Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Samstarf við MIT DesignX um sprett í upphafi Snjallræðis

Svafa Grön­feldt og sam­starfs­fé­lagar hennar frá MIT DesignX munu sjá um sprett í upp­hafi nýja sam­fé­lags­hrað­als­ins Snjall­ræðis, við­skipta­hrað­als fyrir sam­fé­lags­lega nýsköpun og frum­kvöðla­starf­semi, sem hóf göngu sína síð­ast­liðið haust og hald­inn var á vegum Höfða frið­ar­set­urs Reykja­vík­ur­borgar og Háskóla Íslands, Reykja­vík­ur­borgar, Háskóla Íslands og Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands.

Samstarf við MIT DesignX um sprett í upphafi Snjallræðis
Svafa Grön­feldt og sam­starfs­fé­lagar hennar frá MIT DesignX munu sjá um sprett í upp­hafi nýja sam­fé­lags­hrað­als­ins Snjall­ræðis.

Svafa kynnti sam­starfið á fundi í Höfða nú í vik­unni, en hún er full­trúi í ráð­gjafa­ráði Snjall­ræðis, ein stofn­enda nýjasta við­skipta­hrað­als­ins við MIT, DesignX, og með­stofn­andi MET sjóðs­ins sem er fjár­fest­inga­sjóður fyrir sprota með aðsetur í Cambridge. Á fund­inum voru sam­an­komnir aðilar frá íslenskum fyr­ir­tækjum sem hafa látið til sín taka á sviði sam­fé­lags­á­byrgðar, en til­gangur fund­ar­ins var að efna til auk­ins sam­starfs við Snjall­ræði og veita öfl­ugum íslenskum fyr­ir­tækjum vett­vang til þess að láta enn frekar að sér kveða á sviði sam­fé­lags­legrar nýsköp­unar og frum­kvöðla­starf­semi.

„Hafa mikið fram að færa í sam­fé­lags­málum“
Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, for­seti borg­ar­stjórnar tók á móti hópnum í Höfða og bauð gesti vel­komna, en á fund­inum tóku til máls aðilar sem tengj­ast hraðl­inum með ýmsum hætti.

Magnús Þór Torfason, lektor við Við­skipta­fræði­deild og full­trúi í ráð­gjafa­ráði Snjall­ræðis, var einn þeirra. Á fund­inum fór Magnús Þór meðal ann­ars yfir mark­mið og til­gang Snjall­ræðis, sem er að veita þeim ein­stak­lingum sem brenna fyrir bættu sam­fé­lagi vett­vang til þess að þróa hug­myndir sínar áfram og finna þeim sjálf­bæran far­veg svo þær geti blómstrað og dafnað. „Íslensk fyr­ir­tæki og atvinnu­líf hafa mikið fram að færa í sam­fé­lags­málum og þess vegna er afar mik­il­vægt að virkja þann kraft og þekk­ingu og nýta inn í vett­vang eins og Snjall­ræði,“ benti hann á.

„Í hröðlum er hægt að prófa fleira, hraðar og ódýrar en áður. Hraðlar eru því afar mik­il­vægt tæki sem við ættum að vera óhrædd við að nýta fyrir sam­fé­lags­lega nýsköpun, ekki síður en fyrir önnur sprota- og vaxt­ar­fyr­ir­æki,” sagði hann enn­fremur og bætti við að með öfl­ugu sam­starfi og góðum vett­vangi væri hægt að skapa gríð­ar­leg tæki­færi í sam­fé­lags­legri nýsköpun hér á landi.

„Íslensk fyr­ir­tæki og atvinnu­líf hafa mikið fram að færa í sam­fé­lags­málum og þess vegna er afar mik­il­vægt að virkja þann kraft og þekk­ingu og nýta inn í vett­vang eins og Snjall­ræði.“

Verðmæti og nýjar lausnir
Á fund­inum sagði Fanney Karls­dóttir, sér­fræð­ingur í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og for­maður verk­efna­stjórnar Heims­mark­miða frá tæki­fær­unum sem fel­ast í auk­inni áherslu Snjall­ræðis á Heims­mark­miðin og hvernig megi nýta þau til grund­vallar við mótun nýrra hug­mynda og þróun stefnu fyr­ir­tækja á sviði sam­fé­lags­legrar nýsköp­unar.

Góð mæt­ing var á fund­inum.

Hrólfur Jónsson, for­stöðu­maður Vís­inda­garða, sagði frá spenn­andi sam­starfi við Snjall­ræði en görð­unum er ætlað að tengja saman frum­kvöðla, fyr­ir­tæki og háskóla, stór­efla þar með hag­nýt­ingu rann­sókna, nýsköpun og við­skipta­þróun og skapa um leið verð­mæti og nýjar lausnir sem munu koma sam­fé­lag­inu til góða.

Aukið tæki­færi til að þróa eigin hug­myndir áfram
Þá deildu Sig­ur­þóra Bergs­dóttir og Sigrún Thorlacius, sem báðar tóku þátt í Snjall­ræði síð­ast­liðið haust, reynslu sinni af þátt­töku í hraðl­inum sem gaf þeim aukið tæki­færi til þess að þróa eigin hug­myndir áfram, aðgang að mik­il­vægu tengsla­neti og stað­fest­ingu á ágæti eigin hug­mynda.

Kynnast nýj­ustu nálg­unum
Höfði frið­ar­setur Reykja­vík­ur­borgar og Háskóla Íslands, Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands, Háskóli Íslands, Reykja­vík­ur­borg, Lista­há­skóli Íslands, Festa – mið­stöð um sam­fé­lags­á­byrgð fyr­ir­tækja, atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið, Háskól­inn í Reykja­vík og Icelandic Startups standa að Snjall­ræði en fram­kvæmd hrað­als­ins er í höndum Höfða frið­ar­set­urs og Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands, í sam­starfi við pró­fess­ora við MIT DesignX. Snjall­ræði er þegar stutt af Lands­virkjun, en víð­tækt sam­starf við atvinnu­lífið er mik­il­vægt svo skapa megi öfl­ugan vett­vang fyrir sam­fé­lags­lega nýsköpun hér á landi. Frekari upp­lýs­ingar um hrað­al­inn er hægt að afla sér á www.snjallraedi.is

Á viku tíma­bili munu teymin í Snjall­ræði fá að kynn­ast nýj­ustu nálg­unum á sviði sam­fé­lags­legrar nýsköp­unar og frum­kvöðla­starf­semi og öðl­ast tæki­færi til þess að sann­reyna eigin hug­myndir og kryfja þær til mergjar í krefj­andi vinnu­stofum sem byggðar verða á fjórum grunn­stoðum MIT DesignX, Und­er­stand – Solve – Envision – Scale, en sprettur verður styrktur af MIT Industrial Liaison Program (ILP), í gegnum sam­starf Alvogen og Háskól­ans í Reykja­vík við Snjall­ræði.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur