Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Valitor innleiðir greiðslumáta framtíðarinnar

Í byrjun maí aug­lýstu Lands­bank­inn og Arion banki að nú stæði við­skipta­vinum þeirra til boða að tengja Visa-greiðslu­kort sín við Apple Pay, greiðslu­lausn banda­ríska tækniris­ans Apple.

Valitor innleiðir greiðslumáta framtíðarinnar
Unnur Magna ásamt konu úr Kayan ætt­bálk­inum. |Mynd/Unnur Magna||Mynd/Unnur Magna|Mynd/Unnur Magna|Mynd / Unnur Magna||Mynd / Unnur Magna|Mynd / Unnur Magna

Snjall­tæki eru greiðslu­mið­ill fram­tíð­ar­innar og hefur Valitor tekið for­ystu í þessum breytta greiðslu­heimi sem rímar vel við mark­mið fyr­ir­tæk­is­ins. Fyr­ir­tækið gegndi lyk­il­hlut­verki í að koma Apple Pay til Íslands en það gerir við­skipta­vinum Lands­bank­ans og Arion banka kleift að borga hratt og örugg­lega með sím­anum, úrinu, á Netinu og í öppum með því að tengja Visa-greiðslu­kort sín við Apple Pay.

Að sögn Nínu Þrast­ar­dóttur, verk­efna­stjóra hjá Valitor, er sú inn­leið­ing bara byrj­unin og segir hún að gaman verði að sjá hvað fylgi í kjöl­farið. „Við inn­leiddum í fyrra þjón­ustu frá Visa sem byggir á sýnd­ar­núm­era­tækni þar sem sýnd­ar­númer kemur í stað korta­núm­ers. Fyrir vikið er raun­veru­legt korta­númer ekki notað við greiðslur fyrir vörur og þjón­ustu. Einnig kemur það í veg fyrir að  korta­númer séu vistuð á snjall­tækjum við­skipta­vina en eitt og sér hefur sýnd­ar­núm­erið ekk­ert gildi og er því verð­laust sé því stolið.“

Þægileg lausn

Þjón­ustan hefur verið í notkun frá því um mitt síð­asta ár þegar Lands­bank­inn varð fyrsti bank­inn á Íslandi til að koma á markað með greiðslu­lausn með snjall­tæki segir Nína. „Þá gaf bank­inn út Kortaapp sitt sem er Android-greiðslu­lausn sem er unnin í sam­vinnu við Valitor.“

Við­skipta­vinir Lands­bank­ans og Arion banka geta ann­að­hvort virkjað greiðslu­kortin sín í gegnum banka­öppin eða með því að bæta þeim beint við  Apple Pay-veskið á sím­anum. „Ef farið er í gegnum banka­app er ekki kraf­ist frek­ari auð­kenn­ingar þar sem við­skipta­vinur hefur þegar auð­kennt sig inn í banka­appið. Ef korti er hins vegar bætt beint inn í Apple Pay-veskið þarf not­andi að auð­kenna sig með stað­fest­ing­ar­kóða sem sendur er í gegnum texta­skila­boð eða tölvu­póst. Bæði Visa-debet- og kredit­kort eru aðgengi­leg í lausn­ina.“

Ingi­bjartur Jónsson og Nína Þrast­ar­dóttir.

Örugg greiðsluleið

Hægt er að nota Apple Pay í öllum posum sem bjóða upp á snerti­lausar greiðslur auk þess sem hægt er að nota Apple Pay til að greiða á Netinu og í öppum. „Apple Pay er aðgengi­legt fyrir flestar gerðir Apple-snjall­tækja, s.s. iPhone, iPad, Apple-úr og MacBook Pro (með Touch ID virkni). Allar færslur með Apple Pay eru auð­kenndar með fingrafari, and­litsskanna eða lyk­il­orði. Nóg er að bera tækið upp að pos­anum þegar greitt er og því er ekki þörf á því að opna tækið fyr­ir­fram.“

Greiðslur með þessum hætti eru örugg­ari en hefð­bundin greiðsla með korti segir Ingi­bjartur Jónsson, deild­ar­stjóri Korta­út­gáfu­lausna hjá Valitor. „Þar sem sýnd­ar­númer kemur í stað korta­núm­ers þá vist­ast korta­númer við­skipta­vina hvorki í snjall­tækið né á net­þjóna Apple og er því aldrei notað við greiðslur. Einnig er gefið út sér­stakt sýnd­ar­númer fyrir hvert tæki og er ekki hægt að nota sýnd­ar­núm­erið til að greiða nema með því tæki sem sýnd­ar­núm­erið er gefið út á.“

Skemmtileg innleiðing

Inn­leið­ingin hófst síð­asta haust og segir Nína ferlið hafa verið langt og strangt en um leið skemmti­legt. „Apple setur miklar tækni­kröfur og gerir mikið út á góða not­enda­upp­lifun. Áður en varan er sett í loftið þarf að fara í gegnum strangt og umfangs­mikið vott­un­ar­ferli. Allt hefst þetta með góðri sam­vinnu sem hefur ein­kennt þetta verk­efni. Sem samn­ings­að­ili við Apple sá Valitor alfarið um sam­skipti við Apple og Visa í inn­leið­ing­ar­ferl­inu. Mikil leynd hvíldi yfir komu Apple Pay til Íslands og ekk­ert mátti segja opin­ber­lega fyrr en við fórum í loftið þann 8. maí. Viðtökur kort­hafa hafa verið framar vænt­ingum og eru Visa og Apple hæstá­nægð með hvernig til­tókst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur