Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Góð ráð sem koma í veg fyrir að þú klúðrir grillmatnum

Grill­klúður stafa oft af því að eld­un­ar­tími hvers hrá­efnis fyrir sig er ekki sá sami. Það lítur fal­lega út að setja kjöt, paprikur, lauk og sveppi saman á spjót en þessi hrá­efni þurfa mis­langan tíma á grill­inu og jafn­vel mis­mik­inn hita. Ein­fald­ast er að hafa kjötið sér á spjóti og græn­metið sér á spjóti og jafn­vel má hafa bara sveppi á einu spjóti, bara paprikur á öðru o.s.frv.

Góð ráð sem koma í veg fyrir að þú klúðrir grillmatnum

Snúið matnum helst aðeins einu sinni á grill­inu.

Ekki stinga í kjötið með gaffli til að snúa því, það opnar kjötið og hleypir út góm­sætum safanum. Notið frekar tengur.

Penslið heita grind­ina með olíu áður en byrjað er að grilla.

Ef gleymst hefur að þrífa grillið eftir síð­asta skipti er best að kveikja upp í grill­inu og láta grind­ina hitna vel svo leif­arnar brenni á henni. Burstið svo brunnar leif­arnar af með löngum vír­bursta.

Blandið aldrei saman hráu og eld­uðu. Setjið mat­inn aldrei aftur í sama fatið eftir að búið er að grilla hann.

Salt og pipar eru gríð­ar­lega mik­il­væg þegar kemur grill­mat en salt dregur vökvann úr hrá­efn­inu og því ætti aldrei að salta mat fyrir grillun heldur eft­irá.

Þegar kjöt er þurrkryddað er gott að skera grunnar rákir ofan í það áður en krydd­blönd­unni er nuddað á því þá nær krydd­bragðið lengra inn í kjötið. Þegar kjúklingur er krydd­aður á þennan hátt er gott að setja krydd­blönd­una bæði inn­undir skinnið og utan á.

Þegar grillað er á kola­grilli er best að kveikja upp í grill­inu 30-40 mín. áður en byrjað er að grilla. Það gefur kol­unum tíma til að ná réttum hita.

Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að for­hita grillið vel áður en mat­ur­inn er settur á það. Vel heppnuð grillun felst í því að steikja ysta lag hrá­efn­is­ins hratt og mynda þannig bragð­mikla skorpu utan um safa­ríka miðju. Ef grillið er ekki nógu heitt er hætt við að kjötið verði seigt, þurrt og bragð­dauft.

Gasgrill þurfa 10-15 mín. til að hita upp hraun­grjótið ef það er til staðar.

Þegar verið er að grilla þarf oft að hafa hraðar hendur og þess vegna er best að hafa allt sem þarf við hönd­ina frá upp­hafi, t.d. tengur, spaða, krydd­lög til að pensla með, salt, pipar o.s.frv.

Ekki freist­ast til að færa eða fikta í mat fyrstu mín­út­urnar sem hann er á grill­inu. Flest hrá­efni fest­ist við grill­grind­ina fyrstu mín­út­urnar en þegar skorpan hefur mynd­ast er ekk­ert mál að snúa matnum við.

Ekki ofhlaða á grill­grind­ina. Ef of mik­ill matur er settur á grillið í einu er hætt við að mat­ur­inn verði frekar blautur en stökkur.

Athugið reglu­lega hvort mat­ur­inn er til­bú­inn og byrjið að athuga nokkrum mín­útum áður en mat­ur­inn ætti að vera til­bú­inn. Það verður ekki aftur snúið ef steikin er orðin ofelduð.

Ekki yfir­gefa svæðið. Matur er fljótur að eld­ast yfir heitum log­unum og einnig er alltaf mögu­leiki á því að slys eigi sér stað í kringum sjóð­andi heitt grillið.

Hreinsið grillið eftir hverja notkun. Hrein grill­grind kemur í veg fyrir að mat­ur­inn fest­ist. Ef grill­grindin er þakin brenndum mat­ar­leifum er hætt við að nýi mat­ur­inn beri bragð af þeim gamla auk þess sem hann verður sótugri. Burstið grind­ina með stífum vír­bursta á meðan hún er enn heit.

Umsjón / Guðrún Vaka Helga­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni