Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjórinn er upphaf alls lífs

Urta Islandica þróar jurta­bragð­bætt, kol­sýrt og stein­efna­ríkt drykkj­ar­vatn úr köldum jarð­sjó. Fimm fjöl­skyldu­með­limir koma að rekstr­inum og hlakka þau til að takast á við næstu áskor­anir.

Sjórinn er upphaf alls lífs

Fyr­ir­tækið Urta Islandica er í start­hol­unum með að fram­leiða jurta­bragð­bætt, kol­sýrt og stein­efna­ríkt drykkj­ar­vatn sem er unnið úr köldum jarð­sjó. Stofn­andi þess er Þóra Þór­is­dóttir en hún ólst upp fyrir vestan og norðan þar sem tengslin við nátt­úr­una voru mikil í barn­æsku.

Vegna fámennis og fábreytni hófu hún og systur hennar snemma að nýta allt sem þær fundu í fjöru og á landi sem efni­við í alls­konar föndur og leiki. Þessir æsku­leikir áttu vafa­laust stóran þátt í þeim verk­efnum sem hún tók þátt í síðar á lífs­leið­inni, ekki síst með þróun jurta­fyr­ir­tæk­is­ins Urta Islandica sem sér­hæfir sig í fram­leiðslu á jurta­tei, jurta­salti og jurta­sírópi sem mat­ar­gjafa­vörur á ferða­manna­markað. „Árið 2013 stofn­aði ég form­lega eign­ar­halds­fé­lagið Urta Islandica ehf. með fjöl­skyldu minni og við höfum unnið saman í fyr­ir­tæk­inu síðan. Tveimur árum eftir stofnun þess fluttum við fram­leiðsl­una til Kefla­víkur. Við létum bora holu ofan í hraunið á lóð­inni til að fá upp ferskan sjó sem við létum rann­saka og í ljós kom að hann var hreinn, tær og ómeng­aður. Upp­haf­lega hug­myndin var að fram­leiða bað- og spavörur úr stein­efn­unum úr sjónum. Fljót­lega var ljóst að það yrði mikið magn afgangs af stein­efna­ríku afsölt­uðu sjó­vatni og eftir nokkra rann­sókn­ar­vinnu ákváðum við að fara í nýtt þró­un­ar­verk­efni til að nýta þetta vatn og mark­aðs­setja sem drykkj­ar­vatn.“

„ … nær­ing­ar­sér­fræð­ingar, m.a. hjá Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni WHO, telja að það sé veru­leg heilsu­bót af því að drekka stein­efna­ríkt vatn frekar en stein­efna­s­nautt.

Hlaðið stein­efnum
Hugmynd teym­is­ins er að selja sjó­vatnið í þremur styrk­leikum, bæði kol­sýrt og ókol­sýrt, bragð­bætt með jurtum og hreint, og pakka því í end­ur­vinn­an­legar gler­flöskur. „Það sem vatnið hefur fram yfir venju­legt íslenskt vatn er að það er hlaðið stein­efnum úr sjónum en stein­efnin í sjónum eru í sömu hlut­föllum og stein­efnin í blóði okkar. Því ætti sjó­vatnið að vera góður kostur fyrir þá sem vilja ekki rugla í stein­efna­bú­skapnum sínum með því að taka inn stök stein­efni. Sjó­vatnið vökvar lík­amann vel og margir nær­ing­ar­sér­fræð­ingar, m.a. hjá Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni WHO, telja að það sé veru­leg heilsu­bót af því að drekka stein­efna­ríkt vatn frekar en stein­efna­s­nautt. Þá eru margir á því að stein­efna­ríkt vatn sé auk þess bragð­betra.“

Góð sam­vinna
Það er óhætt að segja að sam­vinna fjöl­skyld­unnar ein­kenni fyr­ir­tækið en fimm með­limir fjöl­skyld­unnar starfa þar með einum eða öðrum hætti. „Utan mín má fyrst nefna Sigurð Magn­ús­son eig­in­mann minn sem er iðn­að­ar­tækni­fræð­ingur og snill­ingur í tölvum, tækjum, smíði og redd­ingum. Hann lætur hlut­ina ger­ast, verk­stýrir og heldur utan um ferla og skrán­ingar.“

Stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins er Guðbjörg Lára dóttir þeirra sem hefur að sögn Þóru yfir­um­sjón með allri hönnun og mark­aðs­málum en þessi tvö svið eru sam­ofin hjá fyr­ir­tæk­inu að hennar sögn. „Lára er með næmt fag­ur­fræði­legt auga, hug­mynda­rík og með ómet­an­legt inn­sæi inn á mark­að­inn. Hún er ham­hleypa til verka, góð í sam­skiptum og mun stýra því hvernig jarð­sjó­vatnið okkar mun líta út og verða mark­aðs­sett.“

Kolbeinn Lárus, sonur þeirra hjóna, er nýút­skrif­aður flug­véla­verk­fræð­ingur og segir Þóra hann smellpassa í verk­efnið. „Hlutverk hans er að halda utan um og aðlaga þá tækni sem við munum nota við að afsalta sjó­inn, setja upp og prófa vinnslu­línu ásamt því að gera til­raunir og búa til prótótýp­urnar.“

Yngsti son­ur­inn heitir Þang­brandur Húmi sem Þóra segir vera þann allra fjöl­hæf­asta í hópnum. „Hann vinnur með okkur á öllum sviðum verk­efn­is­ins, hefur umsjón með gæða­málum og birgða­málum. Hann sér einnig um að finna tæki, tól og umbúðir til vinnsl­unnar.“

Áskorun að treysta
Hún segir þátt­tök­una í hraðl­inum gefa þeim tæki­færi til að opna hug­mynd­ina fyrir öðrum, stækka tengsla­netið og miðla af þekk­ingu sinni til ann­arra í leið­inni. „Helsta áskor­unin í byrjun er að treysta og segja frá því hvað við erum að gera því við erum öll „intróvertar“ og höfum hingað til verið svo­lítið út af fyrir okkur. Fyrst og fremst von­ast ég eftir ólíkum sjón­ar­hornum og góðum ráðum sem munu nýt­ast okkur við fram­leiðsl­una og mark­aðs­setn­ing­una.“

Bjartsýn á fram­haldið
Mögu­legir við­skipta­vinir er breiður hópur segir Þóra og nefnir m.a. alla þá sem vilja fá meiri heilsu­á­vinn­ing úr flösku­vatni eða gosi. „Ef við reynum að sér­hæfa okkur þá liggur bein­ast við að skoða ferða­manna­mark­að­inn þar sem við erum fyrir með vörur okkar og einnig veit­inga­húsin. Þá eru mark­hópar eins og lík­ams­rækt­ar­fólk og hlauparar sem þurfa að end­ur­hlaða stein­efni eftir æfingar, veikt fólk og börn sem hafa misst vökva.“

Hún er bjart­sýn á fram­haldið og segir teymið stefna að því að verk­efnið verði orðið sjálf­bært, skapi vinnu og skili hagn­aði innan tveggja ára. „Á svip­uðum tíma­punkti viljum við líka vera byrjuð í útflutn­ingi og vera í þeirri stöðu að varan okkar hafi vakið alvöru­at­hygli inn­an­lands sem erlendis, vegna ein­stakra eig­in­leika hennar og upp­runa. Við bindum því miklar vonir við að þátt­taka okkar í Til sjávar og sveita, hjálpi okkur að ná þeim mark­miðum okkar.“

Mynda­texti: Þóra Þór­is­dóttir og Sigurð Magn­ús­son og börn þeirra Guðbjörg Lára, Kolbeinn Lárus og Þang­brandur Húmi.

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Til sjávar og sveita.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur