Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Meistaranám í iðnaðarlíftækni

Háskóli Íslands og lyfja­fyr­ir­tækið Alvotech hafa gert með sér sam­komu­lag um þver­fag­legt sam­starf varð­andi nýja náms­leið en frá og með næsta hausti verður boðið upp á meist­ara­nám í iðn­að­ar­líf­tækni við Háskóla Íslands. Fyrir utan kenn­ara við Háskóla Íslands munu sér­fræð­ingar og vís­inda­menn frá Alvotech koma að kennslu nokk­urra nám­skeiða en Alvotech styrkir námið til að koma því á lagg­irnar. Umsókn­ar­frestur í námið er til 15. apríl.

Meistaranám í iðnaðarlíftækni

Alþjóð­lega lyfja­fyr­ir­tækið Alvotech var stofnað árið 2013 og var hátækni­setrið form­lega opnað árið 2016. Það er stað­sett innan Vís­inda­garða Háskóla Íslands en þeir voru stofn­aðir til að efla sam­starf fyr­ir­tækja, rann­sókna­stofn­ana og háskóla um nýsköpun og skapa aðstöðu fyrir frum­kvöðla.

„Þess vegna er ákaf­lega mik­il­vægt að koma á sterku sam­starfi á milli fyr­ir­tæk­is­ins og Háskóla Íslands,“ segir Sesselja Ómars­dóttir, pró­fessor við lyfja­fræði­deild Háskóla Íslands og fram­kvæmda­stjóri hjá Alvotech. Fyr­ir­tækið sér­hæfir sig í þróun og fram­leiðslu líf­tækni­lyfja og stefnir fyr­ir­tækið að því að vera leið­andi á sínu sviði á næstu árum. „Átta af tíu sölu­hæstu lyfjum í dag eru líf­tækni­lyf; þetta er fram­tíðin,“ segir Sesselja.

Fyr­ir­tækið styrkir meist­ara­námið til að koma því á lagg­irnar en að sögn Sesselju getur verið erfitt að koma af stað nýrri náms­leið sem og kostn­að­ar­samt.

Mikilvægt fyrir báða aðila

„Sam­starfs­samn­ingur var gerður 8. mars árið 2018 á milli Háskóla Íslands og Alvotech og í kjöl­farið var sett á lagg­irnar sam­starfs­nefnd og meist­ara­nám í iðn­að­ar­líf­tækni sem var eitt af þeim verk­efnum sem sett var á odd­inn til að ríða á vaðið í sam­starf­inu. Þar sem þetta sam­starf byggir á því að efla kennslu, þjálfun, rann­sóknir og nýsköpun fannst okkur eitt brýn­asta verk­efnið vera að koma af stað námi sem tengir saman þennan nýja og spenn­andi líf­tækni­iðnað og aka­dem­í­una. Okkur hefur á einu ári tek­ist að setja saman þetta meist­ara­nám í iðn­að­ar­líf­tækni,“ segir Sesselja en umsókn­ar­frestur í námið er til 15. apríl og hefst kennsla í haust.

„Þetta nám er ákaf­lega mik­il­vægt fyrir báða aðila og braut­ryðj­andi náms­leið í þeirri nýju hugsun að tengja saman atvinnu­lífið og aka­dem­í­una.“

„Þetta nám er ákaf­lega mik­il­vægt fyrir báða aðila og braut­ryðj­andi náms­leið í þeirri nýju hugsun að tengja saman atvinnu­lífið og aka­dem­í­una. Við munum þannig nýta hæfi­leika og styrk­leika bæði háskól­ans og Alvotech og gefa nem­endum þá tæki­færi til að vinna verk­efni við báðar stofn­anir. Starfs­fólk Alvotech mun kenna á sumum nám­skeiðum en til að keyra þetta allt áfram var Jens Guð­mundur Hjör­leifs­son, doktor í líf­efna­fræði, ráð­inn sem lektor og akademískur umsjón­ar­maður náms­ins.“

Jens segir að hann muni halda utan um námið og passa upp á að allir spottar gangi upp hvað varðar bók­legt akademísk nám og teng­ingu við líf­tækni­fyr­ir­tæki úti í atvinnu­líf­inu.

„Stór liður náms­ins er áhersla á líf­tækni­lyf en námið er einnig byggt upp fyrir mögu­leika á annarri sér­hæf­ingu innan líf­tækn­innar. Við höfum mjög breiða línu val­nám­skeiða og munu umsjón­ar­kenn­arar hjálpa nem­endum við val nám­skeiða eftir þeirra áhuga­sviði. Þó að Alvotech styrki námið fyrstu árin þá er meg­in­mark­miðið að efla líf­tækni­iðnað á Íslandi og stefnt er á sam­starf við mörg önnur líf­tækni­fyr­ir­tæki í land­inu. Þetta verður gott fyrir sam­fé­lagið í heild sinni.“

Sesselja segir að auð­vitað sé hluti af þessu að fá vel menntað fólk til starfa hjá Alvotech og öðrum líf­tækni­fyr­ir­tækjum en að ekki megi gleyma því að síðan megi búast við auk­inni sam­vinnu á milli háskól­ans og atvinnu­lífs­ins og að sprota­fyr­ir­tæki verði stofnuð. „Þá verða til nýjar hug­myndir og rann­sóknir efl­ast á svið­inu. Þetta er eitt­hvað sem við viljum byggja veru­lega góðar stoðir undir.“

Ákveðið frelsi

Meist­ara­námið í iðn­að­ar­líf­tækni er þver­fag­legt sam­starf á milli Heil­brigð­is­vís­inda­sviðs og Verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­sviðs Háskóla Íslands. Umsækj­endur þurfa að hafa lokið grunn­námi í raun- eða líf­vís­indum, heil­brigð­is­vís­indum, verk­fræði eða öðru sam­bæri­legu námi. Kennsla mun að mestu leyti fara fram á ensku.

„Þetta þver­fag­lega nám miðar að því að tengja saman verk­fræði, raun­vís­indi og heil­brigð­is­vís­indi,“ segir Sesselja.

Nemendur þurfa að taka ákveð­inn fjölda kjarna­nám­skeiða en svo er líka fjöldi val­nám­skeiða. Jens segir að nem­endur geti svo valið 30 eða 60 ein­inga rann­sókna­verk­efni.

„Þau geta orðið til innan aka­dem­í­unnar eða fyr­ir­tækis; það er ákveðið frelsi þar. Umsjón með öllum rann­sókn­ar­verk­efnum verður hjá akademískum starfs­mönnum HÍ en nem­endum verður gert kleift að vinna verk­efnin að hluta eða í heild sinni í sam­starfi við og hjá fyr­ir­tækjum undir leið­sögn starfs­manna þeirra.“

Hvað er líftækni?

Jens útskýrir að bólu­efna­fram­leiðsla, líf­tækni­lyf, ens­ím­þróun, hreinsun líf­efna úr nátt­úr­unni og erfða­breyt­ingar á plöntum í land­bún­aði mætti taka sem hag­nýt dæmi sem tengj­ast líf­tækni.

„Þær miklu þró­anir í aðferðum á grein­ingum á erfða­mengjum en einnig þróun á aðferðum til að nýta frumur til fram­leiðslu á próteinum hefur verið ákveð­inn horn­steinn í líf­tækni. Nú er hægt að gera flókna hluti á stuttum tíma sem áður gat spannað heilan starfs­feril. Það þykir til dæmis ekk­ert stór­virki í dag að greina heilu erfða­mengin. Þessi hraða þróun hefur leitt til vönt­unar á líf­vís­inda­mennt­uðu fólki. Meistara­gráða í iðn­að­ar­líf­tækni er hugsuð til að mæta þessum skorti.”

Mikill vaxtarbroddur

Sesselja seg­ist telja að fram­tíðin sé björt varð­andi líf­tækni­lyf og rekstur Alvotech.

„Fyr­ir­tækið er að leita að um 100 nýjum starfs­mönnum til að vinna í hátækni­setr­inu þannig að það eru gríð­ar­lega fjöl­breytt störf í boði. Það er að minnsta kosti mik­ill vaxt­ar­broddur. Síðan er okkur mikið í mun að það mynd­ist hérna gott umhverfi fyrir líf­tækni. Draumur okkar er að hafa líf­tækniklasa í mjög góðu sam­starfi við Háskóla Íslands þar sem til dæmis sprota­fyr­ir­tæki geti fengið að blómstra,“ segir hún.

„Með þessu námi opnun við einnig fyrir fólk að fara síðar í frekara fram­halds­nám í tengdum greinum,“ segir Jens.

Sesselja bætir við: „Við viljum hvetja öll líf­tækni­fyr­ir­tæki á land­inu til að koma að nám­inu og bjóða upp á verk­efni. Líftækni er fram­tíð­ar­vís­inda­grein og við viljum endi­lega hvetja nem­endur sem hyggja á frekara nám að skoða þetta nýja meist­ara­nám.“

Stúdíó Birtíngur
Í sam­starfi við Háskóla Íslands og Alvotech

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur