar þar til þær eru stífar. Bætið þeim í súkkulaði­blönd­una, fyrst helm­ingnum og síðan öllu og blandið vel saman. Hellið súkkulaði­blönd­unni í formið, það verður alveg fullt og kælið eða setjið í frysti. Berið fram með app­el­sínu­þrennu og kumats í sírópi.

App­el­sínu­þrenna:

3 mat­ar­líms­blöð
1 app­el­sína
2 blóð­app­el­sínur
3 mandar­ínur
2 dl hvítvín, eða epla­safi
1 ½ dl sykur

Leggið mat­ar­líms­blöðin í ískalt vatn í 5-10 mín. Flysjið app­el­sínu og blóð­app­el­sínur með hníf og losið laufin var­lega frá án þess að himnan fari með. Flysjið mandar­ínur og fjar­lægið mest af himn­unni, setjið allt ald­in­kjötið í skál. Hitið hvítvín eða epla­safa ásamt sykri og leysið syk­ur­inn upp. Bræðið mat­ar­límið í syk­ur­síróp­inu. Skiptið ald­in­kjöt­inu í form, gott að nota múffu­mót, magnið fer svo­lítið eftir stærð­inni á app­el­sínum en þið ættuð að ná í a.m.k. 6 skammta. Hellið syk­ur­blönd­unni ofan á ald­in­kjötið. Kælið þar til stíft. Þetta má gera með allt að tveggja daga fyr­ir­vara.

Kumat-síróp:

6-8 kumat, skorið í sneiðar
1 dl vatn
¾ dl sykur

Sjóðið allt saman og kælið aðeins. Geymist í 1-2 daga.

Sam­setn­ing:
Setjið 1-2 sneiðar af súkkulaði-marquise á mann og setjið á fal­lega diska. Losið app­el­sínu­þrennu úr form­inu og setjið á diskinn. Raðið nokkrum sneiðum af kumat á diskinn og hellið síróp­inu af því í kring. Berið fram með ískaldri grískri jógúrt eða sýrðum rjóma, bragð­bættum með smá­vegis af flór­sykri og vanillu eða þeyttum rjóma.

________________________________________________________________

Panna cotta með rauðum toppi
fyrir 4

Hér er jóla­legur eft­ir­réttur fyrir full­orðna fólkið, það er að segja þá sem finnst Campari gott. Skipta má Campari út fyrir Ribena. Ég hef ekki of mikið af mat­ar­lími í rjóma­blönd­unni, mér finnst betra að hafa búð­ing­inn ekki of stífan þegar hann er í glasi.

Hér er jóla­legur eft­ir­réttur fyrir full­orðna fólkið, það er að segja þá sem finnst Campari gott. Skipta má Campari út fyrir Ribena.

3 mat­ar­líms­blöð
4 dl rjómi
2 dl mjólk
4-5 msk. sykur
1 vanillu­stöng
½ tsk. vanillu­dropar

Leggið mat­ar­límið í bleyti í kalt vatn í 5-10 mín. Setið rjóma og mjólk í pott, setjið sykur, korn af vanillu­stöng ásamt stöng­inni út í og hitið þar til syk­ur­inn er upp­leystur. Látið blönd­una standa í 8-10 mín. svo að rjóma­blandan taki í sig allt góða bragðið af vanill­unni. Leysið mat­ar­límið upp í blönd­unni, bætið vanillu­dropum í, hellið henni í gegnum sigti og skiptið í fal­leg glös. Kælið þar til blandan fer að stífna.

Rauður toppur:

2 mat­ar­líms­blöð
1 dl vatn
1 dl sykur
safi úr 1 sítrónu
2-4 msk. Campari (má sleppa og nota Ribena)

Leggið mat­ar­líms­blöðin í bleyti í kalt vatn. Hitið vatn og sykur ásamt sítrónusafa í litlum potti þar til syk­ur­inn er upp­leystur. Bætið Campari út í og bragð­bætið. Leysið mat­ar­límið upp í blönd­unni og hellið ofan á panna cotta þegar það er orðið stíft. Gjarnan má gera eft­ir­rétt­inn til­bú­inn dag­inn áður.

Umsjón / Sigríður Björk Braga­dóttir
Myndir / Kristinn Magn­ús­son
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernu­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni