Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Nýr grænn sáttmáli – minni ójöfnuður og endurnýjanleg orka

Banda­ríska þing­konan Alex­andria Ocasio-Cortez heldur áfram að sýna póli­tískt hug­rekki. Á stuttum tíma hefur hún orðið svo gott sem heims­fræg og nýtur mik­illa vin­sælda, einkum meðal ungs fólks í Banda­ríkj­unum. Skal engan undra, enda fer hug­rekki og alþýð­leiki hennar saman við póli­tíska inni­stæðu sem sést meðal ann­ars með fram­lagn­ingu hennar á ályktun um Grænan nýjan sátt­mála eða „Green New Deal“ í sam­starfi við Edward Markey.

Nýr grænn sáttmáli – minni ójöfnuður og endurnýjanleg orka
|

Hug­myndin þótti djörf í kjöl­far kosn­inga í nóv­em­ber. Þing­konan fór strax að þreifa fyrir stuðn­ingi meðal demókrata fyrir sátt­mál­anum og hefur, mörgum að óvörum, fengið tals­verðan stuðn­ing þrátt fyrir að sátt­mál­inn þyki rót­tækur en um 60 þing­menn og 9 öld­ung­ar­deild­ar­þing­menn styðja hann nú.

Heitið á sátt­mál­anum vísar til Nýja sátt­mála „New Deal“ Roosevelts, sem hafði að geyma aðgerðir til að rétta af banda­rískt sam­fé­lag eftir krepp­una miklu á fyrri­hluta síð­ustu aldar. Að mati margra m.a. Paul Krugman lagði sú stefna grunn­inn að blóma­skeiði milli­stétt­ar­innar eftir krepp­una allt þar til Ronald Reagan fór að lækka skatta á eigna­fólk og hina ríku þegar hann varð for­seti mörgum ára­tugum seinna.

Markmið nýja græna sátt­mál­ans eru nokkuð skýr. Sátt­málin tengir saman aðgerðir í umhverf­is­málum og aðgerðir til að draga úr ójöfn­uði, einkum með því að skapa störf. Banda­ríkin eiga að vera leið­andi afl á alþjóða­vett­vangi við að sporna við áhrifum lofts­lags­breyt­inga.

Markmið að ná kolefnishlutleysi árið 2030

Sátt­málin leggur til að allt verði knúið af end­ur­nýj­an­legri orku í Banda­ríkj­unum innan 10 ára- 20 ára. Meg­in­mark­mið er að ná kolefn­is­hlut­leysi árið 2030. Inn­gangs­orðin – sem eru áhrifa­mikil – byggja á vís­indum (m.a. frá IPCC) um áhrif lofts­lags­breyt­ingar á jörð­ina og í Banda­ríkj­unum til fram­tíðar, sem og um skað­semi áfram­hald­andi notk­unar jarð­efna­elds­neytis. Talið er ein­fald­lega að teikn á lofti um hlýnun jarðar stofni þjóðar­ör­yggi Banda­ríkj­anna í hættu.

Störf verða til þar sem nauð­syn­legt er að upp­færa flesta inn­viði, einkum í strand­sam­fé­lögum – svo sem vegi – til að aðlaga þá breyttri fram­tíð og sátt­mál­inn talar um sköpun hátækni­starfa til að mæta því að sam­fé­lagið verði knúið af end­ur­nýj­an­legri orku. Fjár­fest­ingar verða dýrar og hafa stuðn­ings­menn sátt­mál­ans talað um að það eigi að fjár­magna með skatt­lagn­ingu á hina ríku sem og lán­töku hins opin­bera.

Sátt­mál­inn talar ekki beint um fjár­mögnun en Ocasio-Cortez hefur bent á að kostn­aður við að gera ekk­ert verði mun meiri, bæði í félags­legu og efna­hags­legu til­liti. Morg­un­ljóst er að ef vís­indin hafa rétt fyrir sér um hvað 2° hlýnun þýði þá mun kostn­aður banda­rísks sam­fé­lags verða gígantískur.

Hver sem örlög sátt­mál­ans verða í þing­inu hefur Alex­andriu Ocasio-Cortez að minnsta kosti tek­ist að koma nauð­syn­legum til­lögum um aðgerðir til að sporna við lofts­lags­breyt­ingum á kortið. Mynd / Agustin Lautaro

En hversu rót­tæk er stefnan? Það fer eftir því hvaða augum maður lítur á lofts­lags­málin og alvar­leika þeirra. Það er hægt að rök­styðja að það sé rót­tækt aðgerð­ar­leysi að gera ekk­ert rót­tækt í lofts­lags­málum. Að minnsta kosti er það léleg efna­hags­stefna að gera lítið, en svo dæmi sé tekið gefa spár til kynna að sam­an­lagt fjár­hag­legt tjón á fast­eigna­mark­aði geti numið þús­und billjónum doll­ara.

Þar eru áhrif á líf og heilsu fólks ótalin – áhrif á mat­væla­fram­leiðslu og almennt öryggi Banda­ríkja­manna vegna fleiri ofsa­veðra, aukn­ingu á þurrkum, villi­eldum, sjáv­ar­máls­hækkun og svo fram­vegis. Ef menn telja að líta beri fram­hjá vís­indum í sam­bandi við lofts­lags­breyt­ingar – þá er sátt­mál­inn býsna rót­tækur. Athygli vekur að ekki er talað um los­un­ar­heim­ildir eða græna skatta per se, eins og algengt er orðið innan Evrópu heldur er fók­us­inn ein­fald­lega á að skipta um orku­gjafa.

Nýr grænn sátt­máli er þörf bylt­ing að mati margar. Sátt­mál­inn er ekki full­kom­inn og margt vantar til að full­gera stefn­una, eins og beinar áþreif­an­legar aðgerðir sem að sögn Ocasio-Cortez eigi að fylgja í kjöl­farið. Engu að síður er hann stórt skref fyrir þjóð sem er nokkuð á eftir Evr­ópu­sam­band­inu í aðgerðum til að sporna við lofts­lags­breyt­ingum. Trump vill bein­línis út úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu sem Obama þrýsti mjög á að yrði að veru­leika. Hver sem örlög sátt­mál­ans verða í þing­inu hefur þing­kon­unni rót­tæku að minnsta kosti tek­ist að koma nauð­syn­legum til­lögum um aðgerðir til að sporna við lofts­lags­breyt­ingum á kortið. Og þannig holar drop­inn stein­inn.

Sjá einnig: Ný þing­kona hristir upp í hús­inu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco