Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skemmtilegar hópferðir við allra hæfi

Árs­há­tíð­ar­ferðir og skemmti­legar hóp­ferðir eru sér­grein ferða­skrif­stof­unnar Visitor.

Skemmtilegar hópferðir við allra hæfi

Ferða­skrif­stofan Visitor hefur um ell­efu ára skeið skipu­lagt árs­há­tíð­ar­ferðir og skemmti­legar hóp­ferðir fyrir fyr­ir­tæki og ýmsa hópa með góðum árangri. Nú er rétti tím­inn til að skipu­leggja ferðir hausts­ins og næsta vetrar, segir Guðrún St. Svav­ars­dóttir, verk­efna­stjóri hópa­deildar Visitor, enda hefur fram­boð af flug­sætum minnkað og þá skiptir máli fyrir hópa að huga sem fyrst að pönt­unum áður en allt selst upp eða verð hækkar of mikið.

„Sérsvið okkar snýr að skipu­lagn­ingu hóp­ferða til útlanda og má þar helst nefna sér­sniðnar árs­há­tíð­ar­ferðir fyrir stór og smá fyr­ir­tæki og einnig ferðir fyrir vina­hópa, félaga­sam­tök, sauma­klúbba og aðra hópa sem vilja eiga skemmti­lega daga saman erlendis. Þá sjáum við um ferð­ina frá a-ö, allt frá því að bóka flug og gist­ingu, bóka ferðir til og frá flug­velli, sjá um árs­há­tíð­ar­kvöld­verð, skemmti­at­riði, veislu­stjóra og tón­list­ar­at­riði auk þess að bóka skoð­un­ar­ferðir fyrir hóp­inn. Með stærri hópum fylgir starfs­maður Visitor með í ferð­ina til að vera hópnum inn­an­handar.“

Vin­sæl­ustu árs­há­tíð­ar­ferðir síð­ustu ára hafa verið til Berlínar, Brighton, Dublin og Heidel­berg, að sögn Guðrúnar, en einnig hafa Varsjá, Gdansk og Búdapest verið mjög vin­sælir við­komu­staðir.

Enski boltinn vinsæll

Þegar kemur að enska bolt­anum býður Visitor upp á gott úrval fót­bolta­ferða en þær eru alltaf jafn­vin­sælar, segir Guðrún. „Flestar fót­bolta­ferð­irnar eru á leiki með Manchester United, Arsenal og Liverpool. Við getum þó útvegað miða á alla leiki í ensku deild­inni en við eigum miða á hvern ein­asta leik hjá þessum stóru liðum. Á dög­unum gerði Arsenal­klúbb­ur­inn á Íslandi samn­ing við okkur um ferðir á þeirra vegum svo stuðn­ings­menn þeirra munu hafa gott aðgengi að ferðum á Emirates-leik­vang­inn á næstu leik­tíð. Einnig má nefna að mörg íþrótta­fé­lög leita til okkar en þau ferð­ast mikið með flokk­ana sína í keppnis- og æfinga­ferðir á okkar vegum.“

Alltaf uppselt

Tón­leika­ferðir Visitor hafa verið vin­sælar und­an­farin ár og verið upp­selt í þær allar, að sögn Guðrúnar. „Það eru flottar ferðir fram undan en þar má helst nefna tón­leika með Cher sem verða haldnir í Berlín næsta haust. Far­ar­stjórar þar verða engir aðrir en Friðrik Ómar og Jógvan Hansen. Mánuði síðar höldum við svo til Kaup­manna­hafnar að sjá Michael Bublé en það eru dans­hjónin Jói og Thea sem verða far­ar­stjórar ferð­ar­innar.“

Í des­em­ber verður hóp­ferð á Heims­meist­ara­mótið í pílu­kasti undir stjórn Páls Sævars Guð­jóns­sonar en nú þegar er kom­inn langur biðlisti á þennan magn­aða við­burð. „Svo má nefna eina spenn­andi nýj­ung hjá okkur fyrir þá sem vilja kom­ast í sól­ina en samt hreyfa sig í frí­inu. Um er að ræða hreyfi­ferð með Ólöfu Björns­dóttur til Cambrils Park í Salou á Spáni, dag­ana 17. -24. sept­em­ber.“

„Við erum á fullu þessa dag­ana að svara fyr­ir­spurnum um ferðir í haust en einnig eru fyr­ir­spurnir byrj­aðar að ber­ast vegna ferða eftir ára­mót og fram á vor.“

Ferða­skrif­stofan Visitor var stofnuð af Þor­björgu Sig­urð­ar­dóttur, öðru nafni Obbý, en starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins býr yfir 50 ára reynslu í skipu­lagn­ingu á árs­há­tíð­ar­ferðum, tón­leika­ferðum og íþrótta­ferðum. „Við erum á fullu þessa dag­ana að svara fyr­ir­spurnum um ferðir í haust en einnig eru fyr­ir­spurnir byrj­aðar að ber­ast vegna ferða eftir ára­mót og fram á vor.“

Frekari fyr­ir­spurnir má senda á [email protected] og nán­ari upp­lýs­ingar má finna á www.visitor.is.

Studíó Birtíngur
Í sam­starfi við Visitor

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur